Morgunblaðið - 25.02.2010, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Íslendingar ættu að bjóða skamm-arlegu einelti birginn,“ segir í
fyrirsögn á dálki eftir John Kay,
prófessor við
London School of
Economics, í
blaðinu Financial
Times í gær. Þar
segir Kay að þeg-
ar íslensku bank-
arnir fóru á
hausinn hefði því
í samræmi við
reglurnar verið
horft til hlut-
aðeigandi tryggingasjóðs inni-
stæðueigenda um bætur: „Í regl-
unum gleymdist bara að gera ráð
fyrir því að tryggingakerfið hefði
burði til að greiða slíkar bætur.
Innan kerfisins á Íslandi var sáralít-
ill forði og sjóðurinn starfaði í
gjaldþrota fjármálakerfi.“
Kay segir að fyrst peningarnirvoru ekki til hafi menn bæði á
Íslandi og Bretlandi snúið sér að
eina mögulega greiðandanum: eig-
in skattborgurum. Bretar hefðu
getað falið þessar aðgerðir vegna
þess að á Bretlandi dreifðist kostn-
aðurinn á 56 milljónir manna, en
það hafi ekki verið hægt á Íslandi
vegna þess að þar búi aðeins 320
þúsund manns. Kay skrifar: „Sú
fullyrðing að innistæðueigendur í
Kaupþingi og Landsbanka eigi
kröfu á venjulegt fólk, sem var of
varkárt til að leggja þar inn fé, eða
átti ekki peninga til þess, hefur litla
réttlætingu eða lagalega stoð.“
Svo bætir Kay við: „Réttlætingokkar fyrir að níðast á Íslend-
ingum er réttlæting allra yfir-
gangsseggja: við gerum það af því
að við getum það. Eða af því að við
héldum að við gætum það. Nú hafa
Íslendingar aftur frumkvæðið. Ef
þjóðaratkvæðið 6. mars fer fram
mun almenningur í fyrsta sinn fá
tækifæri til hafna þeirri kröfu að
hann axli fjárhagslega ábyrgð á
mistökum banka og bankamanna.
Sá viðburður mun breyta leikregl-
unum og því eru Bretar og Hollend-
ingar sestir að samningaborðinu.
Við ættum að skammast okkar.“
John Kay
Íslendingar bjóði einelti birginn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -1 snjókoma Lúxemborg 7 þrumuveður Algarve 19 skýjað
Bolungarvík -4 snjókoma Brussel 10 skýjað Madríd 11 skýjað
Akureyri -5 alskýjað Dublin 5 skýjað Barcelona 18 léttskýjað
Egilsstaðir -6 alskýjað Glasgow 2 skúrir Mallorca 17 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -2 alskýjað London 10 léttskýjað Róm 14 léttskýjað
Nuuk -2 skýjað París 11 skýjað Aþena 15 léttskýjað
Þórshöfn 1 heiðskírt Amsterdam 9 skýjað Winnipeg -19 heiðskírt
Ósló -13 heiðskírt Hamborg 0 skýjað Montreal 1 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 skýjað Berlín 1 þoka New York 3 alskýjað
Stokkhólmur -4 heiðskírt Vín 9 skýjað Chicago -4 snjókoma
Helsinki -12 léttskýjað Moskva 2 alskýjað Orlando 16 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
25. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.28 3,3 10.02 1,1 16.07 3,1 22.18 0,9 8:49 18:33
ÍSAFJÖRÐUR 5.26 1,9 12.06 0,5 18.07 1,7 9:01 18:32
SIGLUFJÖRÐUR 1.06 0,6 7.27 1,2 14.05 0,3 20.37 1,1 8:44 18:14
DJÚPIVOGUR 0.35 1,6 6.58 0,7 12.58 1,4 19.04 0,4 8:21 18:01
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Austan og norðaustan 8-15
m/s, en hægari NA-lands. Snjó-
koma S- og SA-lands, en ann-
ars víða él. Frost 3 til 15 stig,
kaldast til landsins nyrðra.
Á laugardag og sunnudag
Austlæg átt, víða 5-10 m/s og
ofankoma með köflum víða um
land. Frost 0 til 8 stig, minnst
við suðurströndina.
Á mánudag og þriðjudag
Suðaustlæg átt og snjókoma
eða slydda SA-lands, en annars
úrkomulítið. Heldur hlýnandi.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustan 10-15 m/s á Vest-
fjarðakjálkanum, en annars 5-
10 m/s. Snjókoma eða élja-
gangur víðast hvar á landinu.
Frost 2 til 13 stig, kaldast til
landsins NA-lands.
Eftir Matthías Árna Ingimarsson
UNDANFARIN tvö ár hefur Góð-
gerðarráð Verzlunarskóla Íslands
staðið fyrir söfnunarátaki í skól-
anum í svokallaðri góðgerðaviku. Á
sínu fyrsta ári stóð nefndin fyrir
byggingu skóla í Úganda í samvinnu
við ABC barnahjálp og hlaut hann
nafnið Litli-Verzlunarskólinn. Einn-
ig hefur verið safnað fyrir vatns-
brunni í Gíneu-Bissá og hér á landi
fékk Mæðrastyrksnefnd styrk fyrir
jólin. Í ár mun nefndin halda áfram
uppbyggingu Litla-Verzló en á
svæði skólans mun aðeins vera einn
vatnsbrunnur og er fyrirhugað að
bæta úr því. Nefndin hefur farið
ýmsar leiðir í söfnun sinni. Stóð hún
til dæmis fyrir íssölu í skólanum og
var einnig efnt til knattleiks þar sem
lið skólans atti kappi við stjörnulið
sem samanstóð af landsþekktum
einstaklingum á borð við Ingó Veð-
urguð, Björgólf Takefusa og Loga
Bergmann Eiðsson. Góðgerðarvikan
nær svo hámarki í dag þegar áskor-
endadagurinn fer fram. Meðal
áskorendanna má nefna hóp drengja
sem munu labba í skólann ofan af
Akranesi, kennari mun klæðast bý-
flugubúningi og einn nemandi mun
syngja allt í heilan dag. Það ættu því
að geta safnast dágóðar upphæðir í
vikunni, en það sem af er árinu hafa
safnast 600 þúsund krónur til styrkt-
ar Litla-Verzló.
Litli-Verzló í Úganda fær nýjan brunn
Áskorendadagurinn hefst í dag
Hafa þegar safnað 600 þúsund kr.
Ljósmynd/Verzlunarskóli Íslands
Glaðir Nemar Litla-Verzló í Úganda.
Milljónaútdráttur
Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
2. flokkur, 24. febrúar 2010
Kr. 1.000.000,-
1319 B
4627 B
10160 F
17770 H
21014 B
23542 E
31803 H
52739 F
56269 G
57456 E
TIL HAMINGJU
VINNINGSHAFAR