SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Blaðsíða 12
12 13. febrúar 2011
Mánudagur
Arnar Gauti Sverr-
isson Er heima með
litla veika prinsessu
& á morgun, en
glaða enga síður ;-)
hitar te og fleiri töfradrykki
handa parísi við mismunandi
undirtektir....
Þriðjudagur
Þórarinn Leifsson
Sérpantaði búrku á
átján ára dóttur
mína. Mikið er ég
lánsamur maður að
eiga barn sem elskar og virðir
trúarbrögð föður síns!
Miðvikudagur
Davíð Þór Jónsson
Er öðlingur dagsins
Fimmtudagur
Rakel Garðarsdóttir
Laugardagurinn
12.feb; Geðveikur
fatamarkaður FC
Ógnar í Tjarnarbíói og svo Aftur
heim í júró... gæti ekki verið
skemmtilegri laugardagur....
hlakka svo til !!
Föstudagur
Solla Eiriks elskar að
búa til RAW Lasagna
Fésbók
vikun nar flett
A
ð sjálfsögðu vil ég að Ísland
haldi áfram að taka þátt í Jú-
róvisjón. Að hætta því væri
eins og að hætta að taka þátt í
lífinu. Við yrðum eins og þjóð sem vill
draga sig inn í skel og einangra sig í her-
bergi með sínum sviðakjamma og slátri.
Það er hræðilegt að einangra sig og
hræðilegt að vilja ekki taka þátt.
Mér finnst ég alltaf heyra sömu gagn-
rýnisraddirnar þegar okkur Íslendingum
gengur ekkert voðalega vel. Af hverju
hættum við ekki bara að spila handbolta á
alþjóðagrundvelli? „Strákarnir okkar“
rúlluðu upp fimm leikjum í röð um dag-
inn, svo kláraðist orkan og þá fóru menn
að dissa þá um leið, jafnvel gefa þeim
fingurinn með yfirlýsingum um að þetta
væri lélegt lið.
Þetta er raunverulega stærra vandamál,
sem heitir íslenskur hroki og hann er ge-
netískt vandamál. Hrokinn er eitthvað
sem við ættum að beina sjónum okkar að
frekar en stöðugum umræðum um hvort
við ættum að hætta í Júróvisjón eða ekki.
Svo bendi ég á að þessar gagnrýnisradddir
þögnuðu um leið og Stjórnin lenti í 4.
sæti, Selma í 2. sæti og Jóhanna Guðrún í
2. sæti. Þar með var Júróvisjón allt í einu
frábær og við sem þjóð manna best!
Má ég minna á þá staðreynd að eftir að
Þjóðverjar unnu keppnina árið 1982 með
Ein bischen Frieden þurfti þetta stórveldi
að bíða í nærri þrjátíu ár eftir næsta sigri,
þegar Lena vann í fyrra. En aldrei – aldrei
– hefur Þjóðverjum dottið í huga að
draga sig út úr keppninni af því að Júróv-
isjón væri algjört svindl! Við ættum frek-
ar að taka Þjóðverja okkur til fyr-
irmyndar í stað þess að sýna þennan eilífa
hroka sem skýtur upp kollinum þegar
íþróttafólkið okkar eða listafólkið upp-
sker ekki eins og við heimtum.
Júróvisjón er vorboði fyrir Íslendinga;
við þurfum á nýjum lögum og lagasmíð-
um að halda og tónlistarfólkið okkar,
söngvarar, flytjendur og lagahöfundar,
þurfa þennan stökkpall. Þetta er gaman,
litríkt, fyndið, gefandi og spennandi eins
og sést núna; nú hefur öll þjóðin skoðun
á keppninni [í kvöld]. Ég vil ekki heyra
eitt slæmt orð í viðbót um Júróvisjón.
Tökum bara þátt í keppninni eins og
menn, með reisn og tökum bæði sigrum
og ósigrum með jafnaðargeði og æðru-
leysi.
MÓTI
Páll Óskar
Hjálmtýsson
söngvari og Evr-
óvisjón unnandi
A
ðalástæðan fyrir því að
við eigum að hætta því
að taka þátt er auðvitað
sú að við vinnum aldrei.
Við höldum alltaf að við munum
vinna en við vinnum barasta aldr-
ei!
Tölfræðilega ættum við að vera
löngu búin að vinna en það hefur
samt sem áður ekki gerst ennþá!
Það er náttúrlega bara ein skýr-
ing á þessu sem er sú að þetta er allt
saman riggað, fyrirfram ákveðið og
stórspillt. Dálítið einsog amerísk
fjölbragðaglíma. Eitt stórt samsæri.
Þess vegna legg ég nú til að við
stofnum bara okkar eigin keppni
þar sem við getum séð til þess að
við vinnum í a.m.k. annað hvert
skipti. Við gætum kallað hana
Eurovision Supersong Contest,
sem segir sig sjálft að yrði miklu
betri keppni en Eurovision Song
Contest. Þetta myndi snarbæta
þjóðarmóralinn og setja okkur á
stall með frændþjóðum okkar sem
við viljum svo mikið líkjast eins og
Svíum og Dönum.
MEÐ
Gaukur
Úlfarsson
kvikmynda-
gerðarmaður
Ættu Íslendingar að
hætta í Evróvisjón?
’
Þetta er allt fyr-
irfram ákveðið og
stórspillt. Eitt stórt
samsæri. ’
Tökum þátt í keppn-
inni eins og menn,
með reisn og tökum
bæði sigrum og ósigrum
með jafnaðargeði og æðru-
leysi.
Úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins eru í kvöld. Þá ræðst hver keppir fyrir Ísland í vor.
Gaukur var einn höfunda ævintýrisins um Syl-
víu Nótt sem söng í Grikklandi árið 2006.
Morgunblaðið/Eggert