Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 12

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 12
AIISHERJAROJ VIÐ bláan ómæli'sflöt loöir gulur bolti, glennandi sig 1 sigurvissu líkt og kín- verjaskratti, sem glottir stöðugt mein- fýsnum, tannlausum skorpinkjafti ; 1 hnakkakúfnum er flétta eins og pálmatré 1 annars gróðurlausri 1 eyðimörk. Að húsabaki er eg, sitjandi á ómjúkri jörðu, glápandi fánalega út 1 buskann. Rabarbari væflast innan sjónmáls. Þessi rabarbari á gasalega bágt, þvf að hann er gamall, trénaður og ber ormsmognar blöðkur. Nú þegar hefir hann sungið sinn fegursta óð, og brjóst mitt fyllist óumræðilegri meðaumkun 1 garð'vesMhgs^ ins, sem aldregi verður að sultu. Er þessi blákalda staðreynd birtist mér 1 allri sinni nekt, gerast mýs þyrstar. Ég berst hetjulega gegn tárunum, og leitast við af fremsta megni að núa glýj- una úr augum mér. Sem óhjákvæmileg afleiðing verknaðar þessa, líta augu mín hengjur nokkrar, sem löngu hafa lokið þvú hinu mikla hlutverki, er þeim var falið á hendur hér á jörðu, sumsé að bera uppi hvers kyns blautt gúmmo- laði. Slíkt atferli verður að dæmast VÍTAVERT ; að láta slíka kjörgripi og þarfaþing. falla í svo hörmulega órækt og niðurnilSslu. Lýsi ég mig þvi ein- dreginn stuðningsmann tillögu þeirrar, er hér á eftir fylgir : Við slíkri ósvinnu ber að stemma stigu, og hljóti hver sá, er út af bregður, þyngstu viðurlög. Skyndilega verður mér ljós viss sam- líking millum mín annars vegar og hrikalegra örlaga hengjanna góðu hins vegar. Við það hefja ljúfsárir trega- hljómar strengleika í hjarta mér,og bergmál þeirra endurómar í mikilfeng- legri saknaðarhljómkviðu, er sameinast og verður að titrandi ómi : nOg lítil börn, sem aldrei verða menn. " ó, mig auma ! Allsherjarojið á himnum uppi situr við sama keip og er mig lifandi að drepa sakir rotinna og daunillra minn- inga, sem eru þvú ( þ. e. a. s. OJINU ) eilíflega samfléttaðar. Æ fjölgar minn- ingunum, og þess eigi horf, að lát verði á. Sem kúadillur myndi fjóshaug, af hverjum fnykur stækur upphefst, hlaðast á mig gamlir fyrirburðir, hverra mögn- uð óþefjan fyllir sálarlíf mitt. Allt er þetta á undarlegan hátt sólinni tengt. ( Einusinni var hún svo góð og falleg. ) En af er það, sem áður var, já, öðru- visi mér áður brá, víst um það. og í sömu andrá rauk peysufatakona á fætur, sló sér á lær, Jesúsaði heiminn og mælti af munni fram : ,!NÚ er ég svo aldeilis hlessa, og ekki spyr ég að ó- skuponum, mér er sem ég segi; hann Hlaðbjörn sálugi hefði átt að sjá þessar aðfarir. M Sem kona þessi öldruð hafði lokið ræðu þessari magnaðri, sveif hún á braut og er þarmeð úr sögu, öllum til yndisauka og hugarléttis hins mesta ( sérílagi Hlaðbirni sáluga, sem skömmu áður hafði snúið sér við í gröf sinni og mælt af heilu hjarta : MÉg gaeti ælt og drullað. 11 ) Eins og ég hefi einlægt klifað á, get- ur fráleitt nokkuð gott af þessu hlotizt. Þvi er það sem ég ris á fætur lipur- lega sem ungkýr. Að svo mæltu taka bífur til mála óspilltra og flytja mig heilu og höldnu í öru^ga höfn, hvar ekk- ert OJ nær úthella beuðum afsprengjum sínum yfir mig. Steinunn Sigurðardóttir ó. M. ó. þýðir : Eins, zwei, drei - und der Mann sprang Það skipti engum togum að maður- inn stökk. Jens Þórisson ( segir af sinni alkunnu einlægni ) : Jón minn, mikið hefurðu falleg augu, ha. jón Gröndal : Jahá. ( Löng þögn ) Mikið eiga þeir annars bágt, sem eru albíhóar.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.