Skólablaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 29
- 95 -
auglýsingum. Hugsið ykkur bara :
Um daginn lét Listafélagið hengja upp
mynd af manni með beran haus.
Romantfkin og
vindmy llu r na r.
Ágúst Guðmundsson ( oft nefndur
Donni sbr. Don Quixote ; ennfremur
prímadonna ) og jón Bragi Wilde, eiga
nú 1 vök að verjast. Svart skammdegi
og annað hrollvekjandi fer í hönd og
reyna þeir félagar nú að veita eilitlu
blómskrúði inn 1 viðkvæmar sálir.
Hefur jón Bragi nýlokið við smfði á
splunkunýjum skýjaborgum, sem miða m.
a. að þvi að velja Hrafni Gunnlaugssyni
heppilegan maka, sem alltaf getur hlust-
að auðmjúk o. s.frv. ; kenna Jens Þóris-
syni og Sigurði Pálssyni hæverska siðu
1 og eftir kappdrykkju; skýra Vilmundi
frá þvá, hvenær sólarhringsins á að
hringja í fólk o. m. fl.
Ágúst Donni brýtur enn heilann um
það, hvernig eigi að búa til skýjaborgir.
Hefur honum flogið í hug að leita að
svarinu hjá uppáhaldshöfundum sínum,
Hornby, Petit Larousse og jóni Ófeigs-
syni.
Það er þvi óhætt að segja, að barizt
sé við margvislegar vindmyllur.
Hogværð og hlédrægni.
Sigurður Árnason ( fæddur 1949, lands-
próf 1965, bílpróf 1966 ), nemandi í
þriðja S, stjórnarmeðlimur leiklistar-
deildar Listafélags Menntaskólans í
Reykjavik, ritari Félfigsheimilisnefndar,
bekkjarráðsmaður þriðja S, formaður
þriðjabekkjarráðs, meðlimur tólfmanna-
nefnd3.r málfundafélagsins Framtíðarinn-
ar og aðalsprauta málfundanefndar þriðja-
bekkjar, leikari, skattborgari og þjóðfé-
lagsþegn
gjörir heyrinkunnugt :
Hpfi megnasta viðbjóð á allri félags-
starfsemi.
Heimur versnandi fer.
Þórarinn kennari Guðmundsson sagði
að aflokinni Vigfúsarhátíð :
Uðð, þetta kallar maður sko ekki
mikið. Þegar ég var í skóla héldum
við sko oðgíúr.
Enn um forseta.
Þá er árshátið lokið, og stóð forseti
sig með miklum sóma, eins og við var
að búast af tveggja ára reynslu hans.
Það er rétt, sem hermt er, að forsetinn
og busar hafi verið í séraðstöðu á þess-
um dansleik, þar sem allt það, sem
þarna fór fram, kom báðum aðilum jafn
mikið á ovart. Eins og barna er hátt-
ur sváfu forseti og busar eins og stein-
ar um svipað leyti fyrir einu og tveim-
ur árum siðan, meðan einhverjir nautna-
sjúklingar brugðu á kreik á Sögu.
Frægt er nú orðið, hversu hraustlega
nokkrir stjórnarmenn Framtúðarinnar
héldu upp á velheppnana árshátíð.
Litið skal frá þvf sagt hér, en það höf-
um vér fyrir satt, að skömmu siðar
hafi birzt svohljóðandi auglýsing í bekkj-
arblaði einu :
i:Gleraugu hafa tapazt. Finnandi vin-
samlega skili þeim til Vigfúsar Ásgeirs-
sonar".
Fallegur - fallegri - Stefán .
Hér átti að skrifa fyndna sögu um
Stefán Örn Stefánsson, en þegar til átti
að taka reyndist maðurinn svo leiðin-
legur, að ekki varð neitt úr neinu.
BÓkmenntir en ekki bækur.
jólabókaflóðið er hafið og í farar-
broddi eru að venju ástalífssögur sam-
fara svaðilförum á sjó. Af meiri hóg-
værð og minna skrumi kemur nu eins
árvisst og Ingibjörg Sigurðardottir
Skýrsla Menntaskólans í Reykjavík.
Útgefandi er Skemmtisagnaútgáfan.
Dyrir malmar,
Það var eitt sinn í tíma hjá Einari
Magnússyni, að rætt var um fþrótta-
fréttir í sjónvarpi Tslendinga.
Segir rektor þá m. a. : !!En annars
skildi ég eiginlega ekkert, þvi að þetta
var allt á ensku! "