Morgunblaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 þér upp í hesthús, kemba hestunum, gefa þeim og jafnvel prófa að fara á bak. Þú varst vandvirkur í því sem þú tókst þér fyrir hendur en tókst líka þinn tíma í hlutina sem dæmi má nefna skrautskriftina hjá þér. Það var ótrúlegt hvað þú gast skrifað smátt og fallega en það gat tekið sinn tíma og það þýddi ekkert að reyna að reka á eftir þér. Þú varst bæði algjör grúskari og safnari og það mátti helst engu henda því þú þurftir þinn tíma í að skoða og meta hlutina. Þú talaðir iðulega við mig á norsku, líklega bæði til að við- halda henni sjálfur sem og að kenna mér grunninn. Þú kallaðir mig sjaldan mínu rétta nafni heldur snerir því allt- af við og kallaðir mig „Máríerlu“ eftir fuglinum. Til að byrja með þótti mér það skrítið en fór smám saman að venjast því og þykja vænt um það. Þú varst alltaf tilbúinn að skutla mér þegar á þurfti að halda og oftar en ekki fórstu bara í slopp yfir nátt- fötin, skelltir á þig hattinum og varst þá tilbúinn. Þótt það færi ekki mikið fyrir því þá varstu húmoristi og stund- um sá maður bregða fyrir glotti þegar þú hélst að maður sæi ekki til. Í gegnum árin hef ég eytt ófáum helgum hjá ykkur ömmu í Laufbrekk- unni í góðu yfirlæti og á því margar góðar minningar frá þeim tíma. Oft sátum við þrjú saman og horfðum á þætti eins og Taggart, Derrick eða Matlock og mauluðum uppáhalds- súkkulaðið þitt, Crunch-súkkulaði í bláa bréfinu. Ég fór líka stundum á flakk með ykkur og á einu ferðalagi okkar saman kennduð þið amma mér vísuna ap., jún., sept., nóv. 30 hver o.s.frv. til að muna hversu margir dag- ar væru í hverjum mánuði. Elsku afi minn, ég mun alltaf geyma minningar um þig með mér. Ég er alveg viss um að amma Sólveig tekur vel á móti þér. Hvíl í friði. Erla María og fjölskylda. Guðmundur Örn var einn þeirra manna sem stóðu að stofnun Skóg- ræktarfélgs Kópavogs í september 1969. Guðmundur var lærður Skóg- fræðingur, en þegar hann kom heim frá námi var ekki auðvelt að fá vinnu við skógrækt á Íslandi. En áhugi hans og margra annarra á því að efla skóg- rækt hér á landi varð til þess að haust- ið 1969 komu 60 manns saman í Kópa- vogi og stofnu Skógræktarfélg Kópavogs. Guðmundur varð fyrst for- maður félagsins og starfsmaður þess 1972-1975 og kom m.a. upp svonefnd- um Svörtuskógum sem voru staðsett- ir á móti bænum Smárahvammi. Mikil barátta var háð um að koma upp skógrækt innan bæjarmarka Kópavogs, en bæjarfélagið átti engin lönd til að ráðstafa til þeirra nota á þessum tíma. Á árinu 1972 bauðst skógræktarfélögum Kópavogs, Kjós- arhrepps, Kjalaness og Mosfellsbæj- ar að kaupa jörðina Fossá í Kjós og hefja þar skógrækt. Guðmundur Örn var mikill áhugamaður unm þetta verkefni og naut Skógræktarfélag Kópavogs stuðnings bæjaryfirvalda til þess að festa kaup á jörðinni. Skóg- rækt var hafin á Fossá 1973 undir um- sjón Guðmundar en frá þeim tíma hef- ur Vinnuskóli Kópavogs gróðursett árlega á Fossá. Skógræktarfélgið hef- ur nú árlega tekjur af því að selja fé- lagsmönnum og Kópavogsbæ jólatré frá Fossá. Guðmundur var formaður félagsins til ársins 1972. Við skógræktarfélagsmenn erum Guðmundi þakklát fyrir hans frum- kvöðlastörf fyrir félagið og í dag má sjá í Kópavogi afrakstur af starfi fé- lagsmanna í myndarlegum skógar- reitum sem víða prýða bæinn. Guð- mundur var heiðurfélagi í Skógræktarfélagi Kópavogs og þegar félagið hélt aðalfund Skógræktar- félags Íslands í Kópavogi 2004 var hann gerður að heiðursfélaga Skóg- ræktarfélags Íslands. Þau Guðmundur og Sólveig, kona hans, vorum miklir áhugamenn um norræna sammvinnu og voru virkir félagar í Norræna félaginu í Kópa- vogi. Það var lengi regla að fulltrúi Norræna félagsins færi í vinabæjar- heimsóknir á vegum Kópavogsbæjar. Fóru Sólveig og Guðmundur í eina slíka ferð til Þrándheims í Noregi 1986 ásamt mér og Auði, konu minni. Þar kynntist ég þeim hjónum ágæt- lega og naut Guðmundur sín vel í þeirri ferð. Hann nýtti tímann til að skoða norska skóga og sagði okkur frá því hve mikil gróska væri í þeim. Fyrir hönd Skógræktarfélgs Kópavogs votta ég börnum Guð- mundar, barnabörnum og barna- barnabörnum samúð við fráfall hans. Blessuð sé minning hans. Bragi Michaelsson, formaður Skógræktarfélags Kópavogs. Fallinn er frá tæplega áttræður, Guðmundur Örn Árnason, skógfræð- ingur í Kópavogi. Þar með fækkar enn frekar í hópi þeirra höfðingja sem settu svip sinn á uppvöxt okkar systkinanna í Skipasundi, barna Alexíusar og Ingibjargar, sem um langa hríð voru vinir og samferða- menn þeirra hjóna, Guðmundar Arn- ar og konu hans Sólveigar Runólfs- dóttur. Margs er að minnast og það má segja að Guðmundur og Sólveig hafi aldrei verið langt undan alla okkar bernsku. Þá var tíðarandinn annar en nú, ekki var verið að fylgja börnunum neitt sérstaklega eftir í þeirra tóm- stundum, heldur voru þau tekin með í öll þau verk sem hinir fullorðnu þurftu að sinna. Gilti það einu hvort tína þyrfti fræ af trjám til frekari ræktunar, fara til Grindavíkur og setja niður kartöflur, sem Guðmund- ur kallaði reyndar aldrei neitt annað en jarðepli eða lesa af mælum í gömlu segulmælingastöðinni í Leirvog- stungum. Allir þessir leiðangrar urðu að hinum eftirminnilegustu ævin- týraferðum í fernra dyra Fiatnum hans Guðmundar, sem virtist rúma endalaust af farþegum, stórum og smáum. Ómegðinni var alltaf boðið með og var þetta hin besta tilbreyting fyrir okkur, þó að það kæmi auðvitað líka fyrir að okkur þættu túrarnir dragast á langinn. Hann sá til þess að upp- fræða okkur börnin í leiðinni svo allir höfðu gagn og gaman af. Við innbyrt- um fyrir aldur fram alls kyns fróðleik um alaskaöspina, sitkagreni og raf- tafurur. Ævistarf Guðmundar liggur að mestu leyti í skógræktinni. Hann var meðal fyrstu Íslendinga sem mennt- aði sig sérstaklega í þeim fræðum. Bjuggu þau hjónin um árabil í Noregi og minntust ætíð tímans þar með hlý- hug. Hann átti síðar drjúgan þátt í uppbyggingu skógræktarinnar á Mó- gilsá og í landi Skógræktarfélags Kópavogs á Fossá í Kjós. Eru það hvort tveggja verkefni sem hafa vaxið og dafnað í áranna rás. Þegar horft er yfir farinn veg tel ég að Guðmundur hafi verið gæfumaður. Hann eignaðist tryggan lífsförunaut og fimm mannvænleg börn. Frá þeim er kominn stór ættbogi gjörvilegra og samheldinna afkomenda sem hann var afskaplega stoltur af. Sama má segja um skógana sem hann ræktaði, þeir hafa gefið af sér og bera vott um framsýni og áræðni. Það er ekki svo lítið. Sólveig féll frá í desember 2005 og má segja að Guðmundur hafi ekki orðið samur eftir það. Heilsunni hrakaði ört og reyndi hann að halda heimilið þeirra í Laufbrekkunni, þó meira af vilja en mætti undir lokin. Hann kom við hjá mömmu í Skipa- sundinu svo lengi sem hann var þess megnugur og fylgdi Aðalheiður, dótt- ir hans, honum í síðustu heimsókn- irnar. Síðustu misserin naut hann góðrar umönnunar á hjúkrunarheimilinu í Sunnuhlíð. Löng samleið er á enda og vil ég fyrir hönd okkar systkinanna, móður okkar og fjölskyldna þakka órofa tryggð og velvild í gegnum árin. Mér er óhætt að fullyrða að þar bar aldrei skugga á. Kristín K. Alexíusdóttir. Kveðja Frá Lionsklúbbi Kópavogs Guðmundur Örn gekk snemma til liðs við klúbbinn okkar. Hann tók þátt í starfinu af lífi og sál. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn og leysti þau afbragðs vel af hendi. Við þökkum Guðmundi Erni störf hans á liðnum árum og sendum fjölskyldu hans okkar inni- legustu samúðarkveðjur. F.h. Lionsklúbbs Kópavogs, Pétur Sveinsson. ✝ SteingrímurÞórðarson fædd- ist á Ljósalandi í Vopnafirði 23. apríl 1922. Hann lést í Reykjavík 16. febrúar 2010. Foreldrar hans voru Albína Jóns- dóttir, fædd á Hóli í Kelduhverfi 17. júní 1874, d. 9. maí 1966, og Þórður Jónasson, bóndi, frá Fossi í Vesturhópi, f. 13. júní 1867, d. 3. mars 1938. Systkini Steingríms voru: 1) Jó- hanna, f. 19. janúar 1900, d. 10. des- ember 1969. 2) Jónas, f. 21. janúar 1901, d. 31. desember 1993. 3) María, f. 27. september 1902, d. 21. júní 1934. 4) Ingibjörg, f. 27. nóv- ember 1904, d. 1. júní 1982. 5) Hólmfríður, f. 28. janúar 1907, d. 24. júlí 1999. 6) Sigríður, f. 19. apríl 1908, d. 8. maí 1997. 7) Guðrún, f. 3. október 1909, d. 3. september 1997. 8) Sigvaldi, f. 27. desember 1911, d. 16. apríl 1964. 9) Helgi, f. 24. októ- ber 1915, d. 9. júní 2006. 10) Guð- björg, f. 24. júlí 1918, d. 20. febrúar 2010. Steingrímur lauk gagnfræða- prófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1939 en tók síðan þátt í bú- rekstri á Ljósalandi ásamt móður sinni og bróður. Árið 1946 flutti hann til Reykjavíkur. Hann var starfsmaður Landsbankans frá 1946 til 1963. Hann var síðan í eigin rekstri frá 1963-1968, fyrst með söluturn á Bræðraborgarstíg og síðar með heildverslunina Fjarval. Hann var starfsmaður Sparisjóðs Alþýðu frá 1968-1971 og síðan aðal- bókari Alþýðubankans frá 1971- 1984 er hann fór á eftirlaun. Eftir það tók hann að sér ýmis bókhalds- verkefni um árabil. Steingrímur lærði leiklist hjá Lárusi Pálssyni og tók þátt í sýningum Leikfélags Reykjavíkur. Hann lék m.a. lyk- ilhlutverk í umdeildri kvikmynd, Ágirnd eftir Óskar Gíslason. Helsta áhugamál Steingríms var tónlistin en hann lærði á orgel sem ungling- ur á Ljósalandi. Hann hafði gríð- arlegan áhuga og þekkingu á klass- ískri tónlist, einkum óperum. Hann safnaði óperutónlist og spilaði sér til ánægju og fylgdist vel með öllum nýjungum í óperuheiminum. Hann sá til þess að börnin lærðu á hljóð- færi og ræktaði tónlistaráhuga barnabarna sinna. Útför Steingríms fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 25. febrúar 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Steingrímur kvæntist hinn 27. febrúar 1960 Höllu Eiríksdóttur, f. 8. júlí 1924 á Eskifirði. For- eldrar hennar voru Eiríkur Bjarnason framkvæmdastjóri, f. 21. mars 1895, d. 8. september 1977, og Else Andrea Figved, f. 27. júlí 1901, d. 15. mars 1991. Börn Höllu og Steingríms eru: 1) Eiríkur pró- fessor, f. 19. júlí 1960. Kona hans er Sigríður Sigurjóns- dóttir dósent, f. 27. september 1960. Dætur þeirra eru Inga Guð- rún, f. 14. október 1997, og Halla, f. 18. júní 2003. 2) Þórður arkitekt, f. 7. október 1961. Kona hans er Guð- björg Eysteinsdóttir tölvunarfræð- ingur, f. 7. október 1961. Dætur þeirra eru Halla, f. 11. júní 1988, og Gríma, f. 14. nóvember 1990. 3) Elsa Albína tannlæknir, f. 5. ágúst 1967, gift Hans Guttormi Þormar líffræðingi, f. 22. janúar 1970. Börn þeirra eru: Eiríkur Andri, f. 24. júní 1996, og Steinunn María, f. 21. nóv- ember 2000. Þegar ég kom inn í tengdafjöl- skyldu mína vann Steingrímur í Al- þýðubankanum. Árið 1984 gat hann látið af störfum og gerði það. Mikið álag var á honum í bankanum, eink- um í kringum Alþýðubankamálið svokallaða enda var hann aðalbók- ari bankans. Fjölskyldan sá Stein- grím lítið á því tímabili. Hann kom aðeins heim yfir blánóttina og vann allar helgar. Ekki mátti greiða hon- um yfirvinnu en Steingrími, eins og mörgum af hans kynslóð, fannst mestu skipta að skila sínu verki vel. Að lokum bauð bankinn honum og tengdamóður minni til Spánar og var það fyrsta utanlandsferð þeirra hjóna saman. Þau fóru síðar í vetr- arferðir til Kanaríeyja, borgaferðir til Evrópu og heimsóttu m.a. synina og fjölskyldur þeirra þegar þeir voru við nám í Bandaríkjunum og Finnlandi. Þessara ferða nutu þau mjög. Eftir að Steingrímur lét af störf- um í Alþýðubankanum tók hann að sér ýmis bókhaldsverkefni en hóf einnig að sinna aðaláhugamáli sínu, tónlistinni. Hann var mikill óperu- unnandi og hafði gríðarlega þekk- ingu á klassískri tónlist og flytjend- um hennar. Þegar sænski tónlist- arþátturinn, Kontrapunktur, var í sjónvarpinu var hann gjarnan með svör á reiðum höndum á undan tón- listarmönnunum í þættinum. Á unga aldri lærði Steingrímur leik- list og tók þátt í sýningum Leik- félags Reykjavíkur. Á seinni árum vildi hann lítið kannast við leiklist- arferil sinn enda var hann dulur maður og ekki mikið fyrir kastljós- ið. Steingrímur var einnig lipur teiknari og hafði mikinn áhuga á málaralist og húsagerðarlist en einn kunnasti arkitekt þjóðarinnar, Sigvaldi Thordarson, var bróðir hans. Þá hafði hann mikla ánægju af stangveiði, einkum í Þingvalla- vatni og heiðar-vötnunum í heima- högunum eystra, og hann og dóttir hans fóru gjarnan upp í Borgarfjörð á veturna og veiddu þar í gegnum ís. Steingrímur las mikið og því var það mikið áfall árið 1990 þegar hann tók að missa sjón. Læknar töldu að hann yrði blindur innan fárra ára en Steingrímur hélt sjón alla ævi þó að hann sæi orðið illa síðustu árin. Hann las blöðin með stækkunar- gleri, fylgdist með þjóðmálunum og hafði á þeim lærðar skoðanir. Þær voru ófáar ferðirnar sem ég fór fyr- ir hann í Bóksölu stúdenta til að út- vega honum erlendar bækur um málefni líðandi stundar. Steingrím- ur var skarpgreindur og skýr til síð- asta dags. Sem dæmi má nefna að þegar honum var sagt nafnið á vin- konu sex ára sonardóttur hans rétt fyrir andlátið áttaði hann sig strax á því hver föðurafi hennar var en hann hafði Steingrímur þekkt í Vopnafirði í gamla daga. Síðustu árin hugsaði Steingrímur um tengdamóður mína sem orðin er heilsuveil. Þegar hann dó hafði hann ekki farið út úr íbúðinni þeirra í Árbæ í rúm tvö ár. Þótt hann væri orðinn mjög sjóndapur, með ónýtar mjaðmir og hjartveikur vildi hann bjarga sér sjálfur og þáði helst enga hjálp. Viðkvæðið var: „Hafðu engar áhyggjur. Við björg- um okkur.“ Þannig tókst Stein- grími að halda sjálfstæði sínu til hinsta dags. Að lokum þakka ég tengdaföður mínum samfylgdina. Sigríður Sigurjónsdóttir. Í annríki hversdagsins safnast í huga manns minningar þó svo að maður taki ekki endilega eftir því. Það er ekki fyrr en við fráfall ein- hvers sem maður virkilega áttar sig á því hversu verðmætt það er að hafa notið margra góðra samveru- stunda og safnað ómeðvitað minn- ingum um þær. Ég kynntist Steingrími fyrst fyr- ir nákvæmlega 18 árum sem föður stúlkunnar sem síðar varð eigin- kona mín. Hálfu ári seinna vorum við farin að búa saman í kjallara- íbúð í sama stigagangi og Stein- grímur og Halla bjuggu í. Mér var frá fyrsta degi tekið eins og ég hefði alltaf verið hluti af fjölskyld- unni. Halla áttaði sig fljótt á því að hún þyrfti að elda svolítið meira en venjulega þegar mér var boðið í mat, á meðan Steingrímur áttaði sig á því að það var fremur auðvelt að fá strákinn til að æsa sig smá- vegis yfir einhverju réttlætis- eða ranglætismáli sem var í umræðunni í það og það skiptið. Í gegnum tíð- ina ræddum við óteljandi oft saman um málefni líðandi stundar, stund- um sammála og stundum ósammála eins og gengur og gerist. Af þess- um umræðum lærði ég ótrúlega margt og þá sérstaklega vegna þeirrar djúpu þekkingar sem Stein- grímur hafði á atburðum liðinnar aldar og hægt var að finna samsvör- un við í dag. Fram á síðasta dag fylgdist hann með allri þjóðfélags- umræðu og hafði skoðanir á flestum málum. Hann bar virðingu fyrir skoðunum annarra og vildi alltaf fá að heyra rökin fyrir þeim skoðun- um. Nú þegar þessi umræðuvett- vangur okkar er ekki lengur mögu- legur stend ég sjálfan mig að því að spyrja hvað hann Steingrímur hefði nú sagt við þessu eða hinu. Við ferðuðumst margoft saman þessi 18 ár, veiðiferðir til Þingvalla, bústaðaferðir til Vopnafjarðar og berjatínsluferðir um allar trissur. Á veturna var stundum farið að veiða í gegnum ís í Borgarfirði. Þá passaði Steingrímur sig á að klæða sig vel og vildi ná upp sem mestum hita áð- ur en farið var út á ísinn. Þannig er mér í fersku minni þegar Stein- grímur skellti sér fulldúðaður í kuldagalla inn í SAAB-inn, uppi í Árbæ í 10 stiga frosti, setti miðstöð- ina á heitt og í botn og keyrði þann- ig alla leið upp í Borgarfjörð. Áður en komið var á leiðarenda var ég kominn á stuttermabol og óskaði þess heitast að ég hefði tekið stutt- buxurnar með mér. Honum datt hins vegar ekki einu sinni í hug að taka af sér trefilinn. Sem afi barnanna var „afi Steini“ eins og hann var kallaður besti afi í heimi. Hjá honum fundu þau alltaf frið og ró, ís í frystinum og dreka- spólu í vídeótækið. Ekki var heldur verra að uppi í skáp var alltaf brjóstsykur, kandís eða Ópal. Þeg- ar Eiríkur, sonur okkar, varð eldri átti hann langar samræður við afa sinn um lífið í sveitinni í gamla daga og allt annað milli himins og jarðar. Afa Steina er sárt saknað en minn- ingarnar verða vandlega varðveitt- ar hjá okkur. Hans Guttormur. Steingrímur Þórðarson ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, STEFANÍU SIGURJÓNSDÓTTUR, Árskógum 8, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar 14G á Landspítalanum fyrir einstaka umönnun. Jón Guðnason, Guðni Jónsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Kristín Jónsdóttir, Gísli Vilhjálmsson, Gunnar Jónsson, Kolbrún Eiríksdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.