Skólablaðið - 20.12.1966, Page 20
130 -
að þvi miður áttaði ég mig alls ekki a því
augnabliki að hér gæti verið um pélitískan
áréður að ræða, annars hefði ég beðið
ólaf að láta það vera. " Ennfremur segir
rektor: "Auk þess er ég ekki tortrygginn
að nátturufari og fyrir þvá urðu mér þessi
mistök á, sem eg harma. " Þessi athuga-
semd rektors ber þess glögg merki, að
ekki hafa B-listamenn komið fram 1 réttu
ljósi eða upplýst rektor, hvað verða myndi
til fróðleiks á hófinu og hver tilgangur
boðsins var. í öðru lagi, ber að víta þa
framkomu forustumanna B-listans, er
þeir sýndu fulltrúum bekkjardeildanna og
6. bekkingum öllum, með því að ólafur
duldi þá sannleikann um hver að hófinu
stóð. ólafur gætti meira að segja ekki
samræmis í kynningu hófsins og tjáði hann
sumum, að boðið kæmi frá Stúdentaráði,
öðrum að "Háskólastúdentar" stæðu að
baki þess og enn öðrum, að Stúdentafélag
Háskóla fslands byði þeim til hófsins, en
gætti þess vandlega að nefna ekki nafn
bakstuðnings sins, þ. e. a. s. B-listann, 1
boðinu. Án efa hefur framsóknarmanninn
grunað, að ekki hefði verið vænlegt til
árangurs að nefna hið rétta, og þessvegna
flagga fölsku flaggi án þess að blikna.
Öllum hlýtur að vera ljóst, að ekki hef-
ur boðinu legið til grundvallar mannkær-
leikur og fórnfýsi forystumanna B-listans,
heldur er aðeins skákað 1 Jpví skjólinu til
að koma á framfæri á lævisan hátt fagnað-
arerindi þeirra. Aðför þeirra B-lista-
manna að nemendum MR skulu menn sér
i minni festa og brynja sig gegn slíkri
framkomu, þvá að án efa eiga menn eftir
að mæta þvílíku aftur af hálfu sömu aðila,
er í Haskólann kemur og eiga þá auðveld-
ar með að forðast gaspur þeirra og gylli-
boð.
10. des. 1966
Árni ól. Lárusson
Nota bene : Þeim, sem vilja kynna sér
nánar mál þetta, skal bent á eftirfarandi
hugverk :
1) Árni öl. Lárusson : "B-listamenn Hf
rjúfa friðhelgi Menntaskólans "
( Morgunblaðið 8. des. bls. 12 )
2) Einar Magnússon : "Athugasemd"
( Morgunblaðið 9. des. bls. 16 )
3) Anonymus : "PólitÚskur áróður í MR"
( Þjóðviljinn 10. des. bls. 12 )
4) Anonymus : "Vaka mótmælir pólitísk-
um áróðri í M. R. "
( Morgunblaðið 10. des. bls. 31 J
5) Anonymus : "Þjóðviljinn hleypur a
sig" ( Morgunblaðið ll.des. bls. 2 )
6) Reykjavíkurbréf : "Hoflaus frekja"
( Morgunblaðið 11. des. bls. 17 )
Ritnefnd
Að lokum .
Vetur er genginn í garð, og komið er
svartasta skammdegi. Dagana styttir óð-
um, og lærdómsokið á herðum nemenda
eykst að sama skapi. ÞÓ standast margir
allar þrekraunir og bila hvergi, þótt á
reyni við lesturinn, og er það vel.
En þeir eru einnig ófáir, sem láta hug-
fallast, þegar harka færist í leikinn.
Slíkir menn sinna náminu lítið, og óleyst
verkefni hrannast upp fram undan. Heils-
an bilar oft, þegar skyndipróf eru á næsta
leiti, og ósjaldan nær örvæntingin há-
marki sínu, þegar menn keppast í frímín-
útum við lestur "versjóna" eða kvæða-
skýringa fyrir næstu kennslustundir.
Samvizkukvalir valda mönnum þunglyndi,
og þeir leggjast túðum í botnlaust hugar-
víl. Þeir vita hverju er um að kenna, og
sjálfsásökunina fær ekkert hamið. Tauga-
kerfið leggst í rúst og allt atferli manna
til orðs og æðis ber vott um algjöra vit=
firringu.
Nú fyrir skömmu var það eitt sinn, að
ég ( sem tilheyri siðarnefnda hópnum )
tók afskaplegt þunglyndiskast. Ég var
svo illa á mig kominn, að ég gat ekki
komizt hjá þvi að finna sálarheill minni
stefnt í voða. Ég lá andvaka í rúmi mínu
heila nótt án þess að mér kæmi dúr á
auga. Þá heltóku mig voðalegir vonleys-
isórar um framtúð mina, og mér rann
mjög til rifja tilhugsunin um óforbetran-
legan aulahátt og dusilmennsku á liðnum
æriárum, svo að ekki sé nú meira sagt.
Ég vissi að hverju stefndi, og þegar
ekkert bráði af mér, vildi ég leita mér
huggunar og hugfróunar í einhverju, sem
gæti veitt mér hvíld frá þessum sálar-
pínslum. Samdi ég þá agnarlítið ævin-
týri, sem trauðla gæti átt sér stað í raun-
veruleikanum, enda liður í flótta mínum
Frh. á bls. 149.