Skólablaðið - 20.12.1966, Page 14
Atli Heimir Sveinsson :
ÞAÐ er ekki auðvelt fyrir tónskáld að lýsa viðhorfum sínum til listarinn-
ar 1 orðum. Mál þess^er hljóðið, og verkin mynd þess af listinni. Orðið
getur aldrei komið 1 staðinn fyrir hljóðið, hljóðið aldrei 1 stað litsins og
línunnar. Til eru þau svið mannlegs andas sem orðið eitt getur tjáð, og
önnur, sem aðeins verða túlkuð með hljóði, enn önnur sem aðeins litur og
lína megna að tjá. Orðið, hljóðið, liturinn og líhan eru mismunandi tján-
ingartæki, geta stundum komið 1 stað hvers annars, en ekki nærri alltaf.
Vandamál listamanna x mismunandi listgreinum eru lík að sumu leyti, en
ólík að öðru. Viðhorf listamanns til listarinnar eru ákaflega persónuleg
og mótuð áf starfi hans, því hann hefur við fátt annað að styðjast.
Og það er erfitt að skoða eigin hug, þekkja sjálfan sig.
óvissa um markmið og öryggisleysi fylgja listamanninum alla ævi hans.
Það er enginn, sem getur sagt honum eða bent honum á, hvert ber að
stefna. Oft veit listamaðurinn ekki sjálfur hvert hann á að stefna eða
hvert hann stefnir. Það hefur engum tekizt að spá neinu um framtíð list-
arinnar, og hun breytist vanalega þveröfugt við það, sem vísustu menn
halda. En kannske hugsar listamaðurinn ekki svo mikið um framtiðina,
hvað þá heldur fortíðina. Bandaráska tónskáldið Varese sagði þegar hann
var spurður u'm framtfö fónlistár : "Ég hef engan áhuga á framtíð listar-
innar né fortið, þvi ég er alltaf að fast við nútiðina. " En þegar maður
veit ekki hvernig næstu tfu sekúndur eiga að vera 1 tónverki og veltir þvf
fyrir sér klukkutímum saman, þá sækja að þrálátar spurningar : Hvert
ber að stefna? já - hvert et markmiðið? Það er ekki unnt að gera á-
ætlanir um framtíð listarinnar, þvi markmiðið er svo óljóst.
Listamaðurinn veit aldrei hvers virði árangurinn er af starfi hans, sem
oft er þrotlaust og eflaust satt hjá Þórbergi, að áldrei hafi verið sett
saman svo léleg bók á fslandi, að það hafi ekki kostað meira andlegt
erfiði en að stjórna togaraútgerð 1 heilt ár, að mig minnir.
ÞÓ eitthvert verk slái í gegn, njóti vinsælda og aðdáunar, þá þarf slikt
ekki að vera neitt mælikvarði á listrænt gildi þess, og er það oft ekki.
Kannski er tíminn einn óskeikull listdómari ( vonandi þó ? ), en hann kveð-
ur fyrst upp dóm sinn, þegar höfundur verksins er allur. Ýmsir lista-
menn, sem ég þekki, óska þess af öllu hjarta, að verk þeirra lifi lengur
en þeir, en mér finnst þetta hroki, dramb, yfirlæti,
Ég get varla hugsað mér annað en að þau verk, sem ég hef gert, hverfi
um leið og ég af þessu tilveruplani, þvf þau eru svo samtengd mér og
mínu lífi, svo mikill hluti af sjálfum mér. Þau eru kannski heldur ekki
svo merkileg, þvf ég veit ekki betur en lærðir og gáfaðir fagmenn hafi
lýst þvi yfir á opinberum vettvangi, að verri músik hafi varla verið sett
saman af nokkrum manni hérlendis.
Enginn listamaður fær að vita, hvort hann var liðtækur sem slíkur.
NÚ nægir ekki að vera "liðtækur" á listasviðinu, þó annars staðar sé það
látið gott heita. Listin viðurkennir enga meðalmenn, aðeins afburðamenn.