Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 27

Skólablaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 27
137 - Snjallir menn. E>að hefur vakið furðu og jafnvel reiði manna, að hin vinsæla utgáfustarfsemi Framtiðarinnar, sem kennd var við Ár- mann Sveinsson, virðist með öllu horfin. Svo er þó ekki, þvi að innan tíðar kem- ur út bæklingur, sem hljóta mun nafnið "Það mælti mín móðir1', og inniheldur ræður þeirra Freys Þórarinssonar og Geirs Rögnvaldssonar komplett, en þeir eru sem kunnugt er langbezt máli farn- ir þeirra, er munn opna á Framtíðar- fundum. Glæpur. Einn úr hópi þessara hrjáðu líkamn- inga, sem dveljast á kennarastofunni, hefur orðið uppvís að stórkostlegu svindli og braski í sambandi við starf sitt. Lætur hann dóttur sína 8 ára fara yfir stilpróf lakari bekkja sinna. Gerast þessi undur í" latinu, en dóttir þessa kennara lærir þetta tungumál 1 uppvext- inum, meðan önnur börn læra íslenzku. Sem kunnugt er fá kennarar greiddar þrjár krónur fyrir hvern yfirfarinn stíl, og er alveg óviðunandi, að ómenntað fólk fai notið þessara tekna. Ætti þessi kennari sem minnst að ræða um fjar- vistir og svik nemenda 1 sambandi við námið, eftir þessa uppljóstran. - Og segir ekki máltækið : "Bylur hæst 1 tómri tunnu". Og svo er það, sem verra er; dóttir ónefnds kennara er hinn mesti harðjaxl, hvað snertir eink- unnargjafir. - "Sjaldan fellur eplið fjarri eikinni". Leitað nafns. Mikið hefur húllumhæið verið í sam- bandi við íhöndfarandi Jólagleði, og ef- laust verður ánægjulegt að sjá alla nú- tímalistina. Serstaklega verður gaman að sjá á sviði þennan þátt eftir Birgi Engilberts, þennan æ, þið vitið,Sæ. .. Ó, af sakið T Jæja, sleppum því". Fuglaskoðarar! Brotajárnssalar ! Tapazt hefur lútill geislabaugur ein- hvers staðar á svæðinu Aragata - Borg- in - Háahlíð. Menn eru beðnir um að gá 1 öll þekkt Hrafns-hreiður, þar eð vitað er, að sú fuglategund er mjög elsk að öllu gló- andi. Fundarlaun engin. Heilagsandafólagið. Eitt er það fólag merkt her 1 skóla, sem geymir háleitari hugsjónir en al- mennt gerist. Ber það nafnið UNO ORE, sem útleggst "einradda", að því er Björn Baldursson óperusöngvari greinir frá. Til dæmis um mikilsverð barattu- mál þessa öndvegis fólags, má nefna bréf eitt, er þeir sendu til umferðar- nefndar, og hvarí var krafizt betur merktrar gagnbrautar yfir Lækjargötu, framan við M. R. Og félagið er svo sannarlega metið 1 samræmi við verðleikana: Á árshátíð Framtíðarinnar hafði UNO ORE eitt borða þeirra, er ætluð voru kennurum skólans. Fyrir jólin. Margir nemendur eru í miklum fjár- kröggum nú sem stendur. BÓt á þvú meini er gjarnan að ráða sig 1 atvinnu 1 jólaleyfinu. En það er mjög erfitt sem kunnugt er. ÞÓ fara nokkrir nem- endur fáfarnar leiðir i þeim efnum. Kristján P. Magnússon ætlar að koma fram í eigin gervi ( sem jólasveinn ). jóhannes Þorsteinsson og fleiri nemend- ur selja jólakort. Og nýlega sast aug- lýsing x einu dagblaðanna, svohljóðandi : Baka og sel smákökur við mjög vægu verði. - Vilmundur Gylfason - En þetta er náttúrlega ekki öllum lagið.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.