Morgunblaðið - 25.02.2010, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.02.2010, Qupperneq 36
FÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010  Blaðamaðurinn Alda Sigmunds- dóttir skrifar skondna grein inn á Huffington Post um söluna á Smáralind. Forláta loftmynd af miðstöðinni er birt með og líkindin með fjölgunartóli karlmanna eru svo sláandi að hönnunin bara getur ekki stafað af tilviljun einni saman. Svo sannarlega æsandi arkitektúr! Íslenska „reður“- verslunarmiðstöðin Fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SVOKALLAÐIR heiðrunartónleikar eða „tribute“-tónleikar eru fasti í dæg- urtónlistinni og hafa helstu meistarar hennar verið meðhöndlaðir á þann veg. Þannig ætlar Sjonni Brink í félagi við Bödda Dalton og fleiri hljómlistarmenn að keyra á meistara Sting og hljómsveit hans Police og má sannarlega segja að ekki sé ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Fara tón- leikarnir fram á Players í kvöld og er þetta í fyrsta sinn sem Sting er tekinn þessum tökum hérlendis. En hvaðan kom hugmyndin? „Bassaleikarinn okkar, Birgir Kárason, hefur gengið með þetta í maganum í mörg ár,“ útskýrir Sjonni eða Sigurjón. „Og í gegnum æfingaferlið höfum við komist að því af hverju þetta hefur ekki verið gert fyrr. Þetta er nefnilega ekk- ert grín; söngfraseringar eru undarlegar; Sting fer oft mjög hátt og taktarnir í lögunum eru út og suður. Ég hef tekið þátt í ýmsum svona verkefnum en þetta er það erfiðasta til þessa. Það hefur auðvitað verið æð- islega gaman að glíma við þetta og við getum sagt að ég hafi verið að klífa fjöll síðustu vikurnar (hlær).“ Sigurjón segist nú vera orðinn forfallinn aðdáandi Sting og Police eftir þessa skemmtilegu þrautagöngu og hvetur sem flesta til að kynna sér afraksturinn en að- gangseyrir á tónleikana er enginn. Í framhaldinu verður eitthvað um fleiri tónleika, m.a. er stefnt á kósíheitakvöld á Rósenberg á næstum vikum. Fjallið Sting klifið Stunginn Sjonni Brink er kominn með Sting-bakteríu.  Kvikmyndahátíðinni í Istanbúl lauk nú á sunnudaginn sem væri nú sosum ekki í frásögur færandi ef Dagur Kári Pétursson hefði ekki verið einn dómnefndarmeðlima. Í nefndinni sátu m.a. Caroline Li- bresco frá Sundance-hátíðinni og tyrkneski leikstjórinn Ümit Ünal. Dómnefndin tók sér fjóra tíma í að komast að niðurstöðu um bestu mynd hátíðarinnar og að lokum deildu tvær myndir með sér verð- launum, Gigante frá Úrúgvæ og Agrarian Utopia frá Taílandi. Sú síðarnefnda þótti vera mjög húm- anísk en sú fyrrnefnda fékk m.a. verðlaun fyrir góð tök á listforminu þungarokki!? Dagur Kári lætur til sín taka í Tyrklandi  Írsk Evróvisjónsíða (www.esc- ireland.com) tekur Selmu Björns fyrir í langri grein í dálkinum „Hvar eru þau nú?“ Farið er í saum- ana á aðkomu Selmu að keppninni en höfundar virðast lítið vita um feril hennar hérna heima þeir sem þau klykkja út með setningunni „það verður gaman að heyra í þess- ari hæfileikaríku söngkonu í fram- tíðinni“. Selma er geymd og alls ekki gleymd Í KVÖLD kl. 22 verða fimm ungar konur með stelpuuppistand á Næsta bar. Þetta er í þriðja sinn sem hópurinn heldur uppistand af þessu tagi og hafa kvöldin verið mjög vel sótt. Ugla Egilsdóttir er ein af fimmmenningunum sem munu stíga á svið. „Nadia (Þórdís Nadia Ósk- arsdóttir) er forkólfurinn að þessu. Ég kynntist henni þegar ég var að vinna í unglingavinnunni í sumar og hún bað mig að vera með. Hún var búin að vera að reyna að láta verða af þessu í dá- lítinn tíma en við kýldum svo á þetta í desember,“ segir Ugla. Hún segir Nadiu upphaflega hafa sett upp Facebook-síðu til að at- huga hvort áhugi væri fyrir hendi hjá hressum stelpum að vera með uppistand og margar af þeim sem eru í hópnum í dag höfðu sam- band í gegnum síðuna. Aðspurð hvernig þær undirbúi sig segir Ugla að þær hittist til að bera efni hver undir aðra og veita uppbyggilega gagnrýni. „Við höf- um haldið æfingar þar sem við höfum komið með efni og höldum uppistand hver fyrir aðra. Svo gefum við ábendingar, komum með hugmyndir og skrifum kannski eitthvað saman,“ segir hún. Þema uppistandsins er misjafnt. Ugla segir margar stelpnanna segja reynslusögur og aðspurð hver munurinn sé á uppistandi karla og kvenna nefnir hún að konurnar séu margar mjög per- sónulegar, sem sé nokkuð sem strákarnir fari ekki jafnmikið út í. Hún segir kvennauppistandskvöld af því tagi sem hópurinn stendur fyrir mikinn styrk fyrir þær sem eru að byrja. „Ég hef aldrei haldið uppistand fyrir hóp þar sem meirihlutinn er ekki konur og ég veit ekki hver viðbrögðin yrðu. Ég held að það sé mjög gott að byrja svona og finna þennan stuðning,“ segir hún að lokum. holmfridur@mbl.is Morgunblaðið/Ernir Uppistand Stelpurnar eru þegar orðnar vinsælir árshátíðaskemmtikraftar. Fyndnar og persónulegar  Hláturtaugarnar verða kitlaðar á Næsta bar í kvöld Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is HERRANÓTT, Leikfélag Mennta- skólans í Reykjavík, frumsýnir Love- Star á morgun. Leikritið er unnið upp úr samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar og er leikgerð eftir Berg Þór Ingólfsson sem jafnframt er leik- stjóri. Þetta er í fyrsta skipti sem Lo- veStar er sett á svið og var handritið unnið í samstarfi leikstjóra og leik- ara. „Ég vann handritið jafnóðum, skrifaði senu upp úr bókinni, fór á æf- ingu og sá hvert það leiddi, skrifaði svo næstu senu og vann mig þannig í gegnum verkið. Krakkarnir vissu ekkert í hvaða hlutverkum þau voru fyrr en við vorum búin að æfa verkið í gegn,“ segir Bergur spurður út í hvernig verkið var unnið upp úr bók- inni. „Það er svo stór heimur í þessari bók að ég þurfti að henda mörgu skemmtilegu. Ég lagði aðaláherslu á ástarsögurnar, elskendurna tvo og ást LoveStars sjálfs á hugmyndum sínum og hans baráttu við hugmynd sem verður að skrímsli sem enginn ræður við.“ Það var Bergur sjálfur sem kom með hugmyndina að því við Herra- nótt að gera leikrit upp úr LoveStar. „Ég rakst á bókina á bókamarkaði og stakk upp á þessu um leið og ég var búinn að lesa hana. Þau vildu taka eitthvað létt og skemmtilegt, ég veit ekki alveg hvort LoveStar fellur und- ir það, en jafnframt voru þau metn- aðargjörn. Sagan hentaði hópnum vel auk þess sem hún er mjög áhuga- verð,“ segir Bergur. Í verkinu segir frá heimi þar sem íslenska stórfyrirtækið LoveStar hef- ur sölsað undir sig jörðina með bylt- ingarkenndum tækninýjungum, markaðssett dauðann og ástina. Því hefur tekist að reikna út hvaða tvær manneskjur passa saman, ástin er því ekki lengur náttúruleg, heldur hávís- indaleg. Í Reykjavík býr ástfangið par, þau Indriði og Sigríður. Dag einn fær Sigríður bréf frá LoveStar sem segir að hún hafi verið reiknuð saman við annan mann og að samband henn- ar við Indriða sé dauðadæmt. Hlut- irnir byrja að fara til fjandans þegar LoveStar gengur of langt og kemst að því að sumt á ekki að markaðssetja eða rannsaka. Með aðalhlutverk í leikritinu fara Björg Brjánsdóttir og Elías Bjartur Einarsson en um þrjá- tíu leikarar koma við sögu í uppsetn- ingunni. Frumsýning er á morgun í Norð- urpólnum, Bygggörðum 5 á Seltjarn- arnesi. Morgunblaðið/hag Herranótt Leikarar í LoveStar eru um þrjátíu talsins. Hér er leikstjórinn, Bergur Þór Ingólfsson, með hópnum á æfingu í Norðurpólnum í gær. Herranótt setur upp LoveStar  Nemendur Menntaskólans í Reykjavík setja skáldsögu Andra Snæs Magna- sonar á svið  „Ég lagði aðaláherslu á ástarsögurnar,“ segir leikstjórinn Sögu Herranætur, leikfélags Menntaskólans í Reykjavík, má rekja allt aftur á átjándu öld þegar skólapiltar í Skálholtsskóla hófu skólaárið á nokkurs konar uppi- standi þar sem aðhlátursefnið voru ræður presta á staðnum. Í gegnum árin þróaðist svo uppi- standið yfir í uppsetningu á leik- ritum á sviði. Talið er að fyrsta leikrit Herranætur hafi verið Bjarg- launin eftir Geir Vídalín, sem einn- ig er jafnvel talið fyrsta íslenska leikritið sem leikið er á sviði. Frá því MR komst í sitt núverandi hús- næði við Lækjargötu árið 1846 hefur Herranótt sett upp leikrit á hverju ári nær óslitið. Söguna má rekja aftur á átjándu öld 36 Menning

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.