Skólablaðið - 20.12.1966, Qupperneq 26
- 136 -
Nytt félag.
Stofnað hefur verið félag hér 1 skéla.
Formaður þess er Þorður Örn, ritari
Stefán Örn og gjaldkeri jóhannes Örn
( alg. Björnsson ). Tilgangur þess er ó-
kunnur svo og markmið. Margir hafa
nu þegar sótt um inngöngu í félagið,
til að mynda jón Örn, Kjartan örn,
Gunnar örn, Guðmundur Örn, Ingólfur
Örn, Eyjólfur örn og Örn. Skjaldar-
merki félagsins sýnir örn að' ganga örna
sinna. Fyrsta verkefni félagsins er
bygging rúmgóðs fundarsalar, sem hljóta
mun nafnið salerni.
Flett ofan af ósóma.
Nú hafa yfirvöld skólans ákveðið að
halda aldrei framar sögupróf á Sal.
Ástæðan mun vera sú, að einhver gam-
all nemandi lét þau orð falla einhvers
staðar, að á Sal mætti heyra nið sögunn-
ar.
Ber að fagna þessu, þvá að það hefur
alltaf sýnt sig, að ístöðulitlir nemendur
hafa leitazt við að notfæra sér þennan
ágalla á salnum.
Ó, allir þess-
ir kommar.
Vinur okkar,
Pétur Kjartans-
son, hefur beitt
sér fyrir þvi!’,
að Framtí’ðarstjórn lýsir yfir sitthverju
um pólitískan áróður hér 1 skólanum.
Slíkt ber ætáð að þakka, svo og að
gleðjast yfir, og hrifning nemenda leynir
ser ekki.
Heyrzt hefur, að næsti skólafundur
ætli að fela Pétri þessum, ásamt Árna
Lárussyni, að verða sérstakir ráðgjafar
um það, hversu megi leiða menn til fylg-
is við sig og skoðanir smar.
Pétur ætlar á næstunni að fara þess
a leit við rektor, að hann þurfi ekki
ævinlega að sitja á skólabekk með öllum
þessum hálfkommum og þvá heldur að láta
þessa hálfkomma kenna sér.
Rektor mun skrifa 1 blöðin út af mál-
inu.
Eitthvað er að gerast.
Femina pulchra scholae, Magdalena
vinkona Schram, hefur verið athafnasöm
á sviði framkvæmda innan skólans.
Eftir að hún hafði sannað hæfileika sína
svo ótvárætt, að jafnvel sexmaníakknum
Kristni Einarssyni féllust hendur, fór
hún að hafa hljótt um sig.
En - oft kemur stormur á eftir logni,
- búðið þið bara og mætið á Jólagleðina.
Námskeið.
Fyrirhugað er að stofna til dansnám-
skeiðs innan skólans. Forstöðumaður
námskeiðsins verður Jón Gröndal.
Aðstoðarmaður hans verður jóhannes
Björnsson, fyrrverandi ritstjóri, 1 sjötta
bekk, sem mun kenna limamýkt 1 göngu-
lagi og aðrar dúnmjúkar hreyfingar.
Fylgja þvi verklegar æfingar frá hans
hendi.
Mælt verður á enska tungu á nám-
skeiðinu.
Uxinn er hugsi.
Mikið lif—
andis skelfing-
ar ósköp væri
gaman að vera
jafn bráðger
og Þorarinn
Eldjárn. Eins
og nemendur
allir vita,
geislar svo af
þessum undurfagra pilti, hvar sem hann
kemur og fer ( það síðarnefnda er nú
öllu skemmtilegra ), að öfundin leynir
sér ekki hjá skólapiltum.
Þórarinn ( áherzla á a) hefur 1 hyggju
að gefa út bók á næstunni, sem mun
bera nafnið "Min eigin orð". Verður það
samsafn af þvú, sem Þórarinn hefur
skrifað og sagt og teiknað, frá þvi hann
fékk fyrstu litabókina ( 11 ára sakir
seinþroska ).
Báðir tilvonandi kaupendur bókarinn-
ar ( menningarvitarnir Baldur Guðlaugs-
son og Þorvaldur Gunnlaugsson ) bíða
spenntir, enda ekki á hverju ári, sem
koma út tvær góðar minningabækur, þ. e.
bók Þórarins og jónasar Þorbergssonar.