Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 41
151
gefendur. En þetta er misskilningur,
því" að okkur skortir yfirleitt ekkert, og
engin gleði hlyzt af þvi að bera 1 bakka-
fullan lækinn.
En ekki er þar með sagt, að fólk,
sem býr við allsnægtir, geti ekki fundið
jólagleðina. Það er um að gera að
finna nýja leið til þess að sýna þakklæti
okkar fyrir fyrrnefnt tækifæri. Liggur
þá beint við að hjálpa þeim, sem hjálp-
arþurfi eru, gefa þeim gjafir í hvaða
mynd sem er, á sama hátt og okkur var
færð sá gjöf, sem við þurfum á að halda.
13. des. 1966
Svandís Sigurðardóttir
HUNDASAGA,
frh. af bls. 144.
rauð, síð gluggatjöldin. Nú tók húnninn
að hreyfast hægt niður á við. Stúlkan
var máttvana af hræðslu. Skyndilega var
hurðinni hrundið upp, og maður á bezta
aldri geystist inn. Hann var samkvæm-
isklæddur og með olíumálverk af Josef
Stalún undir handleggnum.
Má bjóða yður upp 1 dans?. spurði
hann brosandi. Þakka yður fyrir, sagði
stúlkan feimnislega og stóð feimnislega
upp. Michelangelo ! kondu hingað, kall-
aði hun. Hundurinn skreið fram úr
fylgsni sínu og gekk til þeirra.
Michelangelo, spilaðu Strauss, sagði hún.
Hundurinn stökk upp á þíanóstólinn, og
innan skamms hljómuðu straussvalsar
leiknir með einni kló um herbergið. Unga
stúlkan og ungi maðurinn dönsuðu alla
nóttina. Þau dönsuðu menúetta, charleston,
marsúrka. Þau dönsuðu næsta dag og
næstu nótt. Þau dönsuðu heila viku, og
alltaf lek hundurinn undir með einni kló.
Eftir heila viku var Michelangelo búinn að
fá nóg, stökk ofan af píanóstólnum og
skauzt út um gluggann.
Síðan hefur ekkert_til hans spurzt.
Nokkrar heimildir :
1) Sjá : Lebenbeschreibung einer Kompon-
ist, von próf. C. Sonneschein. Berlin 1927.
2) Sjá : Wilde, Oscar : The Importance
of being Earnest.
3) Sjá: Shakespear, William: Hamlet.
4) Sjá: Wilde, Oscar: The Picture of
Dorian Gray.
Frá Framtíðinni
Stjórnarfundur haldinn 13. des. 1966,
1 Máifundafélaginu Framtíðinni, Mennta-
skólanum 1 Reykjavík, leyfir ser 1 til-
efni af þvú, að einn af pólitískum for-
ingjum stúdenta 1 Háskóla þslands kom 1
skólann og bauð nemendum til skemmt-
unar, sem pólitúsk samtök í H. f. stofn-
uðu til, að vfta harðlega allan utanað-
komandi pólitúskan áróður innan veggja
M. R.
Stjórn Framtfðarinnar vill ennfremur
benda á, að Menntaskólanemar sem slík-
ir, hafa engin afskipti af pólitiskum deil-
um stúdenta 1 H.í. , og frábiður sér alla
slika sendimenn, sem þann, er að fram-
an greinir.
F. h. stjórnar
Vigfús Ásgeirsson
for seti
FRÁ RITNEFND
Þá fylgjum við úr hlaði 4. tbl. Skóla-
blaðsins, sem jafnframt er jólablað,
enda þótt umgjörð öll og svipur þess
sé ekki 1 samræmi við allt það skrum,
sem nú er samfara þessum afmælis-
og hátíðisdögum föður, sonar og heil-
ags anda.
Við viljum nota þetta tækifæri til að
afsaka þær prentvillur, sem sézt hafa
1 blaðinu til þessa. Eru þær þó tiltölu-
lega fáar, sakir góðs prófarkalesturs
nefndarinnar.
Þá leyfum við okkur að óska rektor,
kennurum, nemendum, svo og öllum
þeim öðrum, er þetta blað lesa
gleðilegra jóla.
Ritnefnd