Morgunblaðið - 25.02.2010, Qupperneq 35
Menning 35FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Já, en þetta er al-
gjört brjálæði, þús-
undir tölvupósta, símtöl,
umboðsmenn, þetta er
klikkað. 37
»
ÞAÐ verður opið hús hjá Nesi
listamiðstöð á Skagaströnd í
dag, frá kl. 18 til 21. Lista-
menn febrúarmánaðar munu
þar sýna gestum og gangandi
afrakstur dvalar sinnar á
Skagaströnd en þeir eru tíu
talsins. Þetta eru þau Nadine
Poulain frá Þýskalandi, Franz
Rudolf Stall frá Frakklandi,
Erla S. Haraldsdóttir, Craniv
Boyd og Morgan Levy frá
Bandaríkjunum, Jee Hee Park frá Kóreu, Paola
Leonardi frá Englandi, Margaret Coleman og
Anna Marie Shogren frá Bandaríkjunum og Mari
Mathlin frá Finnlandi. Listamennirnir sinna ólík-
um listgreinum, flestallar heyra undir myndlist.
Myndlist
Opið hús hjá lista-
miðstöðinni Nesi
Erla S.
Haraldsdóttir
BJÖRN Thors spjallar um
nálgun leikhússins við Gerplu í
stofunni á Gljúfrasteini næst-
komandi sunnudag, en hann
leikur Þormóð Kolbrúnarskáld
í uppfærslu Þjóðleikhússins á
verkinu. Björn hyggst rekja
lauslega ferli uppsetning-
arinnar og glímu leikhópsins
við texta verksins og söguna og
meðal annars reyna að svara
spurningum um hvernig hægt
sé að setja upp leiksýninguna Gerplu og hvaða
vanda leikhópurinn hafi staðið frammi fyrir þegar
hafist var handa við að þýða Gerplu yfir á svið.
Spjall Björns, sem hefst kl. 16, er liður í Verki
mánaðarins á Gljúfrasteini.
Leiklist
Nálgun leikhússins
við Gerplu
Björn
Thors
TÓNLEIKARÖÐIN Klassík í
hádeginu hefst að nýju í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi
næstkomandi föstudag, en þá
verður flutt dagskráin Vor í
París. Eins og heitið ber með
sér verður frönsk tónlist í aðal-
hlutverki, verk eftir Cham-
inade, Hüe, Poulenc og Messia-
en. Flytjendur eru Áshildur
Haraldsdóttir flautuleikari og
Nína Margrét Grímsdóttir pí-
anóleikari. Nína er listrænn stjórnandi tónleika-
raðarinnar sem felur í sér sex hádegistónleika frá
febrúar til apríl. Hver efnisskrá er flutt tvisvar og
því verður hægt að hlýða á þær Áshildi og Nínu á
föstudaginn kl. 12.15 og á sunnudaginn kl. 13.15.
Tónlist
Klassík í hádeginu í
Gerðubergi
Nína Margrét
Grímsdóttir
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
ORÐ- OG tónlistahátíðin Orðið tónlist verður haldin í
Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu í dag og á morgun.
Helsti viðburður dagsins í dag verður frumsýning á
heimildarmynd Ara Alexanders Ergis Magnússonar um
tónskáldið Magnús Blöndal Jóhannsson, frumherja í tón-
smíðum og raftónlist, en Magnús lést 2005.
Ari hefur verið með myndina í smíðum í nokkurn tíma,
en brot úr henni var sýnt fyrir fimm árum þegar þess var
minnst í september 2005 að Magnús hefði þá orðið átt-
ræður. Myndin hefur lengst umtalsvert og nú orðin tæp-
ur klukkutími að lengd. Hún byggist að stórum hluta á
viðtali Hans Ulrich Obrist, sýningarstjóra hjá Serpent-
ine-galleríinu í Lundúnum, sem tekið var haustið 2004,
skömmu fyrir andlát Magnúsar.
Ari segir að Hans Ulrich Obrist hafi komið þannig að
verkinu að hann hafi unnið nokkuð með Matthew Bar-
ney, listamanni og sambýlismanni Bjarkar Guðmunds-
dóttur, og í ljósi þess að Obrist hefur gert talsvert af því
að taka viðtöl við tónskáld og gefa út á bók hafi Björk
sagt honum frá Magnúsi Blöndal og verkum hans og þá
hafi kviknað áhugi hjá Obrist. „Ég þekkti Magnús,
kynntist honum þegar ég var að vinna á Hótel Örk og
Valhöll meðfram námi, en Magnús var þá að spila þar.
Ég var svo beðinn um að taka á móti Obrist þegar hann
kom hingað fyrir tilstilli Sigurjóns Sighvatssonar 2004
og á leiðinn til Reykjavíkur fór hann að spyrja mig um
Magnús, sagði að Björk hefði sagt sér að hann væri mik-
ið séní og vildi endilega fá að hitta hann. Ég hringdi í
Magnús sem tók mér vel og við drifum okkur til hans og
tókum tveggja tíma viðtal – þetta var algjör töfrastund
og eitt af eftirminnilegustu atvikum ævi minnar. Ég ætl-
aði svo að hitta Magnús aftur stuttu síðar til að tala sér-
staklega um íslenskt tónlistarlíf, en nóttina áður en af því
varð féll hann í dá og lést svo stuttu síðar.“
Aðgangur er ókeypis að Orðinu tónlist, en á undan
sýningu heimildarmyndarinnar leika Sigtryggur Bald-
ursson og Kippi kaníus á parabólur og eftir myndina
leikur Stilluppsteypa létta danstónlist. Herlegheitin
hefjast kl. 20.
Heimild um frumherja
Orða- og tónlistahátíðin Orðið tónlist hefst í kvöld Hátíðin hefst með frumsýn-
ingu heimildarmyndar um tónskáldið Magnús Blöndal Jóhannsson
Ljósmynd/Ari Alexander Ergis Magnússon
Frumherji Tónskáldið Magnús Blöndal Jóhannesson á heimili sínu skömmu fyrir andlát sitt.
Myndin er úr heimildarmynd um Magnús sem frumsýnd verður í kvöld.
KATRÍN Elvarsdóttir opnar ljósmyndasýn-
ingu í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í
dag kl. 17 en sýningin, Hvergiland, er liður í
svonefndu D-salar sýningarverkefni safnsins.
Katrín lauk með FBA-gráðu frá Art Insti-
tute of Boston árið 1993 og hefur sýnt víða; í
Bandaríkjunum, Evrópu og á Íslandi. Á sýn-
ingunni eru myndir sem Katrín hefur tekið af
húsvögnum, runnum, trjám, byggingum og
stígum og raðað svo saman að til verður heim-
ur sem hún kallar Hvergiland af því hann er
ekki til; tekur myndir af raunverulegum hlut-
um og setur í óraunverulegt samhengi, enda
segist hún ekki í skrásetningarhlutverkinu.
„Þetta er röð þrettán mynda sem ég setti
saman fyrir þetta rými, en ég vann myndirnar
sumarið 2009 og það gekk hratt fyrir sig,“ seg-
ir Katrín, en aðspurð segist hún yfirleitt ekki
leggja mikla vinnu í eftirvinnslu á myndunum
því þó hún taki myndir á stafræna myndavél
noti hún vélina nánast eins og filmuvél og eins
að það sé allur gangur á því hve lengi hún sé að
vinna hugmyndir, sumar taki tvö til þrjú ár, en
aðrar spretti fram fullmótaðar á mettíma.
„Ég er að vinna að tveim sýningum til við-
bótar; önnur verður samsýning með fígúratív-
um ljósmyndum í Listasafni Reykjanesbæjar í
Duus og verður opnuð eftir rúma viku, en hina
er ég að vinna fyrir Listahátíð og heitir
Equivocal, en það eru myndir sem ég hef verið
að vinna að undanfarin tvö til fjögur ár.“
Óraunverulega raunverulegt Hvergiland
Katrín Elvarsdóttir
sýnir í Hafnarhúsinu
Ljósmynd/Katrín Elvarsdóttir
Óraunverulegt Hvergiland 1, ein ljósmynda Katrínar Elvarsdóttur frá Hvergilandi.
SÖNGVARINN
kunni Plácido
Domingo hefur
neyðst til að stíga
af söngsviðinu
um tíma vegna
ótilgreindra veik-
inda. Samkvæmt
fréttum fann
hann til óþæg-
inda á tónleikaför
í Japan fyrr í
mánuðinum og lyktaði með því að
hann varð að leggjast undir hnífinn
og aflýsa tónleikum.
Talsmenn söngvarans neita að
gefa upp hvað það sé sem hrjáir
hann, en segja að skurðaðgerðin sé
fyrirbyggjandi og að hann muni
snúa aftur til starfa eftir hálfan ann-
an mánuð hið mesta.
Domingo, sem er af spænsku
bergi brotinn, er 69 ára gamall og
stóð fyrst á sviði með móður sinni
1957 í Yucatán í Mexíkó. Hann hefur
verið með áhrifamestu og bestu
söngvurum síðustu áratuga og hefur
sungið 128 óperuhlutverk sem er
með því mesta sem þekkist, en hann
hefur líka verið iðinn við hljóm-
sveita- og óperustjórn.
Domingo
krankur
Dregur sig í hlé
vegna veikinda
Plácido
Domingo
ÞVÍ HEFUR verið haldið fram að
fatwa, eða dauðadómur Ayatollah
Khomeini, andlegs leiðtoga Írana,
yfir rithöfundinum Salman Rushdie
vegna Söngva Satans fyrir tuttugu
árum hafi verið vendipunktur í sögu
íslamstrúar, enda hafi það verið í
fyrsta sinn sem heittrúarhópar hafi
beitt sér svo opinskátt gegn jafn
sjálfsögðum hlut sem prent- og per-
sónufrelsi á Vesturlöndum.
Rushdie var í felum í áratug vegna
þessa og hyggst nú skrifa bók um
þann áratug. Þetta kom fram á
blaðamannafundi í tilefni af opnun
sýningar á gömlu skjölum, bréfum,
teikningum, handritum og minnis-
bókum hans í Emory háskóla í At-
lanta vestur í Bandaríkjunum, en að
sögn Rusdies gerði flokkun á þess-
um skjölum honum mögulegt að
byrja á verkinu.
Rushdie og
árin týndu
Magnús Blöndal Jóhannsson (1925-2005)
stundaði nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar-
innar og fór til framhaldsnáms við Juilli-
ard-skóla í New York árið 1947 og dvaldi
þar við tónsmíðanám til ársins 1952. Árið
1951 samdi hann fyrsta íslenska tólftóna
verkið, Fjórar abstraksjónir fyrir píanó,
og síðar fyrstu raftónsmíðina, Elektrón-
íska stúdíu fyrir segulband, blásarakvint-
ett og píanó, árið 1960. Á níunda áratugn-
um dvaldi Magnús Blöndal aftur í Banda-
ríkjunum við tónsmíðar og frá þessum
tíma er eitt kunnasta verk hans, Adagio
fyrir strengi, selestu og slagverk. Einnig
samdi Magnús fjölmörg sönglög sem sum
hver eru orðin þjóðþekkt, til dæmis lagið
Sveitin milli sanda. Magnús var um skeið
hljómsveitarstjóri Þjóðleikhússins og
starfaði lengi við Ríkisútvarpið.
Leitandi og skapandi tónskáld
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsinu hefur
haldið úti svonefndri D-salar sýningarröð
sl. þrjú ár, en hún er ætluð ungum lista-
mönnum sem flestir hafa sótt sér fram-
haldsmenntun í list sinni og sýnt á einka-
sýningum og samsýningum hér heima og
erlendis. Þeim er boðið að skapa verk fyrir
D-sal Hafnarhússins, en listasafnið stend-
ur straum af kostaði vegna verksins eða
verkanna. Öðrum þræði er þetta gert til að
veita listamönnunum þá viðurkenningu að
hafa sýnt í opinberu listasafni, en einnig
verða sérstakar bækur gefnar út um sýn-
ingarnar. Á síðasta ári kom út bók um átta
fyrstu sýningarnar og næstu átta verða
skjalfestir með haustinu en sýning Katr-
ínar Elvarsdóttur er einmitt sextánda sýn-
ingin.
D-röðin viðurkenning