Skólablaðið - 01.12.1966, Side 34
Kvöldroðinn varpaði rauðleitum geislum á holan gluggann
1 ve^ggjabrotinu. Ryksky sveimaði ýfir halfhrundum reyk-
háfnum. Kynlegur friður hvíldi yfir rústunum.
Hann hafði lagt augun aftur. Brátt mundi myrkrið
skella á. Hann fann að einhver hafði komið og stóð nú fyr-
ir framan hann. Nú taka þær mig, hugsaði hann. En þegar
hann opnaði augun ofurlitið, sá hann aðeins tvo fætur 1
Rottumar (ScFa
umnatur
rifnum buxum. Þeir
voru svo kræklóttir,
að hann gat sóð upp 1
heiðan himininn milli
þeirra. Hann vogaði
sér að lííta hærra og
sa, að þetta var gam-
all maður.
Gamli maður-
inn hélt á körfu og
hníf. Fingur hans
voru moldugir.
Sefurðu hér?
spurði maðurinn og horfði niður á óstýrilátt hár drengsins>
Jörundur starði pireygður á sólina, milli krækl-
óttra fóta mannsins og svaraði. Nei, ég sef ekki. Ég
verð að vera hér á verði.
Maðurinn kinkaði kolli. Einmitt það, þess vegna
hefurðu þetta stóra prik hjá þér.
já, svaraði Jörundur, hvergi smeykur og hélt
dauðahaldi um prikið.
Hvers vegna verðurðu að standa vörð hérna.
Ég get ekki sagt þér það. Drengurinn ríghélt
enn í prikið.
ÞÚ hlýtur að vera að gæta fjársjóða, sagði mað-j
urinn. Hann lagði körfuna frá sér og þurrkaði vandlega
af hnifnum á annarri buxnaskálminni.
Nei, ég er svo sannarlega ekki að passa neinn
fjársjóð, sagði Jörundur fyrirlitlega, langt frá þvá.
Nú, hvað ertu þá að passa?
Ég get ekki sagt það, ég er bara að passa dálítið
annað.
Nú, látum svo vera, en þá segi ég þér auðvitað
ekki hvað ég er með hérna í körfunni. Maðurinn stjakaði
frá sér með fætinum.
O, sagði Jörundur með lítilsvirðingu, ég get vel
ímyndað mér hvað þú hefur 1 henni, auðvitað kanínufóðul
Ja, hver fjandinn, sagði maðurinn. Þú ert prýðis-
náungi. Hvað ertu gamall?
Níú ára.
Að hugsa sér, níú ára. Veiztu þá, hvað þrisvar
sinnum níu eru mikið.
Auðvitað, svaraði drengurinn. Síðan sagði hann til
þess að vinna tfma. Það er afskaplega auðvelt.
Hann einblíndi aftur á himininn milli kræklóttra j
fóta mannsins.
Sagðirðu ekki, þrisvar sinnum nfu? Það eru tutt-
ugu og sjö. Ég vissi það strax.