Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 20.12.1966, Síða 34

Skólablaðið - 20.12.1966, Síða 34
Jesús Kristur frá Nazaret, hvað þetta er stór og rauð appelsína sem þú ert að horfa á elskan mín, sagði ung stúlka með vindil við hund, sem lá á pianóstól, og fannst lyktin 1 herberginu fyrir neðan allar hellur. Mózart, Mózart ! hrópaði stúlkan, og hundurinn tók að leika forleik inn að brottnáminu úr kvennabúrinu, eft- ir Wolfgang Amadeus Mozart ^) með einni kló. Hann lók ekki nákvæmlega=allir geta leikið nákvæmlega en hann lék af tilfinn - ingu 2). Ég leik ekki nákvæmlega, sagði hann, en ég leik líka aðeins með einni kló. Stúlkan brosti og 'sagði hálft 1 hvoru 1 gamni og hálft í hvoru 1 al- vöru : Þú truflar mig við lesturinn Michel- angelo. Hvað ertu að lesa, spurði hundur - inn og sló _ feilnótu. Orð, orð 3) Michel- angelo svaraði hún og sogaði djúpt að sór reykinn úr vindlinum. Herbergið var þrung- ið rósailmi og Michel- angelo var með rósa- krans um hálsinn. Hann sárlangaði í vxn- ber en þorði ekki að segja það. Hann hætti að spila og horfði tómlega á nótnablöðin fyrir framan sig. Um stund ríkti algjör kyrrð í herberginu. Loks varð þögnin stúlkunni ofviða og hún stökk á fætur og tók nokkur dansspor. Ég vildi óska að þú segðir eitthvað sagði hún um leið og hún strauk honum á höfðinu. Ég er bara hundur, andvarp- aði Michelangelo. Til hvers er hægt að ætlazt af mór, hundi? Hann varð dapur á svip: öll list er vitagagnslaus ^), sagði hann svo eftir dálitla þögn. Ég man þegar óg var lítill hvolpur, og mamma míh gekk með mig í tunglsljós- inu niður að ánni. Við hlustuðum á froskana kvaka og sáum tunglið dansa á vatninu. Svo komst þú Ágústa. Þú tókst mig heim til þín og kenndir mór á píanó. NÚ er eg ekki venjulegur hundur lengur, nú er óg óvenjulegur. En miklir- hótel- brunar leiða af ser miklar sorgir, og ekki er óg að syrgja. hið liðna. Hættu. Michelangelo! hrópaði stúlkan. Hættu að rifja upp þetta gamla og leið- inlega. Skemmtum okkur heldur ærlega. Má óg bjóða þór sherry? Hundar drekka ekki sherry, sagði Michelangelo angurvær. En Hunts portvín, Madeira, Martini, Beefeater, Bacardi, Dubonnet, Long John, rakspára, meira get óg ekki boðið sagði hún. Ég er ekki fylliraft- ur, sagði hundurinn stuttaralega. - Þá var barið. Fyrst þrisvar sinnum lótt, siðan nokkrum sinnum fastar. Hundurinn og stúlkan litu skelfd hvort á annað. Nú var hle skamma stund. Svo var barið aftur. Stúlkan ræskti sig : Hver er þar? kall- aði',hún. Þögn. Hver er þar? kallaði hún aftur. Michelangelo stökk ofan af píanóstólnum og læddist á bak við dumb- Frh. á bls, 151.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.