Morgunblaðið - 25.02.2010, Page 14

Morgunblaðið - 25.02.2010, Page 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 ÓLAFUR Þ. Stephensen, fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðsins og 24 stunda, hefur verið ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins. Hann tekur við starf- inu af Jóni Kaldal sem lét af störfum í fyrradag. Jón hefur verið ritstjóri Fréttablaðsins frá árinu 2007. Auk þess að sinna ritstjórn Frétta- blaðsins mun Ólafur vinna að því að auka samstarf fréttaritstjórna 365 miðla, samkvæmt fréttatilkynningu. „Ég lít á starfið hjá Fréttablaðinu sem frábært tækifæri til að vinna áfram við blaðamennsku. Frétta- blaðið á mikil sóknarfæri á blaða- markaðnum að mínu mati og ég hlakka til að taka þátt í að nýta þau tækifæri,“ segir Ólafur Þ. Steph- ensen, í fréttatilkynningu frá 365 miðlum. Var rekinn „Ég var rekinn,“ sagði Jón Kaldal, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins þegar hann var spurður út í starfs- lok sín hjá Fréttablaðinu. Hann sagði að uppsögnin hefði ekki átt sér neinn aðdraganda. „Ég kveð Fréttablaðið með sökn- uði, það er frábær vinnustaður. Ég tel mig skila góðu búi. Við höfum aldrei verið með meiri lestur á okk- ar kjarnasvæði en í síðustu könnun og frábæran lestur á landsvísu,“ sagði Jón og benti á að eintökum hafi fækkað og dreifingu breytt. Ritstjóraskipti á Fréttablaðinu Ólafur Stephensen Jón Kaldal KARL á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 23. mars að kröfu lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu, var handtekinn um helgina en þá hafði hann bæði brot- ist inn og framið rán í verslun í austurborginni þar sem hann ógn- aði afgreiðslustúlku. Síbrotamaður í gæsluvarðhald „ÞETTA er ekki í neinni biðstöðu og það er ekkert sem heitir að kreppan hafi stoppað eitt eða neitt, ég kann- ast ekki við það frá því ég kom í ráðu- neytið,“ segir Álfheiður Ingadóttir heilbrigðismálaráðherra. Greint var frá því í Morgunblaðinu fyrr í vikunni að enn hafa ekki verið innleiddar þær nýju bólusetningar sem mælt var með að komið yrði á í skýrslu sem rannsóknarhópur um bólusetningar vann fyrir heilbrigð- isráðuneytið árið 2008. Meðal þess sem áætlað hefur verið að innleiða er bólusetning við pneumokokkum hjá ungbörnum, sem valda m.a. lungnabólgu og eyrnabólgu og við HPV veiru sem veldur leghálskrabbameini. Landlæknir tjáði Morgunblaðinu þá von sína að ekki drægist mikið lengur að bólusetningarnar yrðu innleiddar, sérstaklega gegn pneumokokkkum. Að sögn Álfheiðar hafa bólusetningarnar alls ekki verið settar á ís heldur er verið að skoða málið frá öllum hliðum. „Við höfum ekki peninga í þetta frekar en annað en ég legg áherslu á að búa í haginn til framtíðar þannig að þegar við komumst út úr þessum efnahags- þrengingum þá séum við búin að vinna heimavinnuna okkar, og það er það sem við erum að gera.“ Þegar skýrslan kom út var áætlað að bólusetning í hverjum flokki fyrir sig myndi kosta um 60 milljónir. Það var miðað við verðlag á miðju 2008 og að sögn Álfheiðar má því áætla að kostnaður sé nær 100 milljónum nú, en hann hefur ekki verið endurreikn- aður eftir hrun. Þá standi til að gera athugun á þjóðhagslegri hagkvæmni þess að taka upp slíkar bólusetning- ar. „En ég held að flestum sé það ljóst, sérstaklega hvað varðar eyrna- bólgur hjá börnum, að það er gríð- arlega hagkvæmt ef hægt er að létta þeirri áþján af börnum og af heim- ilum því fólk er frá vinnu endalaust vegna þessa.“ una@mbl.is Innleiðing bólusetn- inga ekki í biðstöðu Nú er búið í hag- inn fyrir framtíð- ina segir ráðherra Morgunblaðið/Ásdís Börn Bólusetning við pneumokokkum tíðkast víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is RÍKIÐ hefur ákveðið að fela Eim- skip að annast rekstur Vestmanna- eyjaferjunnar Herjólfs eftir að sigl- ingar hefjast frá nýrri Landeyja- höfn í sumar, og fram á haust 2011. Ríkið taldi sig ekki hafa stöðu til að semja við aðra eða bjóða rekst- urinn út við þær breytingar sem verða í sumar þar sem engin upp- sagnarákvæði eru í núverandi samningi sem rennur út um ára- mót. Eyjamenn hafa verið að ýta á eftir því að gengið verði frá áætlun og gjaldskrá fyrir Herjólf frá og með 1. júlí þegar siglingar hefjast frá Landeyjahöfn. Dráttur á frá- gangi mála hefur hamlað þróun- arstarfi og sölu ferða til Eyja. Þá óskaði bæjarstjórnin eftir því að taka rekstur skipsins að sér og koma þannig með beinum hætti að uppbyggingu þjónustunnar í upp- hafi. Engin ákvæði um uppsögn „Sett hefur verið upp beinagrind að samningum við Eimskip og ver- ið að útfæra ýmis atriði í viðauka- samningi,“ segir Kristján Möller samgönguráðherra. Hann vekur at- hygli á því að í núverandi samningi við Eimskip sem rennur út um ára- mót séu engin ákvæði um uppsögn, þótt siglt verði frá nýrri höfn. Hins vegar séu heimildir til að fram- lengja samninginn. „Samnings- staðan er ekki góð því það hefði kostað mikla peninga að rifta nú- verandi samningi,“ segir Kristján. „Við teljum mikilvægt að þeir sem eru að byrja að sigla þessa nýju leið séu með reynslu af skip- inu. Aðalatriðið er þó að með þess- um samningi fáum við þá reynslu sem við þurfum af rekstri skipsins og getum nýtt við útboð á rekstr- inum á næsta ári,“ segir Kristján. Hann segir að samningurinn geri ráð fyrir því að ríkið fái aðgang að öllum upplýsingum um tekjur og út- gjöld í þessum tilraunarekstri. Vildu koma að uppbyggingunni „Við vorum í viðræðum við Vega- gerðina um að taka við ferjunni og kynntum fyrir þeim ákveðið rekstr- arlíkan sem gerði ráð fyrir því að farnar yrðu að lágmarki fjórar ferð- ir á dag allt árið og bætt við ferðum á álagstímum. Þetta treystum við okkur til að gera fyrir það fjármagn sem ríkið leggur til. Þess vegna er- um við ósáttir við að ferðum verður fækkað um 100 frá því sem við lögð- um til,“ segir Elliði Vignisson, bæj- arstjóri í Vestmannaeyjum. „Við hefðum gjarnan viljað koma að stjórnun á þessari mikilvægu samgöngubót, sérstaklega fyrsta ár- ið, og teljum vandséð hvers vegna samgönguyfirvöld vilja ekki hleypa okkur að,“ segir Elliði. „Við vissum af áhuga Eyjamanna og fleiri aðila á þessu verkefni. Ég vil færa sem flest verkefni heim í hérað en tímapunkturinn nú var ekki góður, við höfðum ekki stöðu til þess vegna núverandi samninga. Þeir geta boðið í þetta þegar rekst- urinn verður boðinn út,“ segir Krist- ján Möller. Hann segir ljóst að sú ferðatíðni sem boðið verður upp á muni kosta ríkið meira en núverandi rekstur Herjólfs en segir ekki hægt að upp- lýsa um tölur fyrr en gengið hafi verið frá samningum sem hann von- ast til að verði í næstu viku. „Herjólfur er að fara úr því að vera lágmarksþjónusta yfir í al- þjóðlega ferðaþjónstu. Taka verður mið af því,“ segir Elliði og bætir við: „Þetta verður stórkostleg sam- göngubót og við munum leggja okk- ar af mörkum til þess að vel takist til.“ Morgunblaðið/Sigurgeir Undir Heimakletti Herjólfur mun sigla örar til Landeyja en Þorlákshafnar enda leiðin mun styttri. Eimskip mun sigla Herjólfi frá nýrri Landeyjahöfn  Lágmarksþjónusta að breytast í alþjóðlega ferðaþjónustu, segir bæjarstjórinn Herjólfur mun fara 1.360 ferðir á ári eftir að Landeyjahöfn kemst í gagnið. Það samsvarar um 3,7 ferðum að meðaltali á dag. Tíðnin getur breyst ef fjöldi farþega breytist frá áætl- un. Til samanburðar má geta þess að við útboð á nýrri og hagkvæmari ferju, sem raunar var hætt við að smíða, var mið- að við fimm ferðir á dag. Í samningum við Eimskip er miðað við að fargjald fyrir full- orðinn farþega verði þúsund krónur og fimmtán hundruð fyr- ir bílinn. Eftir er að útfæra af- sláttarkjör. Geta má þess að við útboð á nýrri ferju var miðað við að fargjaldið yrði 500 krónur á farþega og þúsund krónur á bíl. Þrjár til fjórar ferðir á dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.