Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 37

Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 EMINEM og hljómsveitirnar Muse og Kasabi- an eru aðal- atriði tónlist- arhátíðarinnar T In The Park sem haldin verður í Skot- landi 9.-11. júlí. En það verða fleiri kanónur á sviði og má þar nefna Jay-Z, Florence And The Machine, La Ro- ux, Vampire Weekend, Stereopho- nics, Wolfmother, Gossip og The Prodigy. Og eru þá fáir nefndir. Muse hefur leikinnn 9. júlí, Em- inem kemur fram þann 10. og Ka- sabian 11. júlí. Hátíðin fer fram á fyrrverandi flugvelli í Balado á Skotlandi. Eminem, Muse og Kasabian á T In The Park Eminem Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is EINS og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær vann íslensk hljóð- listakona, Gunnlaug Þorvaldsdóttir, hljóð og tónlist við I Do Air sem hlaut bresku Bafta-verðlaunin sem besta stuttmyndin sl. sunnudags- kvöld. Leikstjóri myndarinnnar og vinkona Gunnlaugar, Martina Amati, ræddi við blaðamann um myndina og verðlaunin í fyrrakvöld og var enn í sigurvímu og hálfringluð eftir alla at- hyglina. Amati er ítölsk eins og glöggt má heyra af hreim hennar, fæddist í Mílanó árið 1969 og syngur enskuna fallega. Amati hefur búið í Englandi í 14 ár og talar ensku því með ágætum. Hún segist hafa verið eina þrjá tíma í sigurvímu eftir að Bafta-verðlaunin voru afhent henni. En átti hún von á því að hljóta verð- launin? „Nei, alls ekki!“ segir Amati og hlær. I Do Air er sjö mínútna löng og segir af stúlku sem þorir ekki að stökkva fram af háu stökkbretti í sundlaug. Henni tekst þó að sigrast á óttanum og áttar sig á því í kjölfarið að hún getur kafað ágætlega. Stundar köfun – Hvaðan kemur þessi hugmynd, sagan af stelpunni? „Tja, mig langaði að gera mjög stutta mynd, segja sögu án talaðs máls. Og ég velti því fyrir mér hvern- ig ég gæti sagt sögu í þremur atrið- um, atriði myndarinnar eru s.s. að- eins þrjú. Vatn er mér mikil ástríða, ég stunda köfun án búnaðar og mér datt í hug þessi saga af stúlku sem óttast að stökkva fram af brettinu. Þannig að hún flýr raunveruleikann og finnur í kjölfarið sinn rétta stað í veröldinni, ofan í vatninu. Þetta er myndlíking sigurs á óttanum og ein- angrunartilfinningar. Og líka að vera maður sjálfur, það eiga sér allir ein- hvern stað,“ segir Amati. Hún eyði sjálf miklum tíma í sundlaugum og því sé hún einnig að sýna þeim virð- ingu sína. Óvíst með framtíðina – Hvaða þýðingu hafa þessi verð- laun fyrir þig sem kvikmyndagerð- arkonu, eru þau stökkbretti? „Já, ætli það ekki, ég veit það ekki, býst við því.“ – Það er náttúrlega stutt síðan þú hlaust verðlaunin … „Já, en þetta er algjört brjálæði, þúsundir tölvupósta, símtöl, umboðs- menn, þetta er klikkað. Þetta endist manni ævilangt, að þeir sem eru á toppnum í bransanum veiti manni þessa viðurkenningu. Allt í einu hlýt- ur maður þessa viðurkenningu, menn taka eftir manni. Ég hef þegar fjármagnað næstu stuttmynd mína, gerði það áður en ég hlaut verðlaun- in,“ segir Amati og telur að nú ætti að vera auðveldara að fá leikara í hlutverk fjármagn til framleiðslu. Fimleikameistari sem kann að leika óskast – Um hvað er næsta stuttmynd? „Þetta er saga sem ég skrifaði með ítölskum rithöfundi, Ilaria Bernar- dini, þroskasaga um harðan heim keppnisfimleika. En það hafa verið svo mikil vandræði í kringum mynd- ina, þú skalt ekki láta þér koma á óvart að ég sé hætt við hana eftir tvær vikur og að ég hafi samið aðra sögu þar sem engin þörf er fyrir fim- leikameistara með listræna hæfi- leika,“ segir Amati og hlær. – Þú ert hrifin af sögum af fólki sem stendur andspænis áskorunum, virðist vera. „Ég er mjög hrifin af töfrum sem ekki krefjast tæknibrellna. En það sem heillar mig meira, ef við lítum til íþróttamanna, er þessi einbeiting og sjálfsagi, ákveðin þráhyggja líkt og hjá stelpunni í I Do Air,“ svarar Amati. Bafta-verðlaunamyndin er önnur stuttmyndin hennar í dramatískum dúr, sú fyrri var á ítölsku og tekin á Sikiley og ber heitið A’Mare. Bak- grunnur Amati í kvikmyndagerð er býsna fjarri dramatískum stutt- myndum því hún gerði áður hreyfi- myndir, grafík og kynningarefni fyr- ir MTV-sjónvarpsstöðina. „Mig langaði að gera eitthvað sem tengdist meira lífreynslu minni,“ segir Amati en MTV hafi þó verið frábær skóli. Að sigrast á óttanum  Martina Amati hlaut bresku Bafta-verðlaunin fyrir bestu stuttmyndina, I Do Air  Góður skóli að starfa fyrir MTV Amati Stolt með Bafta-gripinn í hendi sem hún laut fyrir I Do Air. Amati hefur hlotið fleiri verðlaun fyrir verk sín en Bafta. Í fyrra hlaut hún BAFTA/LA verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á stutt- myndahátíðinni í Aspen, fyrir stuttmyndina A’Mare og ári fyrr, 2008, UNICEF-verðlaunin á alþjóð- legri heimildar-stuttmyndahátíð í Bilbao, einnig fyrir A’Mare. Myndin segir af tveimur börnum á Sikiley, Andreu og Felice, og vináttu þeirra. Þau búa við hafið og allt líf þeirra snýst meira eða minna um það. Dag einn, er þau eru að veið- um, kemur dálítið óvænt upp úr sjónum. Amati leikstýrði tveimur ítölskum börnum frá eyjunni Lipari í myndinni þar sem sikileysk mál- lýska er töluð. Þrenn verðlaun fyrir tvær stuttmyndir A’Mare Segir af börnum og hafi. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Notaðu LEIKHÚSKoRtIð! ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Brennuvargarnir (Stóra sviðið) Fim 4/3 kl. 20:00 Mið 17/3 kl. 20:00 Aukas. Mið 24/3 kl. 20:00 Aukas. "Besta leiksýning ársins!" Mbl. IÞ. Aukasýning 24. mars komin í sölu! Oliver! (Stóra sviðið) Sun 28/2 kl. 15:00 Sun 14/3 kl. 15:00 Lau 27/3 kl. 15:00 Sun 28/2 kl. 19:00 Sun 14/3 kl. 19:00 Lau 27/3 kl. 19:00 Sun 7/3 kl. 15:00 Sun 21/3 kl. 15:00 Sun 28/3 kl. 15:00 Sun 7/3 kl. 19:00 Sun 21/3 kl. 19:00 Fjórar stjörnur! Mbl. GB - Sýningum lýkur í maí Gerpla (Stóra sviðið) Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas. Lau 6/3 kl. 20:00 8.k Fim 18/3 kl. 20:00 Fös 26/2 kl. 20:00 5.k Fim 11/3 kl. 20:00 Fös 19/3 kl. 20:00 Lau 27/2 kl. 20:00 6.k Fös 12/3 kl. 20:00 Lau 20/3 kl. 20:00 Fös 5/3 kl. 20:00 7.k Lau 13/3 kl. 20:00 Fjórar stjörnur! Mbl. I.Þ Fíasól (Kúlan) Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. Mið 7/4 kl. 17:00 Fim 22/4 kl. 15:00 Aukas. Sun 14/3 kl. 13:00 Lau 10/4 kl. 13:00 Lau 24/4 kl. 16:00 Sun 14/3 kl. 15:00 Lau 10/4 kl. 15:00 Sun 25/4 kl. 13:00 Lau 20/3 kl. 13:00 Sun 11/4 kl. 13:00 Sun 25/4 kl. 15:00 Lau 20/3 kl. 15:00 Sun 11/4 kl. 15:00 Sun 2/5 kl. 13:00 Sun 21/3 kl. 13:00 Mið 14/4 kl. 17:00 Sun 2/5 kl. 15:00 Sun 21/3 kl. 15:00 Lau 17/4 kl. 13:00 Lau 8/5 kl. 13:00 Lau 27/3 kl. 13:00 Lau 17/4 kl. 15:00 Lau 8/5 kl. 15:00 Lau 27/3 kl. 15:00 Sun 18/4 kl. 13:00 Sun 9/5 kl. 13:00 Sun 28/3 kl. 13:00 Sun 18/4 kl. 15:00 Sun 9/5 kl. 15:00 Sun 28/3 kl. 15:00 Fim 22/4 kl. 13:00 Aukas. Sprellfjörug sýning um gleðisprengjuna ómótstæðilegu! Hænuungarnir (Kassinn) Fim 25/2 kl. 20:00 Fors. Lau 6/3 kl. 20:00 Lau 13/3 kl. 20:00 Lau 27/2 kl. 20:00 Frums. Fim 11/3 kl. 20:00 Fös 5/3 kl. 20:00 Fös 12/3 kl. 20:00 Bráðfyndið verk eftir Braga Ólafsson, einn af okkar ástsælustu höfundum! 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is FjölskyldanHHHH GB, Mbl Gauragangur (Stóra svið) Fös 19/3 kl. 20:00 frums Fim 8/4 kl. 20:00 Lau 17/4 kl. 16:00 K.7. Sun 21/3 kl. 20:00 K.2. Fös 9/4 kl. 20:00 Lau 17/4 kl. 20:00 Mið 24/3 kl. 20:00 Lau 10/4 kl. 16:00 K.4. Mið 21/4 kl. 20:00 K.8. Fim 25/3 kl. 20:00 K.3. Lau 10/4 kl. 20:00 K.5. Fim 22/4 kl. 20:00 K.9. Fös 26/3 kl. 20:00 Fös 16/4 kl. 20:00 K.6. Fös 23/4 kl. 20:00 Forsala hefst 25. mars kl. 10. Munið forsölutilboð! Faust (Stóra svið) Fim 25/2 kl. 20:00 Lau 13/3 kl. 20:00 Sun 11/4 kl. 20:00 Ný auka Fös 26/2 kl. 20:00 Sun 14/3 kl. 20:00 Fim 15/4 kl. 20:00 Ný auka Fös 5/3 kl. 20:00 Lau 20/3 kl. 20:00 Sun 18/4 kl. 20:00 Ný auka Lau 6/3 kl. 20:00 Sun 28/3 kl. 20:00 í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 27/2 kl. 12:00 Sun 7/3 kl. 12:00 Lau 20/3 kl. 12:00 Lau 27/2 kl. 14:00 Sun 7/3 kl. 14:00 Lau 20/3 kl. 14:00 Sun 28/2 kl. 12:00 Lau 13/3 kl. 12:00 Sun 21/3 kl. 12:00 Sun 28/2 kl. 14:00 Lau 13/3 kl. 14:00 Sun 21/3 kl. 14:00 Lau 6/3 kl. 12:00 Sun 14/3 kl. 12:00 Sun 28/3 kl. 12:00 Lau 6/3 kl. 14:00 Sun 14/3 kl. 14:00 Sun 28/3 kl. 14:00 Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið) Lau 27/2 kl. 19:00 Fös 12/3 kl. 19:00 Fim 4/3 kl. 19:00 Lau 27/3 kl. 19:00 síð. sýn Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Sýningin snýr aftur næsta haust. Góðir íslendingar (Nýja svið) Fös 26/2 kl. 20:00 síð. sýn Snarpur sýningartími, sýningum líkur 26. febrúar Harry og Heimir (Litla sviðið) Fös 26/2 kl. 19:00 Lau 6/3 kl. 19:00 Lau 20/3 kl. 20:00 Lau 27/2 kl. 19:00 Lau 13/3 kl. 19:00 Sun 28/3 kl. 20:00 Fös 5/3 kl. 19:00 Lau 13/3 kl. 22:00 Sýningum lýkur í mars Forsalan hefst í dag kl. 10! Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is 39 þrep (Samkomuhúsið) Fim 25/2 kl. 20:00 Lau 6/3 kl. 22:00 Fös 26/3 kl. 19:00 Ný sýn. Fös 26/2 kl. 19:00 Fös 12/3 kl. 19:00 Ný sýn Lau 27/3 kl. 19:00 Ný sýn. Lau 27/2 kl. 19:00 Lau 13/3 kl. 19:00 Ný sýn Fim 1/4 kl. 19:00 Ný sýn. Fös 5/3 kl. 19:00 Fös 19/3 kl. 19:00 Ný sýn. Lau 3/4 kl. 19:00 Ný sýn. Lau 6/3 kl. 19:00 Lau 20/3 kl. 19:00 Ný sýn. Horn á höfði (Rýmið) Mið 31/3 kl. 16:00 1.sýn Fim 1/4 kl. 16:00 3.sýn Lau 3/4 kl. 16:00 5.sýn Fim 1/4 kl. 14:00 2.sýn Lau 3/4 kl. 14:00 4.sýn Miðasala í Háskólabíói » Sími 545 2500 » www.sinfonia.is Sinfóníuhljómsveit Íslands 25.02. & 26.02. kl. 19.30 Víkingur spilar Chopin Hljómsveitarstjóri: Pietari Inkinen Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson Frédéric Chopin: Píanókonsert nr. 1 Anton Bruckner: Sinfónía nr. 7 Fim. 04.03. kl. 19.30-Hilary spilar Prokofiev Hljómsveitarstjóri: Benjamin Shwartz Einleikari: Hilary Hahn Wolfgang Amadeus Mozart: Sinfónía nr. 39 Sergej Prókofíev: Fiðlukonsert nr. 1 Franz Schubert: Sinfónía nr. 5 Fim. 18.03. kl. 19.30 60 ára afmælistónleikar SÍ Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba Einsöngvar: Sarah Connolly & Hillevi Martinpelto Mótettukór Hallgrímsskirkju Hafliði Hallgrímsson: Norðurdjúp (frumflutningur) Gustav Mahler: Sinfónía nr. 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.