Morgunblaðið - 25.02.2010, Page 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
AÐ VINNA HEIMA
HEFUR SÍNA KOSTI
HEFUR ÞÚ
ÁHUGA Á
TÖLFRÆÐI?
ÆTLI ÞAÐ EKKI... HÉR STENDUR AÐ BARN
FÆTT ÁRIÐ 1961 VERÐI AÐ
MEÐALTALI SJÖTÍU ÁRA
OG SEX VIKNA GAMALT
EF ÉG VÆRI BARN ÞÁ VÆRI
ÉG EKKI RÓLEGUR... Á SEX
VIKUM GETUR MARGT GERST
HRÓLFUR, ÉG
ER KANNSKI
BARA SVONA
RÓMANTÍSKUR...
EN MÉR FINNST ALLTAF
SVO FALLEGT AÐ SJÁ
SÓLARGEISLANA ENDUR-
SPEGLAST AF VOPNUM
ÓVINARINS
JÚ, ÉG
HEITI
DARWIN
HVER BJÓ ÞIG
EIGINLEGA TIL?
ÞAÐ BJÓ MIG
ENGINN TIL
ÉG ÞRÓAÐIST ÚR
STUÐARALÍMMIÐA
BÍDDU,
ERT ÞÚ EKKI
FISKAMERKIÐ
MEÐ LAPPIRNAR?
HAFA ÞESSIR
GEIMVERU-
ÁHUGAMENN
ENNÞÁ SAMBAND?
EKKI
EINS MIKIÐ.
ÁHUGINN Á
MYNDBANDINU
VIRÐIST HAFA
MINNKAÐ
MÉR FINNST
SORGLEGT AÐ SJÁ
FÓLK GERA SVONA
MIKIÐ VEÐUR ÚR
NOKKRUM LJÓSUM
UPPI Á HIMNINUM
ÞAÐ ER MIKIÐ AF
TRÚGJÖRNUM KJÁNUM
ÞARNA ÚTI
HEFUR FÓLK
EKKERT BETRA
AÐ GERA?
LALLI,
ÞAÐ ERU
KOMNIR
MENN AÐ
HITTA ÞIG
VIÐ ERUM
FRÁ F.B.I.
MARÍA! ÉG HEF EKKI
SÉÐ ÞIG SÍÐAN ÞÚ
FLUTTIR AUSTUR!
ÉG ÆTLAÐI BARA
AÐ SEGJA HALLÓ
HALLÓ
ÞÁ...
HRINGDU
VIÐ TÆKIFÆRI.
555-3589
HÚN
ELSKAR
MIG
GET EKKI
TALAÐ NÚNA.
ÉG ÞARF AÐ
DRÍFA MIG Í
ÞÁTTINN
MINN
Niðurskurður
MAÐUR vill helst ekki
vera að skrifa í blöðin
um hitt og þetta en því
miður get ég bara ekki
setið á mér lengur. Mál-
ið er að formaður Sam-
taka atvinnulífsins er sí
og æ vælandi sömu
tugguna í fjölmiðlum
um að nóg sé komið af
skattahækkunum á
landsmenn og nú sé
komið að því að ríkið
fari að skera niður í út-
gjöldum ríkisins. Þarna
er hann að tala í kross.
Vissulega er búið að
hækka skattana upp úr öllu valdi og
það hefur svo sannarlega bitnað á
þeim sem eru með meira en 200 þús-
und á mánuði. En hvers vegna vill
hann bæta enn einum niðurskurð-
inum við hjá öldruðum, öryrkjum og
barnafólki? Það segir sig alveg sjálft
að niðurskurður í ríkisútgjöldum þýð-
ir einfaldlega það að kjör lífeyris- og
bótaþega versna enn meir og er ekki
á bætandi. Það kvarta nánast allir yf-
ir versnandi hag að hinu og þessu
leyti mörg undanfarin ár og allir
kannast við skuldavandamálin og að
það þurfi strax í dag að leysa vanda
heimilanna og allt það. Það vill svo til
að lífeyrisþegar og barnafólk sem fær
barnabætur eru inni í þessum hópi
sem á við þennan vanda að etja og til
að leysa vanda þessa fólks þá frábið
ég mér að þurfa að hlusta á formann
Samtaka atvinnulífsins nánast dag
eftir dag vælandi yfir því að nú þurfi
helst af öllu að leggja
þyngri byrðar á allt að
50 þúsund manns með
enn meiri niðurskurði á
lífeyri og bótum. Þessi
formaður leysir ekki
vanda þessa fólks með
þessari bölvuðu vit-
leysu. Hann er fremst-
ur í flokki ríka fólksins
sem má ekki til þess sjá
að hann og hans fólk
sem hann starfar fyrir
greiði hærri skatta af
ofurlaunum sínum. Í
hans augum snýst
dæmið um það að allir
aðrir beri byrðar þessa
lands nema þeir sem
eiga að borga hærri skatta af of-
urlaununum. Hans mottó er að það
fólk eigi að vera framvegis stikkfrí og
nú sé komið að því að taka síðasta
eyrinn af bótaþegum með auknum
niðurskurði í útgjöldum ríkisins. Þá
verður hann fyrst ánægður. Ég ætla
bara rétt að vona að ríkisstjórnin fari
alls ekki að ráðum formannsins.
Einn reiður
Friðrik Ómar!
FRIÐRIK Ómar fór á kostum á tón-
leikum í Salnum Kópavogi sl. laug-
ardag. Þvílíkur söngvari, þvílíkar
bakraddir og hljóðfæraleikarar, alger
snilld. Takk kærlega fyrir mig,
Hrönn.
Ást er…
… að efla sjálfstraust
hvort annars.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnust. kl. 9, vatns-
leikfimi (Vesturbæjarlaug.) kl. 10 .50,
myndlist og prjónakaffi kl. 13.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði og út-
skurður kl. 9, botsía 9.30, leikf. kl. 11,
helgistund kl. 10.30, myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, bókband,
Alfanámskeið opið öllum.
Dalbraut 18-20 | Bókabíll kl. 11.15, sam-
verustund, sr. Bjarni Karlsson kl.15.15.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, vefn-
aður kl. 9, leikfimi kl. 11, upplestur kl. 14,
listamaður mánaðarins.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
klukkan 13.
Félag kennara á eftirlaunum | Bók-
menntaklúbbur í Kennarahúsi kl. 14.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, málm- og silfursmíði kl.
9.30, bókband kl. 13, Góugleði kl. 14. Kór
Snælandsskóla, Sigurbjörg Björgvins-
dóttir les og Agnes Þorsteinsdóttir syng-
ur við undirleik Agnesar Löve, vöffluhlað-
borð.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Handavinna kl. 9, botsía, ganga kl. 10,
handavinna og brids kl. 13, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vinnustofur í Jónshúsi kl. 9.30, málun kl.
9, gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 12,
karlaleikfimi og handavinna kl. 13, botsía
kl. 14, sala á leikhúsmiðum á Gerplu 18.
mars, kr. 2.800, ekki greiðslukort.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, leik-
fimi kl 10, botsía kl. 11, postulín kl. 13, fé-
lagsvist kl. 13.30, kl 14.30 kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb og samvera kl.
9, qI-gong kl.10, leikfimi kl. 11.20, fé-
lagsvistkl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14.10,
opið hús í boði Lionsfélaga kl. 20.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10, hann-
yrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Þegar
amma var ung kl. 10.50. Munið ókeypis
tölvuleiðbeiningar.
Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í
Kópavogsskóla kl. 17.
Korpúlfar Grafarvogi | Listasmiðja, gler
og tréskurður kl. 13. Sundleikfimi í Graf-
arvogssundlaug á morgun kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall/æfingar kl. 10, handverks-
ogbókastofa kl. 13, botsía kl. 13.30, Á
léttum nótum – þjóðlagastund kl.15.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, handa-
vinna kl. 9. leirlistarnámskeið kl. 9,
smíðastofa opin, vöfflukaffi kl. 15.
Vesturgata 7 | Handavinna, glerskurður
(Tiffan’s) kl. 9.15, ganga kl 11 30, kerta-
skreytingar og kóræfing kl 13, leikfimi kl
14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band. postulín, morgunstund, botsía,
framhaldssaga kl. 12.30, brids frjálst,
stóladans kl. 13.15.
Pétur Stefánsson vill fá styttu afsér í Reykjavík við hliðina á
Tómasi G., eins og hann kallar
hann, og gefur lítið fyrir hugmynd
Friðriks Steingrímssonar úr Mý-
vatnssveit, sem taldi að reisa ætti
Pétri styttu á Smámunasafninu í
Eyjafirði.
Ef að skagfirskt eðla kyn
yrkir huga slyngum,
óðar blossar öfundin
upp í Mývetningum.
Helgi Zimsen kastaði hinsvegar
fram annarri hugmynd um hvað
gera ætti við Pétur eftir andlátið:
Styttugerð er klárlegt kák
konur tel því hafni.
Heldur ber að stoppa upp strák
og stilla á reðursafni.
Þetta þótti Pétri snilldarhug-
mynd; safninu yrði sómi að þeim
góða grip. En þetta gæti þó kallað á
vissar framkvæmdir:
Þetta líst mér allvel á,
– ei er þín hugmynd galin,
en ef ég færi þangað, þá
þyrfti að stækka salinn.
Árni Jónsson hafði áhyggjur af
öllu formalíninu sem færi í svona
aðgerð:
Eigi að geyma áhöld þín
aftur skapar vanda.
En finnist ekki formalín
er fínt að nota landa.
Loks tekur Pétur fram að sér sé
nokk sama hvar hann lendi eftir
andlátið:
Í eilífð verð ég elskan mín
allra skærust stjarna;
dreg í stuðla, drekk mitt vín,
dansa, syng og barna.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af styttum og reðursafni