Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 18

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 18
Bræðrasjóður. Einn er sá sjóður hér við skólann, sem ku eiga að gegna hinu mannúðlegasta hlut- verki, sem sé að styrkja þau skólasystkin okkar, sem af fjárhagsástæðum veitist þungt að stunda nám. Um úthlutun úr sjóðnum sér nefnd fulltrúa* úr öllum bekkjum skólans. Til að öðlast styrk úr sjóðnum, þurfa menn að bera sig upp við þann bekkjarfélaga sinn, sem sinnir nefndarstörfum. Sí*ðan tilkynnir hann umsóknina,og fara að þvi* er virðist engar eftirgrennslanir fram á aðstæðum styrk- þega. Eitt er vist, að styrki virðast fá menn, sem þess þurfa alls ekki með, og labba sig e.t.v. beint niður á Borg og skála þar fyrir sinni kænsku og heimsku nefndarmanna. f þennan sjóð er skylda okkar nemenda að greiða, og eigum við því* heimtingu á, að sjá peninga okkar verða að raunverulegu gagni. Setja þarf strang- ari reglur um styrkveitingar. Þúsund krónur eru anzi lítill peningur nú á síð- ustu og verstu tímum, og mætti að ósekju hafa styrkina stærri, ef tryggt væri, að þeir lentu 1 höndum fólks, sem raunveru- lega þyrfti á þeim að halda. Nú orðið hugsa menn sig um tvisvar, áður en þeir sækja um styrk, og eiga þar með á hættu að bendla nafn sitt við gjálifi og alls kyns voðalega hluti. Guðmundur Einarsson Fagur gripur er æ til yndis. Nú er dimmt 1 heimi rassveikra. Nemendur V -T hafa orðið að húrast 1 allan vetur og auk þess 1 fyrra vetur á þvúlíkum stólum, að þess þekkjast engin dæmi, nema þá helzt úr betrunarhúsum 19. aldar i Kaupinhafn. Ef eigi verður að gert horfir til ævarandi örkumla og melt- ingartruflana 1 líffærum þessara ógæfu- sömu manna. NÚ eru málin 1 þau óefni komin, að fyrrnefndar flatbytnur verða að neyta nudds og geislalækninga til að við- halda hinu klassúska sköpulagi hins mikil- væga og tíðum gróskumikla líkamshluta, sem oft getur verið hfbýlaprýði hin mesj;a. Verða lí’fstykkjaframleiðendur 1 hinum mesta vanda staddir, ef svo vindur fram sem horfir. En um þverbak keyrir þó, að kennara- stóllinn er bólstraður með þeim forkunn- ar handbrögðum, að unun er á að sitja, enda hafa ýmsir bossastórir lærifeður hið mesta dálæti á gripnum. Við umkvörtunum hefur því* verið bor- ið, að þessa stóla hafi gist menn, sem nú lifi sáðsömu og þjáningarlausu lííi, en bjuggu forfeður vorir ekki 1 torfkofum 1 10 aldir og búnaðist vel. En svo byggðu þeir steinhús og happdrættishús, þvf að 1 þeim var búsetan þægilegri. Og nú lát- um við ekki lengur stinga málinu undir stól, þennan líka dáindisstól, og það þýð- ir ekki lengur að berja rassinum við stein- inn, því" að nú heimtum við nýja, bólstr- aða stóla, áður en við höfum allir fengið gyllinæð. Guðmundur Einarsson Jón Bragi Bjarnason P. S. "Bless reputation" ÞAÐ hefur löngum verið siður fullorð- inna, einkum þó þeirra, er halda þvú fylgi einhver ábyrgð að eldast, að gera sér áhyggju stóra út af hegðun unglinga. Verður þeim tíðrætt um "sfvaxandi spill- ingu æskunnar" og finnst æ meira um. Er hún að þeirra dómi ískyggileg og var- hugaverð í mesta lagi. - Raunar þætti mér það öllu alvarlegra mál, ef rokkar þessir þögnuðu - þá fyrst væri eitthvað vert at- hugunar á æskunni. Eilífðarsuð þeirra er aðeins nauðsynleg hvatning til dáða.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.