Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 31
ég var barn. Það var í raun og veru
ekki fyrr en ég flutti í Garðabæinn
með fjölskyldu minni 2004 að ég fór
að kynnast afa betur. Ég man þegar
Svanbjörn var skírður í febrúar 2005.
Mamma og pabbi báðu þá afa um að
vera skírnarvott, ásamt Sirru föður-
systur minni. Afi hélt á Svanbirni og
Sirra frænka stóð við hliðina á þeim til
að hægt væri nú að taka myndir af
þessum merkisviðburði. Stoltið og
gleðin skein úr augunum á afa og ég
fann það á mér að hann var ótrúlega
hamingjusamur með það að taka loks-
ins virkan þátt í lífi dóttur sinnar og
hennar fjölskyldu. Hann brosti nán-
ast í heilan hring karlinn.
Afi var með bíladellu á háu stigi. Ef
það var eitthvað sem hann vissi allt
um voru það bílar. Stuttu eftir að ég
keypti mér gamla bíldruslu kom afi í
kaffi og ég bað hann, sem stoltur bíl-
eigandi, að taka gripinn út. Honum
leist vel á þetta allt saman og sagði
mér frá hinu og þessu í sambandi við
bílinn. Síðan sagði hann „Já, það hef-
ur stundum verið vandamál með svis-
sinn í þessum bílum.“ Það leið nú ekki
langur tími þar til svissinn bilaði og ég
glotti út í annað og hugsaði með mér
að þar hefði afi haft rétt fyrir sér.
Síðastliðin jól áttum við fjölskyldan
yndislegt kvöld með afa, ömmu, Erlu
frænku og Bjössa afa. Við spiluðum
saman spil, það var mikið hlegið og
við borðuðum góðan mat. Það eru
svona stundir sem maður ber með
sér. Eins og ég sagði þá þekkti ég afa
kannski ekki eins vel og ég hefði vilj-
að. Þrátt fyrir það átti ég notalegar
stundir með honum undanfarin fimm
ár og ég þakka fyrir það. Það var ein-
hvern veginn þannig með hann afa að
þegar við hittumst fékk maður þétt-
ingsfast knús frá honum og svo brosti
hann einlæglega til manns og maður
sá á honum hvað honum þótti alveg
ofboðslega vænt um mann.
Fyrir hönd okkar systkinanna vil
ég biðja guð um að geyma afa og
þakka honum þær góðu stundir sem
við áttum með honum því þær eru
ómetanlegar.
Jóhanna Bárðardóttir.
Kynni okkar Sigga hófust fyrir
rúmum fjörutíu árum, þegar við hitt-
umst í forstofunni á Eyrarvegi 9, Sel-
fossi. Ég nýjasti meðlimur fjölskyld-
unnar var á leiðinni út, hann sem
fyrrverandi meðlimur þessarar sömu
fjölskyldu var kominn til að heim-
sækja lítinn son sinn og dvelja með
honum þennan sunnudagseftirmið-
dag. Satt að segja voru þessi fyrstu
kynni frekar á formlegum nótum, en
vinsamlegum. Það breyttist þó tiltölu-
lega fljótt og ekki síst vegna sameig-
inlegrar væntumþykju á þessum litla
dreng, sem var sonur hans og fóst-
ursonur minn. Seinna áttum við báðir
eftir að eignast aðra syni, en í huga
okkar beggja tengdust þeir í gegnum
Þorvald, hálfbróður sinn, á þann
furðulega hátt að þeir urðu allir að
strákunum okkar.
Við skiptumst jafnt og þétt á upp-
lýsingum um þessa stráka, glöddumst
yfir velgengni þeirra og reyndum að
styðja þá, þegar á móti blés. Saman
deildum við þeirri nöpru lífsreynslu
að missa Þorvald í blóma lífsins, en
það var eins og sá atburður sameinaði
hálfbræður hans ennþá betur í okkar
huga sem strákana okkar. Siggi var
tilfinningasamur og viðkvæmur mað-
ur sem þótti ósegjanlega vænt um
sína nánustu, hann var þó ekkert að
flíka þessu fyrir öðrum, sér til eins-
konar varnar hafði hann tamið sér þá
framkomu að sýna af sér kátínu í dag-
legri umgengni við aðra, hvernig sem
honum sjálfum leið í raun og veru.
Sigurður Þorvaldsson var sjald-
gæfur mannkostamaður af gamla
skólanum, hann var traustur vinur og
tryggðatröll þeim sem hann tók á
annað borð, hann var greiðasamur og
glaðsinna út á við, afbragðs bifvéla-
virki og einstaklega snyrtilegur í allri
umgengni við bíla og vélar. Þoldi illa
trassaskap og draslarahátt í kringum
sig og gat verið versti orðhákur þegar
honum ofbauð í því sambandi. Fyrir
bragðið gat það komið fyrir að hann
særði með orðum þá sem stóðu hon-
um nær. Hann var vel meðvitaður um
þennan framkomubrest sem hann
lagði að sér að bæta úr eftir bestu
getu. Með réttu má segja um Sigga að
í lífsbaráttunni var hann baráttujaxl
sem aldrei gafst upp. Keppnisskapið
var slíkt að mótlætið herti hann, en að
sama skapi veikti meðlætið.
Í síðasta samtali okkar gladdi það
mig hvað hann var orðinn sáttur með
líf sitt og horfði björtum augum til
framtíðarinnar. Hvorugan okkar gat
þá grunað að þetta væri okkar síðasta
samtal í þessu lífi. Að fá að kynnast
Sigurði Þorvaldssyni og njóta vináttu
hans í allan þennan tíma hefur mér
reynst ákaflega mikils virði og verður
seint fullþakkað.
Reynir Valgeirsson.
Vinarkveðja,
Horfinn er vinur handan yfir sundin,
hryggðin er sár, svo jafnvel tárast
grundin.
Þá er svo gott, um ævi megum
muna
milda og fagra geymum kynninguna.
Óvæntust ætíð kemur kveðjustundin
kærast í hjarta geymum minninguna.
(Vilhjálmur S.V. Sigurjónsson.)
Þú komst inn í líf mitt eins og hvirf-
ilvindur. Snerir mér í hringi og ert
farinn jafnskjótt og þú komst.
Takk fyrir stuttan en ólýsanlega
skemmtilegan, áhrifamikinn og
ógleymanlegan tíma í lífi mínu.
Takk fyrir vináttuna og dans-
kennsluna.
Hvíl í friði.
Þín vinkona,
Åse Gunn.
Það eru engin orð til til að lýsa
hversu mikið ég sakna þín, engillinn
minn.
Ljós og kærleikur.
Guð og allir englar alheimsins veri
með þér og þínum alla tíð.
Þinn lífstíðar vinur.
Vinátta, dýrmæt sem gull.
Þú átt hana og gefur í senn.
Vinátta, ekki í krónum talin.
Þú hvorki kaupir hana né selur.
Vinátta, sterk sem stál.
Þú getur ávallt leitað til hennar
hjá sönnum vini.
Vinátta, kærleikurinn í vinarmynd.
Þakkaðu guði fyrir þá bestu gjöf
sem þú færð og gefur.
(Sigrún Gunnarsdóttir.)
Ásta Kristbergsdóttir,
Valgerður Ármannsdóttir,
Tryggvi og Hafþór Níelsson.
Umræðan 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Raðauglýsingar
Félagslíf
Samkoma „Orðið í öndvegi”
í dag kl. 20. Gestir og ræðu-
menn: Kommandörshjónin
Guðrún og Carl Lydholm.
Þema: Kraftur til umbreytinga.
Kaffi Amen föstudag kl. 21.
Kaffi, spjall og lifandi tónlist.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13-18 og
laugardaga kl. 13-17.
Landsst. 6010022519 IX
I.O.O.F. 11 1902258 G.H.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Mannlíf og saga fyrir vestan
Mannlíf og saga fyrir vestan.
Öll 20 heftin á 9.800 kr. Póstsending
innifalin. Upplögð afmælisgjöf!
Vestfirska forlagið. jons@snerpa.is,
sími 456-8181.
Frá Bjargtöngum að Djúpi
Frá Bjargtöngum að Djúpi. Allar
10 fyrstu bækurnar á 9000 kr.
Póstsending innifalin. Upplögð
afmælisgjöf! Vestfirska forlagið.
jons@snerpa.is, sími 456-8181.
Gisting
Heitir pottar og þín vellíðan!
Grill og góð stemning. Frábær að-
staða fyrir hópa í Minniborgum. Hver
segir að ættarmót þurfi alltaf að vera
á sumrin?? Við sjáum um grillveisl-
una og morgunverð fyrir þinn hóp.
www.minniborgir.is
Spennandi gisting á góðum stað.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð 10.900
pakkinn með poka, strengjasetti
og stilliflautu. Kassagítartilboð:
Kr. 49.900 m. pickup, innbyggður
tuner, 10w magnari, poki, snúra,
ól, aukastrengjasett og eMedia
kennsluforrit í tölvu. Rafmagns-
gítarpakkar frá kr. 44.900.
Þjóðlagagítar frá 17.900.
Hljómborð frá kr. 8.900.
Trommusett kr. 79.900 með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125,
www.gitarinn.is
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði til leigu við
Lyngháls. 188 fm, tvennar stórar dyr.
Upplýsingar í síma 892 1186.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Postulín og kristall
gjafavörur í úrvali.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Hreinsa þakrennur
hreinsa veggjakrot, hreinsa lóðir,
vörudreifing, akstur, vélavinna og
ýmis smærri verk. Uppl. 847 8704
eða manninn@hotmail.com
Ýmislegt
Þægilegir dömuskór úr mjúku
leðri, skinnfóðraðir.
Teg. 1066-4. St. 37 - 41.
Verð: 16.575,-
Flottir dömuskór úr mjúku leðri,
skinnfóðraðir.
Teg. 1066-6. St. 37 - 41.
Verð: 16.575,-
Mjúkir og þægilegir vetrarskór
úr leðri, fóðraðir.
Teg. 1066-12. St. 37 - 41.
Verð: 17.500,-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
ATH - NÝJA VARAN STREYMIR
INN - SAMA GÓÐA VERÐIÐ
Teg. 84009 - mjög flottur og
haldgóður í CDE skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,
Teg. 1102 - flottur blúnduhaldari í CD
skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950,-
Teg. 3341 - haldgóður og
yndislegur í CD skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-
Laugavegi 178, sími 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bílar
Toyota Land Cruiser 120 VX,
3/2006 ekinn 79 þús. km. leður,
loftpúðafjöðrun, dráttarkrókur.
Aukadekk á álfelgum. Listaverð 6.770
þús. Tilboðsverð: 5.990 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Skráðu þinn bíl með mynd á
söluskrá okkar núna.
Ef það gerist þá gerist það hjá okkur.
Bílfang.is. Malarhöfði 2.
www.bilfang.is
Bón & þvottur
Vatnagörðum 16, sími 445-9090
Þvoum, bónum, djúphreinsum, þrífum
að innan alla bíla, eins sendibíla,
húsbíla og hjólhýsi, eins vélmössum
við matt lakk svo það verði sem nýtt.
Einnig bjóðum við hrað-gæðaþvott.
Öll vinna er handunnin. Opnum kl.
9.00 virka daga og 10.00 laugardaga.
Bonogtvottur.is - GSM 615-9090.
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Jeppadekk
Jeppadekk til sölu, Pro Comp X-Ter-
rain stærð 40x13.5x16 Radial. Ný og
ónotuð. Verð 300.000,- kr. gangurinn.
Uppl. í s. 845 2936 e. kl. 13.00.
Fjórhjóladekk
Fjórhjóladekk - Kenda Bear Klaw.
Fram 27x9x12. Aftur 27x12x12. Ný og
ónotuð. Verð 88.000,- kr. fyrir öll 4.
Uppl. í s. 845 2936 e. kl. 13.00.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Húsasmiður getur bætt við
verkum - Mikil reynsla í viðhaldi og
nýsmíði, tek einnig að mér ráðlegg-
ingar. Er einnig með vinnulyftur og
gröfu. Traustur verktaki. Holtagarður
ehf. sími 777-0002.
Bílar aukahlutir
Pallalok á Nissan Navara
Pallalok á Nissan Navara árg. 2006
og uppúr. Silfurlitað (auðvelt að
sprauta í annan lit). Nýtt og ónotað.
Verð: 180.000,- kr. Uppl. í s. 845 2936
e. kl. 13.00.