Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Það hefur stundum verið rætthversu mikil ábyrgð þekktraeinstaklinga er gagnvart sam-
félaginu. Þessi umræða kviknar til
dæmis iðulega þegar frægðin verður
ungum stjörnum á uppleið ofviða, og
þær leita á náðir skemmtistaða og
eiturlyfja til að gleyma líðandi stund.
Þá er gjarnan spurt hver ábyrgð
þeirra gagnvart ungum aðdáendum
sínum er, hvort frægðinni og auðnum
fylgi ekki sú samfélagslega ábyrgð
að vera góð fyrirmynd.
Golfsnillingurinn Tiger Woods er
kannski nýjasta dæmið um þetta.
Golfarar um allan heim eru í sjokki
yfir því að fyrirmyndin hafi misstigið
sig (allsvakalega) og styrktarað-
ilarnir hafa látið sig hverfa, í bili að
minnsta kosti. En það má líka snúa
dæminu við og spyrja sig að því hver
ábyrgð okkar er sem neytenda
skemmti- og afþreyingarefnis. Hvað
gerist þegar fjaðrafokið gengur yfir,
munu aðdáendur hans draga hann til
ábyrgðar? Ég spái því að hvort sem
konan hans fyrirgefur honum eða
ekki, þá verði Tiger kominn út á völl-
inn innan skamms tíma og styrktar-
aðilarnir skili sér aftur, jafnvel sinn-
um tveir.
Þegar fólk í skemmtanaiðnaðinumtekur fyrrnefnd feilspor, eða
brýtur jafnvel alvarlega af sér, þá
hlýtur maður að þurfa að endurskoða
afstöðu sína til verka þeirra. Kvik-
myndaleikstjórinn Roman Polanski
er gott dæmi. Ég velti því fyrir mér
hvort samstarfsfólk hans og aðrir
sem stukku til og afsökuðu hann og
lofsömuðu í fjölmiðlum eftir að hann
var handtekinn í Sviss hafi lesið
dómsskjölin frá 1978 þegar réttað
var yfir honum í Bandaríkjunum.
Þar má finna ítarlega lýsingu á því
hvernig hann gekk skipulega til
verks þegar hann misnotaði 13 ára
gamalt fórnarlamb sitt. Í stuttu máli
á hann sér engar málsbætur. Og þá
vaknar spurningin; eigum við að
horfa á myndirnar hans? Á að
hampa honum sem listamanni og
verðlauna þennan glæpamann með
því að flykkjast í bíó?
Þessir frægu svörtu sauðir gerastsem betur fer sjaldnast sekir
um jafn grófa glæpi og herra Pol-
anski. Það er hægt að taka nærtæk-
ara dæmi. Sjónvarpsþátturinn Two
and a Half Men er eitt slíkt; í honum
leikur Charlie Sheen óforskamm-
aðan drykkjumann og kvennabósa
sem er haldinn kvenfyrirlitningu á
háu stigi. Efni þáttarins er í sjálfu
sér nóg ástæða til að sniðganga þátt-
inn, en sú staðreynd að Charlie
Sheen hefur oftar en einu sinni verið
handtekinn fyrir að hafa beitt konur
sínar og kærustur ofbeldi, ætti líka
að vekja mann til umhugsunar. Eða
hvað?
Það kann að virðast langsótt að
ætla að sniðganga einhvern þátt
bara af því að aðalleikarinn gerði
eitthvað af sér einhverntímann. Og
það er rétt að taka það fram að
smám saman datt ég inn í þættina,
ég hálfskammast mín fyrir að viður-
kenna það en illkvittinn húmorinn
náði til mín að lokum. Ég þarf samt
ennþá stundum að réttlæta áhorfið
fyrir sjálfri mér. Myndi ég vingast
við mann sem ég veit að beitir konur
ofbeldi? Nei. Myndi ég sitja þegjandi
og hljóðalaust til borðs með barna-
níðingi? Svarið er hiklaust nei.
Nú verð ég að játa að ég veit ekkihvort Sheen hefur nokkurn
tímann verið dæmdur fyrir heimilis-
ofbeldi og það má færa rök fyrir því
að það sé ósanngjarnt að dæma hann
úr fjarska. En það er það sem við
gerum engu að síður. Við leyfum
okkur ýmislegt úr fjarska. Öllum
þeim sem geta fengið sig til að horfa
á mynd eftir Roman Polanski, hefur
einhvern veginn tekist að taka verk-
in hans úr samhengi við manninn.
Þegar við horfum á myndirnar hans
erum við svo fjarri glæpamanninum,
bæði í tíma og rúmi, að við töpum
samhenginu. „En það er nú orðið svo
langt síðan... Batnandi manni er best
að lifa...“ Polanski hefur ekki enn
axlað ábyrgð á því sem hann gerði
og ég hreinlega fæ mig ekki til að
horfa á myndirnar hans.
En þetta snýst ekki um hann per
se. Maður getur ekki vitað allt um
alla alltaf. En það er hræsni að
hlaupa upp til handa og fóta þegar
fræga fólkið rennur á rassinn, for-
dæma það og bölva, en horfa svo og
hlusta á hvaðeina sem frá því kem-
ur. Þetta er spurning um réttlæti;
getur fræga fólkið hegðað sér
hvernig sem er og samt notið
óhindraðrar velgengni? Og hvað sið-
ferðiskennd afþreyingarneytandans
snertir, þá held ég að það sé allt í
lagi að staldra aðeins við og athuga
hvað maður er að láta bjóða sér.
Siðferði afþreyingarneytandans
AF LISTUM
Hólmfríður Gísladóttir
» Á að hampa honumsem listamanni og
verðlauna þennan
glæpamann með því að
flykkjast í bíó?
Polanski Hefur ekki enn axlað ábyrgð á þeim glæp sem hann framdi en er samt virtur og verðlaunaður.
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI,
REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
PERCY JACKSON LEGGUR Á SIG MIKIÐ
FERÐALAG TIL AÐ BJARGA HEIMINUM
FRÁ TORTÍMINGU GUÐANNA!
HHH
„Kom mér þægilega
á óvart... Stórfín fjöl-
skylduafþreying.”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
ÞRIÐJA OG SÍÐASTA MYNDIN
Í MILLENNIUM ÞRÍLEIKNUM
HHH
„Flottur endir á skemmtileg-
um þríleik. Lisbeth Salander
er ein af minnisstæðari kvik-
myndapersónum síðari ára.”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
Noomi Rapace er sem fyrr
æðisleg í hlutverki Lisbeth
Salander. Stund hefndarinnar
er runnin upp hjá henni og
þegar hún kemst loks í svarta
leðurjakann klárar hún þenn-
an magnaða þríleik með stæl.
ÞÞ Fbl
HHHH
„Percy er fyrst og fremst
skemmtun, afþreying.
Og sem slík virkar hún
afskaplega vel.“
-H.S.S., MBL
Sími 462 3500
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Fráskilin... með fríðindum
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
OG REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM
HHH
-H.S.S., MBL
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHH
E. E. - DV
HHH
H.S.S. - MBL
HHH
Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
Percy Jackson / The Lightning Thief kl. 8 - 10:30 B.i. 10 ára
It‘s Complicated kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Nine kl. 8 - 10:30 LEYFÐ
Nikulás litli kl. 6 LEYFÐ
Loftkastalinn sem hrundi kl. 5 - 8 - 11 B.i.14 ára
The Wolfman kl. 10:40 B.i.16 ára
Percy Jackson / The Ligtning Thief kl. 5:30 B.i.10 ára
It‘s Complicated kl. 8 - 10:35 B.i.12 ára
Mamma Gógó kl. 6 LEYFÐ
Avatar 3D kl. 6 - 9:20 B.i.10 ára
Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
The Wolfman kl. 10:10 B.i. 16 ára
PJ: The Lightning Thief kl. 8 B.i. 10 ára
Artúr 2 kl. 6 LEYFÐ
HHHHH
„Frábær! 5 stjörnur af fimm.
Noomi Rapace gerir Lisbeth
Salander endanlega ódauðlega.
Maður gleymir Lisbeth aldrei!”
H.K. Bítið á Bylgjunni
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR
VINSÆLASTA MYNDINÁ ÍSLANDI Í DAG!