Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 36

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 36
JÓNAS HALLGRI'MSSON gat verið ill- kvittinn, eins og samskipti hans við Sig- urð Breiðfjörð sýndu augljóslega. Þessi ferskeytla kemur þessu máli þó ekki við Malsvörn Feikna þvaðuí fram hann bar fallega þó hann vefur. Lagamaður vfst hann var varði tófu refur. JÓHANN JÓNSSON er fulltrúi þeirra skálda íslenzkra á ZO. öld, sem dóu ung- ir í" fatækt og umkomuleysi. jóhann nytur þessa vissulega, hve lítið er til eftir hann. Hins vegar er það til skammar, að engin skólaljóð skuli hafa tekið upp ljóð eftir hann. Kvæði hans, Söknuður, er eitthvert fegursta kvæði hans. "T þessu kvæði eru rakin öll fyrri kvæði hans og svo ævi. . . ", segir Kiljan einhvers staðar. Svona orti jóhann Jónsson : Blítt lætur veröldin Blftt lætur veröldin, Drjúpa döggvartár um dalvíðis hár. Nóttin hverfur vestur um víðisunnir blár og vekur þá er sofa, sofa. Blftt lætur veröldin. Huliðsheimum frá heyrast klukkur slá. Nóttin dreypir draumvegum dagsins varir á og blundi vefur þá er vaka, vaka. Blítt lætur veröldin. Bið óg þín i kvöld bak við rökkurtjöld, sorgin mín með húm um brár og bleikra lokka fjöld og andvökunnar haf 1 augum þínum. SKRAUTLEGAR ÚTGÁFUR hafa orðið mörgu ágætu skáldinu að falli. jón Trausti er ágætt dæmi um þetta. Þrátt fyrir ágætar sögur sínar ( Halla, Heiðarbýli etc. ), hefur 1000 kr. skraut- útgáfan gert hann svo lítilfjörlegan 1 aug- um sumra, að þeir leggja ekki einu sinni á sig svo auvirðilegan hlut, sem að lesa þessar bækur. Þvú fer sem fer. Davfð heitinn hefur einnig fengið að kenna eilítið á þessum hlut, þótt vissu- lega sá það ekkert svipað, enda á slíkt ekki við um ljóð 1 eins ríkum mæli. EN MIKIÐ LJÓMANDI hefur Davið ort vel og ætti þjóðin miklar minningar um hann, ef hann hefði sent svo sem fjórum sinnum minna frá sér. Ég hef persónulega alltaf verið veik- astur fyrir kvæðinu "Til eru fræ", hvers upphaf er : Til eru fræ, sem fengu þennan dóm að falla 1 jörð, en verða aldrei blóm. Eins eru skip, sem aldrei landi ná og iðgræn lönd, er sökkva 1 djúpin blá. . . . etc. Og hugurinn staðnar ekki, þegar Davxð lýkur kvæðinu : Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn og lítil börn, sem aldrei verða menn.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.