Morgunblaðið - 25.02.2010, Qupperneq 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
3
7
8 9 5
5 8 6 2
7 8 3 1
9 3 8
1 9
7 5 2 1
3 7 6
5 3
9 8 6
8 9 2
9 7 8 1
8 6
7 1
2 7 1
6 5 3 8
2 6
1 9 8
6 2 7
4 5 2 9
2 6
7 4 8
6
2
9 5 2 7 1
8 6 7 5
9 6 5 7 4 8 2 3 1
1 3 4 5 2 6 7 8 9
2 7 8 1 9 3 6 5 4
6 8 3 2 7 9 4 1 5
5 1 7 6 3 4 9 2 8
4 9 2 8 1 5 3 6 7
7 2 6 4 8 1 5 9 3
8 4 9 3 5 2 1 7 6
3 5 1 9 6 7 8 4 2
5 2 1 3 7 6 4 8 9
3 4 9 1 8 5 6 7 2
7 6 8 9 2 4 1 3 5
8 9 5 6 3 2 7 4 1
2 1 3 5 4 7 8 9 6
6 7 4 8 9 1 2 5 3
1 8 2 7 5 3 9 6 4
4 5 7 2 6 9 3 1 8
9 3 6 4 1 8 5 2 7
5 1 9 6 4 7 8 2 3
2 3 4 8 9 5 1 7 6
8 7 6 1 3 2 9 5 4
6 2 7 5 1 9 4 3 8
9 5 1 4 8 3 2 6 7
3 4 8 7 2 6 5 9 1
4 9 2 3 6 1 7 8 5
1 6 5 2 7 8 3 4 9
7 8 3 9 5 4 6 1 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 25. febrúar,
56. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Víkverji hefur oft velt fyrir sérsnertiþörf íþróttamanna.
Íþróttamenn geta verið ákaflega
innilegir, þeir fallast í faðma eftir að
hafa skorað mörk, slá saman lófum
(gef mér fimm mun það heita í slang-
urorðabókinni) eða hnefum. Snert-
ingin er vísindamönnum ekki óvið-
komandi frekar en annað mannanna
atferli og þeir hafa komist að því að
minnsta snerting getur haft mikið að
segja. Rannsóknir sýna að nemandi,
sem fær klapp á öxlina eða bakið frá
kennara sínum er tvöfalt líklegri til
að bjóða sig fram í bekknum en sá,
sem ekki fær klapp. Hlýleg snerting
hjá lækni gerir að verkum að sjúk-
lingurinn fær á tilfinninguna að
hann hafi fengið helmingi lengri
tíma hjá honum en hann fékk í raun.
Vísindamenn við Berkeley-háskóla í
Kaliforníu könnuðu hvort snerting
hefði áhrif á frammistöðu. Þeir tóku
fyrir öll körfuboltaliðin í NBA-
deildinni bandarísku og greindu
hverja snertingu, faðmlag og lófa-
samslátt í heilum leik hjá hverju liði.
Með fáum undantekningum var
snertigleðin mest hjá bestu liðunum
og minnst hjá liðunum á botninum.
Flestar snertingar mældust hjá
Boston Celtics og Los Angeles La-
kers, tveimur af toppliðunum, en
undirmálsliðin Sacramento Kings og
Charlotte Bobcats ráku lestina. Ke-
vin Garnett, lykilmaður hjá Boston
Celtics, reyndist eiga flestar snert-
ingar. Áður en 600 millisekúndur
eru liðnar frá því að hann hefur skot-
ið vítaskoti hefur hann snert fjóra
menn, að sögn eins af höfundum
rannsóknarinnar. Höfundarnir
ganga þó ekki svo langt að halda því
fram að rannsókn þeirra sýni að
snerting valdi betri frammistöðu,
frekari rannsóknir þurfi til þess.
x x x
Sagt er frá þessu í dagblaðinu TheNew York Times og fylgir sög-
unni að sé það rétt að snerting á
borð við að slá saman flötum lófum
geti haft áhrif á frammistöðu kunni
það að vera vegna þess að hlýleg
snerting leysi úr læðingi hormónið
oxýtósín, sem skapi trauststilfinn-
ingu, og dragi úr magni stresshorm-
ónsins kortisóls. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 baks, 8 mælir,
9 árnar, 10 ílát, 11 ræfla,
13 skerti, 15 æki, 18
hugsa um, 21 frístund,
22 ásynja, 23 gufa, 24
undanskilinn.
Lóðrétt | 2 ginnir, 3
mæta, 4 öls, 5 nói, 6
þvottasnúra, 7 ósoðni, 12
á víxl, 14 gubbi, 15
mögulegt, 16 tómar, 17
eitt sér, 18 hvell, 19 auð-
lindin, 20 forar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sigra, 4 gerði, 7 æfing, 8 getur, 9 agn, 11 ausa,
13 saur, 14 nisti, 15 skán, 17 fold, 20 err, 22 æskan, 23
Elmar, 24 tunna, 25 nærri.
Lóðrétt: 1 skæla, 2 glits, 3 agga, 4 gagn, 5 rotta, 6 iðrar,
10 gosar, 12 ann, 13 Sif, 15 stælt, 16 álkan, 18 ormar, 19
dormi, 20 enda, 21 regn.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Rbd7 8. De2
Dc7 9. 0-0-0 b5 10. g3 Be7 11. Bg2 Bb7
12. e5 dxe5 13. fxe5 Rd5 14. Bxe7 Rxc3
15. bxc3 Bxg2 16. Dxg2 Kxe7 17. Rc6+
Kf8 18. Hhf1 Rb6 19. Df3 He8
Staðan kom upp í A-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Heimamaðurinn Jan Smeets (2.657)
hafði hvítt gegn landa sínum Loek Van
Wely (2.641). 20. Rd8! He7 21. Hd6
Ke8 22. Hxb6! Dxd8 23. Hxa6 og svart-
ur gafst upp enda fátt til varnar.
Reykjavíkurskákmótið stendur nú yfir
í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefjast um-
ferðir kl. 15.30 nema á laugardaginn
27. febrúar en þá verða tvær umferðir,
annars vegar kl. 9 og hins vegar kl.
15.30. Mótinu lýkur miðvikudaginn 3.
mars næstkomandi.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hræringur.
Norður
♠109763
♥108
♦KD74
♣G9
Vestur Austur
♠G8 ♠K52
♥G9753 ♥K642
♦96 ♦10853
♣K742 ♣Á8
Suður
♠ÁD4
♥ÁD
♦ÁG2
♣D10653
Suður spilar 4♠.
Hjá BR á dögunum sat Vilhjálmur
Sigurðsson júníor í hundunum í vestur
og sá suður draga upp þæfða sagn-
spjaldið með einu laufi – sterku í þessu
tilfelli. Villi var utan hættu og sagði 1♠
á gosann annan. „Aðeins að hræra í
stöðunni,“ var skýringin. En N-S voru
ekki að spila við júníorinn í fyrsta sinn
og tókst að endurheimta spaðalitinn.
„Nú jæja, það heppnast ekki öll fúl,“
hugsaði Villi og kom út með hjarta.
Sagnhafi tók ♥ÁD, fór inn í borð á ♦K
og svínaði ♠D. Hrærivélin var enn í
lausagangi og Villi lét ♠G detta undir
drottninguna! Nú beit suður á agnið.
Hann spilaði laufi, Villi drap á kónginn
og fór út á tígli. Sagnhafi tók heima og
spilaði enn laufi. Austur átti þann slag,
gaf Villa tígulstungu, sem aftur spilaði
laufi og tryggði vörninni fjórða slaginn
á ♠K.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fjarlægðin gerir fjöllin blá og
mennina mikla. Drífðu í því að fá svar við
spurningu sem brennur á þér. Fjöl-
skyldan ætti að fara í frí saman.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Dagurinn í dag virðist klæð-
skerasaumaður til þess að njóta lífsins. Þú
ert með stórar áætlanir á prjónunum,
passaðu þig bara á að missa ekki sjónar á
því sem er þér kærast.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ekki láta hatursmenn slá þig út
af laginu. Ertu viss um að þú þekkir til-
finningar þínar? Bráðum rennur eitthvað
nýtt upp fyrir þér. Það er margt sem kall-
ar á athygli þína.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur heilbrigðan metnað til að
komast áfram og átt að leyfa honum að
leiða þig. Notaðu það þér til framdráttar í
dag. Nágranni kemur með góða hug-
mynd.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Kraftmiklar samræður við vin geta
valdið mikilvægum breytingum í lífi þínu.
Reyndu að halda aftur af þér í umhyggju
fyrir öðrum, þú skiptir mestu máli.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er gaman að kynnast nýjum
mönnum og málefnum og sjálfsagt að
vera opin/n fyrir hvoru tveggja. Spurðu
sjálfa/n þig allan daginn: Líður mér vel
með þetta?
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér gengur allt í haginn jafnvel svo
að þú getur varla stjórnað gleði þinni.
Óvæntur gestur kemur til landsins.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Njóttu athyglinnar sem þú
vekur en passaðu hjartað þitt. Einhver
reynir að stjórna þér, spyrntu við fótum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert eins og milli steins og
sleggju í ákveðnu máli. Vinir koma með
góða uppástungu sem snertir sumarið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að fá útrás fyrir sköp-
unarþrá þína svo þú kafnir ekki. Slakaðu
á og líttu á broslegu hliðarnar. Líttu til
þess sem vel hefur gengið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft að leggja þitt af mörk-
um til samstarfs á vinnustað og gæta þess
að verða ekki of stjórnsöm/samur. Stefnir
þú í rétta átt eða hefur þú sætt þig við
stefnumótun einhvers annars?
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er einhver spenna í loftinu.
Farðu eftir eigin sannfæringu og óttastu
ekki því heilladísirnar vaka yfir þér.
Stjörnuspá
25. febrúar 1930
Tíu alþingismenn voru dæmd-
ir í þingvíti, eða í launamissi í
einn dag, fyrir að mæta ekki á
þingfund. Í þessum hópi voru
nefndarmenn í fjárveitinga-
nefnd sem höfðu tafist uppi á
Hellisheiði þegar þeir voru að
skoða nýjan snjóbíl og reyna
kosti hans.
25. febrúar 1980
Aftakaveður gerði, einkum
vestanlands. Þetta var eitt hið
versta veður um árabil og
verulegt tjón varð á mann-
virkjum. Þrír rækjubátar fór-
ust við Vestfirði og með þeim
sex menn.
25. febrúar 1989
Kvikmyndin Kristnihald undir
Jökli var frumsýnd. Myndin er
byggð á sögu Halldórs Lax-
ness en dóttir hans, Guðný
Halldórsdóttir, var framleið-
andi.
25. febrúar 2000
Þrír létust og sjö slösuðust al-
varlega í árekstri jeppa og
rútu við Grundarhverfi á Kjal-
arnesi. Tugir annarra voru
fluttir á sjúkrahús.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Petra Camilla Björnsdóttir og
Perla Sævarsdóttir héldu tombólu
og söfnuðu 1.705 kr. sem þær færðu
Rauða krossi Íslands til styrktar
börnum á Haítí.
Hlutavelta
GUÐRÍÐUR Arnardóttir, jarðfræðingur og
bæjarfulltrúi í Kópavogi, er 40 ára í dag. Hún
ætlar að gera sér dagamun og fara út að borða
með eiginmanninum, Hafliða Þórðarsyni. Guð-
ríður segist aldrei hafa verið mikið fyrir að
halda upp á afmælið sitt. „Ég hélt til dæmis upp
á 31 árs afmælið mitt, en ekki þrítugsafmælið,
þetta fer bara allt eftir því hvernig ég er
stemmd“. Guðríður reiknar þó með að bjóða vin-
um og ættingjum í grillveislur í hollum með
hækkandi sól. „Það verða ábyggilega nokkrar
grillveislur í sumar“. Hún segist vera mikil
hestamanneskja og fékk afmælisgjöfina fyrirfram frá eiginmann-
inum, glæsilegan reiðhnakk. „Mínar bestu stundir eru á hestbaki og
ég reikna með að fara í góðan reiðtúr um helgina og jafnvel taka
tappa úr flösku“. Guðríður eyddi afmælinu sínu í fyrra á Kan-
aríeyjum, og hefði gjarnan viljað fara aftur núna en hætti við útaf
kreppnunni. „Ég hefði alveg viljað eyða afmælisdeginum á Klörub-
ar“, segir Guðríður og hlær við. Hún segist þó hafa fengið stór tíð-
indi nýlega. „Ég verð amma á árinu ef Guð lofar, og það er lang-
besta afmælisgjöf sem hægt er að hugsa sér“.
Guðríður Arnardóttir bæjarfulltrúi 40 ára
Fékk hnakk frá manninum
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is