Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 21

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 21
131 EITT af þvi, sem allir gera en fæstir vilja viðurkenna, er að reyna að skrifa, reyna að setja saman og semja ljóð eða sögu - eða eitthvað annað. Á yngri árum er í okkur æðri þrá og erum við oft haldin hálfgerðum uppreisnaranda gagnvart sam- tíðinni. Hugurinn er fullur af fyrirætlun- um og þær verða að fá hljóm- grunn. Tjáning er nauðsynleg og til verður oft einhvers kon- ar samsetningur. Sumir eru gæddir meiri skáldskaparhæfi- leikum en aðrir og semja dægr- anna á milli - og ahuginn eykst stöðugt. Skólablöðin verða vett- vangur þeirra. f skólanum Rer er venja að halda auk þess skáldavöku. Lesa þá skólaskáldin upp eitthvað 'af framleiðslu sinni. Slíkt kvöld var haldið um daginn f miðjum jólaprófum 3. bekkjar, hvað ekki e? heppilegt. Kristján Guðlaugsson heitir nýr maður i hópi ljóðasmiða í skólanum og var fram- lag hans þetta kvöld rúmlega frumburður hans opinberlega. Þegar heimurinn hafði farizt stóðu hann og Sigurður Pálsson einir eftir - andans menn - og skáldið virtist ánægt með sig. f Kristjáni býr ýmislegt og svipmyndir hans úr síðasta Skólablaði ( Haust, Svefn og Gleði ) eru hugnæmar í orði og formi og hann reyn- ir eitthvað, sem hann virðist ráða við. Það er einfalt og auðskilið. Stælingu Einars ólafssonar á blóði Abels var óþarfi að lesa og leitt er, ef menn verða fyrir slíkum áhrifum af eldri tilraupaskáldum. Ég hafði það á tilfinningunni, að í ljóð- um herra Sigurðar Pálssonar gætti meiri fágunar en hjá öðrum. Framleiðsla hans, hverja hann flutti, var einnig minnst allra skálda þetta kvöld. Leikrit B. Hrafnkels jónssonar var frjálslegt í sniði og flutningi. Hrafn Gunnlaugsson er örugglega at- hafnasamastur skólaskálda. Leikrit hans "SalvöT’1 ( ekki tileinkað Á.Á. ) fannst mér gott og væri æskilegt, að við fengjum að sjá nokkrar af þessum jnætu stúlkum, sem hafa haft svo mikil áhrif á skáldskap Hrafns. Ritstjóri flutti kvæðabálk, gæddan æðri hugsun, samfara smá sálfræði og heim - speki, eins og "Editor dicit" Vilmundar er. - Birtist nú fátt ljóða eftir Vilmund - eða hefur hann náð takmarki sínu og vill þvú lítt hafa sig frammi. Af ljóðaframleiðendum kom næstur Guð- steinn Guðmundarson, sálmaskáld úr Kópavogi. Hefði magn kvæðanna mátt vera minna að kílóatölu. ( Mar-)Traðarljóðið var eyðilagt af allt of oft endurteknu við- lagi "Kaffi kostar nítján krónur/og kamel tæpar þrjátíú". Þetta er samkvæmt minni vitund ofstuðlun, en þessar ljóðlínur voru uppistaða kvæðisins. ólafur H. Torfa son las sögu eftir sig, sem krafðist lengra upplesturstíma. Las ólafur of hratt söguna - enda engin smá- saga - og fór þvú ýmislegt f gegnum l"þöku- búa ómelt. Líklega myndi sagan hæfa bet- ur á prenti. Hröð atburðarás einkennir mjög stíl ólafs. Inn f söguna var skotið upplestri úr matreiðslubok og kennslubók f esperantó, hvað orsakaði absúrdisma - en Ásgeir Ásgeirsson las á fyndinn hátt. Þórarinn Eldjárn las úr óprentaðri bók (stilabók), vægast sagt fyndinni. Orðfæri Þórarins er slúk, að maður hefur það á tilfinningunni, að sagan "hafi bunað upp úr honum". BÓkin byggist á frásögn af un|;um dreng, sem sendur er út í búð af moður sinni, sem jafnframt gefur honum heilræði. Hún skrifar honum bref og skilur m. a. ekki, hvers vegna hann skrif- ar henni ekki. Á leið í búðina eru marg- ar hættur, m. a. snillingur einn, grjót- kastari. Aftast f bókinni eru verkefni, sem lesandi á að glíma við. Hvert öðru fyndnara. - Sjálfur verð óg að viðurkenna að hafa sjaldan grátið eins mikið - af hlátri, eins og undir lestri Þórarins. Bið ég alla fallegandi hugsandi menn af- sökunar á hegðan minni. Ég hafði það nefnilega á tilfinningunni, að ég væri að brjóta lög. Eins og reyndur leikari las Pétur Gunnarsson sögu sína : "Tvær konur". Sagan er heilsteypt með upphafi og enda og innihaldi, þar sem hvergi er farið út Frh. á bls. 150.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.