Morgunblaðið - 25.02.2010, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
HELGINA 27.-28. febrúar nk. mæta
um 870 hreinræktaðir hundar af 88
hundakynjum í dóm á hundasýn-
ingu Hundaræktarfélags Íslands.
Sýningin verður haldin í Reið-
höllinni í Víðidal og verður byrjað
að dæma kl. 9 árdegis báða dagana
og stendur það fram eftir degi. Úr-
slit hefjast upp úr kl. 14 á sunnudag
og kemur þá í ljós hvaða hundar
bera af að mati dómara.
Í anddyri Reiðhallarinnar verða
kynningarbásar fyrir ólík hunda-
kyn þar sem gestum gefst kostur á
að kynnast hundum og ræða við
eigendur þeirra. Meðfylgjandi er
mynd af besta hundi haustsýningar
2009, írska setter hundinum C.I.B.
Cararua Alana, ásamt Guðrúnu
Dögg Sveinbjörnsdóttur.
Morgunblaðið/Kristinn
Hundasýning
Í DAG, fimmtudag, kl. 13.30-
16.30, halda Samtök ferðaþjón-
ustunnar ráðstefnu á Grand Hót-
el Reykjavík sem nefnist „Dagur
menntunar í ferðaþjónustu“. Til
ráðstefnunnar hefur m.a. verið
boðið tveim fyrirlesurum, Tito
Livio Mongelli, framkvæmda-
stjóra The Education Manage-
ment Industry og eins helsta sér-
fræðings í fræðslumálum í
fyrirtækjum í Evrópu, og Gylfa
Dalmann Aðalsteinssyni, dósent í
mannauðsstjórnun við Háskóla
Íslands. Í lok ráðstefnunnar
verður starfsmenntaviðurkenn-
ing SAF afhent í þriðja sinn því
fyrirtæki sem þykir skara fram
úr í greininni.
Dagur menntunar
í ferðaþjónustu
BARNA- og ung-
lingamót Skauta-
sambands Ís-
lands verður
haldið í Skauta-
höllinni á Ak-
ureyri dagana
27.-28. febrúar
nk.
Bæði A- og B-
iðkendur frá
Skautafélagi Ak-
ureyrar, Skautafélagi Reykjavíkur
og Birninum sýna listir sýnar á
svellinu. Í öllum flokkum verða
þeim sem ná þrem efstu sætunum
veitt verðlaun.
Allir eru velkomnir að koma að
horfa á bestu skautara landsins etja
þar kappi. Frítt er inn og foreldra-
félag deildarinnar selur kaffi og
með því á vægu verði til styrktar
iðkendum.
Skautasýning og
keppni um helgina
HÓTEL Saga við Hagatorg mun
framvegis heita Radisson Blu Hótel
Saga og 1919 Hótel við Póst-
hússtræti fær nafnið Radisson Blu
1919 Hótel. Í tilkynningu frá hót-
elkeðjunni segir að þegar vinna
hófst við leit að nýju nafni hafi
vinnuheitið á verkefninu verið Blu.
„Blu er dregið af bláa kassanum í
merki Radisson SAS. Nafnið minnir
á söguna, þá virðingu og velgengni
sem Radisson SAS hótelin hafa not-
ið frá upphafi. Breytingin er ein-
göngu bundin við nafnið og merkið,
engar breytingar verða gerðar á
hönnun, starfsemi eða þjónustu-
framboði hótelanna.“
Hótelin heita nú
Radisson Blu AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Ný sending
Póstsendum
www.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141
Full búð af
glæsilegri
vorvöru
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Nýjar vörur
Svörtu buxurnar
komnar,
kvart og síðar. Str. 38-56
VERÐHRUN
Verslunin hættir rekstri
Síðustu dagar útsölunnar
Opið virka daga 13-18
Lokað laugard.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
LÉTTAR STUTTKÁPUR
STREYMA INN
Aðhaldsundirföt - Ný sending
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur - Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355 - www.selena.is
vera • Laugavegi 49
Sími 552 2020
Nýjar vörur