SunnudagsMogginn - 07.11.2010, Síða 16
16 7. nóvember 2010
Þ
etta kom eins og himnasending
upp á dag. Við vorum að bíða
eftir kulda og snjó til að geta
klárað útitökurnar en vorum í
ljósi sögunnar ekkert sérstaklega bjart-
sýn á að það næðist. Síðan byrjaði bara
að kyngja niður snjó. Það fennti fljótt
yfir snjóinn sem við vorum búin að hafa
fyrir að búa til. Við trúðum varla okkar
eigin augum,“ segir Gunnar Björn Guð-
mundsson, leikstjóri kvikmyndarinnar
Gauragangs, en sveit hans vakti óskipta
athygli þegar hún var á ferð í miðbæ
Reykjavíkur í vikunni.
Gunnar hlær þegar blaðamaður hefur
orð að því að skapari himins og jarðar
hafi greinilega velþóknun á Gauragangi.
Alla vega veðurguðirnir.
Gunnar og sveit hans létu ekki segja
sér það tvisvar, ruku út með búnað sinn
og vélar. Raunar var ekki allt búið þegar
Sunnudagsmogginn heyrði í Gunnari að
morgni föstudags. „Við eigum nokkur
stutt atriði eftir og þurfum að hafa hrað-
ar hendur, hann spáir hlýnandi um
helgina. Við hljótum að klára þetta í
dag,“ sagði leikstjórinn.
Hefur gengið eins og í sögu
Þá er tökum á myndinni lokið en þær
hófust í júlí síðastliðnum. Undirbún-
ingur hefur þó staðið mun lengur,
Gunnar byrjaði að leggja drög að mynd-
inni árið 2007. „Þetta hefur gengið eins
og í sögu. Allt er á áætlun,“ segir hann.
„Það hafa ekki verið neinar óvæntar
uppákomur – fyrir utan snjóinn, sem
var auðvitað mjög jákvætt – og okkur
hefur alls staðar verið vel tekið. Sumar
senurnar eru mjög fjölmennar, jafnvel á
þriðja hundrað manns, og ég er mjög
þakklátur öllum sem lagt hafa hönd á
plóginn. Þetta hefur verið afskaplega
skemmtilegt verkefni.“
Eftirvinnsla Gauragangs stendur nú
sem hæst en myndin verður frumsýnd á
öðrum degi jóla. „Vinnsla myndarinnar
er langt komin og núna þegar við erum
búin að ná þessum síðustu senum er
hægt að einhenda sér í að klára hana.“
Gauragangur byggist á samnefndri
skáldsögu Ólafs Hauks Símonarsonar um
ævintýri kempunnar og ólíkindatólsins
Orms Óðinssonar og vina hans. Sú saga
hefur lengi verið þjóðinni kær enda geta
líklega margir speglað sig í Ormi. Gunn-
ar segir að myndin sé trú bókinni en
áréttar að ekki sé um söngleik að ræða,
eins og leiksýningin sem nú er á fjölum
Borgarleikhússins og hlotið hefur mikla
aðsókn. Aldrei er góð vísa of oft kveðin.
Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri gefur Alexander Briem holl ráð í snjókomunni. Alexander leikur aðalsöguhetjuna, Orm Óðinsson.
Jón Þór Jónsson ljósamaður stillir upp fyrir atriði í miðborg
Tómas Örn Tómasson tökumaður klár í slaginn.
Himnasending
Bak við tjöldin
Aðstandendur kvikmyndarinnar Gauragangs fengu ósk sína uppfyllta í
vikunni þegar snjó fór skyndilega að kyngja niður í höfuðborginni. Fyrir
vikið var hægt að klára tökur á myndinni sem frumsýnd verður um jólin.
Ljósmyndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Sigríður Rósa Bjarnadóttir sminka og Helga Rós V. Hannam búningahönnuður gera Atla
Óskar Fjalarsson kláran fyrir töku. Hann fer með hlutverk Ranúrs í myndinni.