Skólablaðið - 01.12.1966, Page 5
- 71
IV.
Það hafa allir tækifæri til mennta,
sem það geta, og raunar miklu fleiri.
Þetta er staðreynd, erfið viðureignar, en
sem ungt fólk verður að horfast í augu
við. Hun hefur gert það að verkum, að
hin oftlega dáða sjálfmenntun, sem
Hriflu-Jonas hóf til skýjanna fyrir eina
tíð, er að mestu ur sögunni. í þessu
nútímaþjóðfélagi okkar fer að verða held-
ur litið um þessa menn, sem af þjóðfé-
lagslegum ástæðum hafa lent á annarri
hillu í þjóðfélaginu en þeir hafa raun-
verulega tilheyrt. Slíkt er engan veginn
heppilegt, þvi einmitt þessir einstakling-
ar, þeir sem sjálfum finnst þeir hafa lent
"neðar" í þjóðfélagsstiganum en efni
stóðu til, hafa verið hið nauðsynlega
tengjandi afl á milli stétta. Framtfðin
býður upp á hættulega stéttaskiptingu, en
sem verður að forðast 1 lengstu lög.
Á þessu landi voru eitt sinn sveita-
heimili, hver töldu nokkra tugi þegna.
Þar þótti mikill galli, hve þau voru út
úr menningunni svokölluðu, hve þau stóðu
strjált og erfitt var að komast á milli
bæja. En þar skapaðist samfélag, góður
andi og ágæt skilyrði til að ala upp nýja
einstaklinga. Einstaklingnum varð litil
hagsbót að þvi að lifa 1 stærri heildum.
Það verður fátæklegra lif, þrátt fyrir
allt.
V.
Kannske er ógurlega ljótt að opna
munn og segja eitthvað ljótt um ungt
fólk. Að minnsta kosti á sú skoðun sér
nokkurn hljómgrunn. Og kannske sizt,
þar sem um er að ræða mann ungan að
aldri og ekki barnanna beztan. Ég veit
það ekki.
En alla vega er það vist, að 1 þessu
þjóðfélagi eru að gerast miklar breyting-
ar, svo miklar, að einstaklingurinn hef-
ur ekki haft tækifæri til að melta þær
og læra að hegða sér í samræmi við
þær. Ef til vill lærir hann það, ef til
vill ekki.
En þetta breytingaskeið er rétt að
hefjast. Og nái ekki helvítis sprengjurn-
ar að ganga milli bols og höfuðs á mann-
kyninu, þá er þess að vænta, að breyt-
ingarnar fari að komast á verulegan
skrið. Til þess að þola slíkt þarf sterkt
fólk og vel undirbúið. Og ef svo á að
vera þarf að breyta, ekki fyrst yhri að-
stæðum, - heldur hugarfarinu.
Auðvitað er æskan innst inni ekki á
nokkurn hatt frábrugðin því", sem verið
hefur. En breytingarnar hafa komið of
snöggt. HÚn er ráðþrota og frekar en að
gera ekki neitt, er gert eitthvað, fálmað,
og i flestum tilfellum er um mistök að
ræða. Mistök, sem stafa af vankunnáttu.
- En, það er langt súðan maðurinn
uppgötvaði leið til að hamla gegn vankunn’-
áttu. Það hefur bara gefið góða raun.
Ég held hún sé kölluð kennsla.
Desember 1966.
Vilmundur Gylfason
Ú R
r
R Slagviðri um nótt
S
K Köld er nóttin úr MÓin MÓr,
U og niður streymir regnið :
dimmt öskur,
svarað af hlátri vindsins,
hljóð úr skjólgóðum skóginum.
( 7. eða 8. öld )
B ý f 1 u g a
Kvik er býflugan gula frá bikar til bikars,
langt fer hún með sól,
djarflega flýgur hún út á viða sléttuna
og sameinast örugg systrum sínum
í býkúpunni.
( 7. eða 8. öld )
Lauslega hefur snarað
Kristinn Einarsson,
eftir enskum þýðingum.