Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 4
114 -
En hvaða hlutverki gegnir þetta allt þá?
Eru þetta gagnslausir hlutir? Varla.
Truin er siÖfraeði, kennir það, hversu
mikils virði bróðurkærleikurinn er, og að
hann byggist upp á nauðsynlegum eiginleik-
um hvers og eins. Og hún kennir, að
blóðhefndin er fekki réttmæt.
Sem slík hefur kristin kirkja gert sitt.
II.
Hvað er kristin trú eða trúarbrögð yfir-
leitt? Tilbúið vopn til þess að samræma
hegðun mannanna við það, sem nauðsyn-
legt er á hverjum tíma. Trúarbrögð hafa
verið þróuð og verið móttækileg fyrir utan-
aðkomandi áhrifum hinna veraldlegustu
afla. Vegna forlagatrúarþáttarins gerði
Múhameðstrúin Aröbum kleift að leggja
undir sig mikil landsvæði. Gegnum ald-
irnar hafa yfirmenn kirkjunnar stórhagn-
azt á kristnu almúgafólki.
Enjpað, sem liggur til grundvallar öll-
um truarbrögðum.er fyrst og fremst sið-
fræði. Siðfræði, sem þjóðsagan hefur
síðan spunnið utan um hinar furðulegustu
sögur. Það er því aukaatriði, til að mynda
1 kristinni trú, hvort einstaklingurinn játar
og trúir sköpunarsögunni eða þvi, að Jesús
Kristur hafi gengið á vatni, þvf hitt er
aðalatriðið, að einstaklingurinn viður-
kenni, hve siðfræði sú, sem kennd er við
Jesúm Krist, hefur mikið til síns ágætis.
En hitt er rótt, að trúin hlýtur að hafa
orðið fyrir miklum áhrifum frá þeim ver-
aldlegustu, og þeir hafa vart haft á móti
þvi, að fólkið tryði á annað, betra og feg-
urra lif eftir þetta. Það eitt hefur gert
fólkinu kleift að þola pínuna á jörð.
Og þess vegna hafa trúarbrögð, hverju
nafni, sem þau nefnast, aukið mjög á ham-
ingju manna, gert þá nægjusamari og gert
þá færa um að þola ýmislegt, sem þeir
hefðu aldrei þolað án þeirra. En einnig
látið þá sætta sig við ýmislegt, sem þeir
hefðu aldrei sætt sig við án þeirra.
Kærleikurinn hefur verið skætt vopn 1
hendi trúarinnar. Það er svo margt, sem
gert er í nafni kærleikans, einnig barizt,
drepið og höfðað til lægstu hvata manns-
hugans. En hvað er kærleikur?
Ef kristinn maður, sem trúir 1 orðsins
fyllstu merkingu, fórnar lifi sínu 1 nafni
kærleikans, hverju er hann þá eiginlega að
fórna? Hans bíður eilíf sæla hinum megin
skilningstrósins. Þetta er ekki fórn.
En trúlaus maður, sem gerir slikt hið
sama, þess vitandi, að hans bíður ekkert
annað en að verða þáttur 1 jarðvegi fyrir
komandi kynslóðir, er það' ekki hann,
sem gerir kærleiksverkið ? En hvers
virði er kærleikurinn þeim, sem engu trú-
ir.
- Sannlega sannlega segi óg yður, sá
sem trúir hefur eilift líf. - jóh. 6.43-51
Eins og öll önnur öfl, sem hafa þjóðfe-
lagslega þýðingu, var kristnin ekkert,
sem gekk yfir á örskammri stund. Jesús
Kristur var ekki það aflið, sem útbreiddi
hana. Kristnin eignaðist einhvern öflug-
asta áróðursmann allra tíma, þar sem
var Páll póstuli eða Sál. Og þrátt fyrir
það, að í kristninni fólst góð meining, jpá
þurfti mikla og heldur óhreina stjórnmala-
baráttu. Kristin kirkja varð eitthvert
sterkasta veraldlega afl, sem sögur fara
af. Og allur sá óþrifnaður, sem innan vó-
banda hennar hefur liðizt þessi tæp tvö ár-
þúsund sín, verður seint upptalinn. En
hinu má heldur ekki gleyma, að margt
nytsamlegt og gott hefur komið frá kirkj-
unni.
En saga kristinnar trúar hefur sannað
það, að mennirnir standa ekki ætíð við
það, sem einhverjir boðberar nýrrar
stefnu hafa skráð á blað, jafnvel þótt þeir
komist langt undir þeirrar stefnu yfirskini.
Eftir fráfall frummerkisberanna eru öll
meðul notuð, og þá ekki sízt þau, að
breyta kenningunum eða breyta þeim ekki,
þrátt fyrir það, að hið gagnstæða só nauð-
synlegt.
III .
NÚtfmamaðurinn hefur ekki náð neinu
óumdeilanlegu með tækni sinni, til þess
eru þar of margir misbrestir á. Eitt af
þvú, sem hann nú ætlar að fara að gera,
undir þvú yfirskini að vita meira, er að
athuga, með nákvæmum rannsóknum og
nýtizkulegum, hversu mikið só hæft í þvú,
sem í biflíúnni stendur. Slíkt er nánasa-
legur smáatriðaupptíningur og gagnslaus
með öllu.
Kasansaki hefur ritað bók um ævi Jes-
ús Krists ( Freedom and Death), hvar
hann telur Jesúm hafa verið mann, sannan
mann. Þessi maður átti í baráttu, innri
baráttu um það, hvort hann ætti að giftast