SunnudagsMogginn - 07.11.2010, Qupperneq 52
52 7. nóvember 2010
Jonathan Maberry – Rot & Ruin bbbnn
Uppvakningar eru málið vestan hafs og hafa
verið um hríð, þá aðallega sem strákabækur á
meðan stelpur falla helst fyrir vampírum. Höf-
undur Rot & Ruin hefur verið iðinn að skrifa
hryllings- og ævintýrabækur og semur einnig
myndasögur fyrir Marvel-hasarblöð. Í Rot &
Ruin segir frá ungmennum sem búa í heimi þar
sem skæður vírus hefur breytt þorra fólks í
uppvakninga. Þeir sem komust af hafa hópað
sig saman á bak við víggirðingar og reyna að
lifa nokkurn veginn eðlilegu lífi. Innan hvers samfélags starfa svo
sérstakir uppvakningabanar, ævintýramenn sem fara um á hættu-
svæðinu og drepa uppvakninga, ýmist til fjár eða af öðrum orsök-
um. Tom er slíkur, bardagalistamaður og hugmyndaríkur, en
Benny bróðir hans kann ekki að meta hann því Tom virðist lít-
ilsigldur samanborið við aðra grobbna uppvakningabana sem rétt-
ast væri að kalla slátrara. Ekki er þó allt sem sýnist eins og Benny
kemst að þegar hann hættir sér út á hættusvæðið með bróður sín-
um. Fagmannlega skrifuð spennubók með fínum boðskap. Byrjun
á bókaflokki sem verður eflaust vinsæll.
Justin Cronin – The Passage bbbmn
Þessi doðrantur, 766 síður, er vampírubók, en
þó allfrábrugðin flestum öðrum vamp-
írubókum. Hún hefst þar sem menn halda til
frumskóga Bólivíu í leit að vírus sem nota
mætti til að búa til ofurhermenn. Vírusinn er
þó magnaðri en svo að menn fái hamið hann og
áður en varir hefur hann lagt heimsbyggðina
alla í rúst, þorri mannskyns er smitaður og þeir
sem fá vírusinn verða blóðþyrst nánast ódrep-
andi óargadýr. Líkt og í Rot & Ruin hafa eft-
irlifendur hrúgast saman í víggirtum þorpum,
en þeir eiga erfitt uppdráttar því hinir smituðu eru sólgnir í blóð
og erfitt að glíma við þá, mun erfiðara en ef væru þeir „bara“
uppvakningar. Eina von mannkyns virðist felast í ungri stúlku
sem fékk vírusinn í árdaga en veiktist ekki. Eins og fram kemur er
The Passage býsna löng bók og mætti gjarnan vera styttri, til að
mynda fer mikið púður í að draga upp mynd af aðbúnaði eftirlif-
enda, en þegar Cronin hrekkur í gang standa lesendur á öndinni
yfir hamaganginum og ótrúlega snúin fléttan raknar upp smám
saman.
Erlendar bækur
25. – 31. október
1. Stóra Disney
mat-
reiðslubókin
– Ýmsir höf-
undar / Edda
2. Matarræði –
Handbók um
hollustu – Michael Pollan /
Salka
3. Strumpafjör 1 – Peyo / Ið-
unn
4. Sokkar og fleira – Kristín
Harðardóttir / Tölvusýsl
ehf.
5. Strumpafjör 2 – Peyo / Ið-
unn
6. Hreinsun – Sofi Oksanen /
Mál og menning
7. Borða, biðja, elska – Eliza-
beth Gilbert / Salka
8. Myrkvun – Stephanie Mayer
/ JPV útgáfa
9. Arsenikturninn – Anne B.
Ragde / Mál og menning
10. Morgunengill – Árni Þór-
arinsson / JPV útgáfa
Frá áramótum
1. Stóra Disn-
ey mat-
reiðslubókin
– Ýmsir höf-
undar /
Edda
2. Rannsókn-
arskýrsla Alþingis – Rann-
sóknarnefnd Alþingis / Al-
þingi
3. Borða, biðja, elska – Eliza-
beth Gilbert / Salka
4. Póstkortamorðin – Liza
Marklund/James Patter-
son / JPV útgáfa
5. Góða nótt yndið mitt – Do-
rothy Koomson / JPV út-
gáfa
6. Hafmeyjan – Camilla Läck-
berg / Undirheimar
7. Loftkastalinn sem hrundi –
Stieg Larsson / Bjartur
8. Makalaus – Þorbjörg Mar-
inósdóttir / JPV útgáfa
9. Vitavörðurinn – Camilla
Lacberg / Undirheimar
10. Eyjafjallajökull – Ari
Trausti Guðmundsson &
Ragnar Th. Sigurðsson /
Uppheimar
Listinn er byggður á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar,
Bókabúðinni Eskju, Bókabúðinni Hamraborg, Bókabúðinni Iðu, Bóka-
búðinni við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hag-
kaupum, Kaupási, N1, Office 1, Pennanum-Eymundsson og Sam-
kaupum. Rannsóknasetur verslunarinnar annast söfnun upplýsinga
fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda.
Bóksölulisti Félags bókaútgefenda
Lesbókbækur
S
ilas Marner er ein ástsælasta skáldsaga
George Eliot, eins merkasta skáldsagna-
höfundar Breta á 19. öld. Bókaforlagið
Ugla gefur bókina út fyrir þessi jól í þýð-
ingu Atla Magnússonar, en hann hefur á liðnum
árum þýtt mörg af þekktustu verkum heims-
bókmenntanna, og á skilið margfaldar þakkir fyr-
ir hið góða lífsstarf sitt. Það er of fátítt að klassísk
verk bókmenntasögunnar rati á íslensku, og ekki
eru þau mörg þetta árið, fremur en árin á undan.
En það ber að fagna hverju því klassíska verki
sem bókaforlög velja til útgáfu. Þetta er útgáfa
sem skilar ekki miklu í kassann, og er fremur
gerð af hugsjónaástæðum en vegna vonar um
skjótfenginn gróða.
Viðburðarík saga
Silas Marner, sagan af vefaranum níska, er hin
viðburðaríkasta. Aðalpersónan, Silas, er sem ung-
ur maður sakaður um glæp sem hann er saklaus
af. Hann fyllist beiskju, einangrar sig frá mönnum
og elskar einungis peningana sína. Hann hættir að
minna á mannveru. Hjarta hans er hert og sálin
frosin – hann er lifandi dauður. Hann heldur
áfram starfi sínu sem vefari, en við þá vinnu
minnir hann stundum helst á vél. Peningar og
vinna eru það eina sem skiptir máli í tilveru hans
en svo er peningunum stolið frá honum og fyrir
hvað á hann þá að lifa? Eina vetrarnótt finnur
hann kornabarn við dyr sínar og tekur það að sér.
Líf hans gjörbreytist. Hann endurheimtir hjarta
sitt og sál í gegnum stúlkubarnið sem hleypir
birtu inn í líf hans. Hann verður mennskur á ný.
Sálfræðilegt innsæi
Þessi fræga saga George Eliot minnir nokkuð á
ævintýri, söguþráður og atburðir eru með nokkr-
um ólíkindum og allmikið er um sérkennilegar
tilviljanir. En þarna á við að þegar vikið er af
braut raunsæis verður skemmtanagildið fyr-
irferðarmeira. Silas Mar-
ner er einstaklega fallegt
verk um mennskuna og
mikilvægi þess að láta sér
annt um náungann. Það er
viðkvæmnislegur tónn í
verkinu sem gerir það
einstaklega geðþekkt. Og
það myndi nægja eitt sér,
en George Eliot er miklu
merkilegri höfundur en
svo að hún einskorði sig
við það. Þrátt fyrir æv-
intýralegan söguþráð er höfundurinn skynsöm
raunsæismanneskja sem hefur áhuga á umhverfi
og hvernig það mótar einstaklinginn. Hún veit
af siðum og venjum manna og þeim fordómum og
hjátrú sem búa svo auðveldlega um sig meðal
þeirra. Hún hefur skilning á samtíma sínum og
býr yfir sálfræðilegu innsæi. Hún er merkilegur
höfundur enda hefur margt verið um hana skrif-
að.
Skrifað undir karlmannsheiti
Mary Ann Evans fæddist árið 1819 og lést árið
1880. Hún telst í hópi merkustu höfunda Viktor-
íutímans, höfundur sjö skáldsagna sem hún skrif-
aði undir nafninu George Eliot. Sjálf sagðist hún
skrifa undir karlmannsheiti til að tryggja að verk
sín væru tekin alvarlega. En einnig má vera að
þáttur í því að hún ákvað að skrifa undir dulnefni
hafi verið til að koma í veg fyrir að sjónir manna
beindust að einkalífi hennar, en hún átti í ást-
arsambandi við kvæntan mann, G.H. Lewes, sem
hún bjó með í rúmlega tuttugu ár.
Bækur George Eliot nutu mikilla vinsælda á
sínum tíma, og meðal áhugasamra lesenda var
Lovísa, dóttir Viktoríu drottningar. Það voru
þessar vinsældir sem gerðu að verkum að Mary
Ann steig fram og gekkst við verkum sínum.
Mary Ann Evans, sem skrifaði sjö skáldsögur undir nafninu George Eliot, telst í hópi merkustu höfunda Viktoríutímans
Klassísk saga um
vefarann og barnið
Bókaforlagið Ugla gefur út í íslenskri þýðingu hina ástsælu
sögu Silas Marner eftir George Eliot
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Silas Marner