SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Blaðsíða 16

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Blaðsíða 16
16 13. febrúar 2011 S tríð Silvios Berlusconis, forsætis- ráðherra Ítalíu, við ítalskt rétt- arkerfi heldur áfram. Á miðviku- dag fóru saksóknarar í Mílanó fram á að mál á hendur Berlusconi vegna ásakana um að hann hefði misnotað vald sitt og haft samræði við ólögráða stúlku fengi flýtimeðferð fyrir dómstólum vegna þess að fullnægjandi sannanir lægju fyrir um að hann hefði framið bæði brot. Ber- lusconi brást þegar ókvæða við, sakaði ásakendur sína um undirróður og vísaði málatilbúnaði þeirra á bug sem tilraun pólitískt litaðs dómsvalds til að bola sér úr embætti. „Ég get bara sagt að þetta er farsi,“ sagði Berlusconi. „Það er enginn grund- völlur fyrir þessum ásökunum. Eina markmið rannsóknarinnar er að koma óorði á mig í fjölmiðlum.“ Berlusconi og stuðningsmenn hans hafa iðulega sagt að ítalska dómskerfið sé griðastaður komm- únista, sem hafi það helst fyrir stafni að brugga gegn honum launráð. „Við erum ekki bolsévikar“ Ugo De Siervo, forseti stjórnlagadómstóls Ítalíu, æðsta dómstigs landsins, svaraði Berlusconi fullum hálsi á fimmtudag og sagði ásakanir hans „ýktar og taugaveikl- aðar“ og bætti við: „Flestir okkar eru mjög hófsamir og nú höfum við verið stimplaðir. Við erum ekki bolsévikar.“ Seinna um daginn fór í dreifingu viðtal, sem birtist við Berlusconi í föstudags- útgáfu dagblaðsins Il Foglio. Þar lætur forsætisráðherrann vaða á súðum og for- dæmir samræmdar tilraunir „til að breyta hlægilegri rannsókn í alþjóðlegt hneyksli í anda njósnaveiðanna, sem gerðar voru í „líf annarra“ í Þýskalandi kommúnista“. Líf annarra nefnist þekkt kvikmynd, sem snýst um það hvernig njósnir þýsku ör- yggislögreglunnar, Stasi, um almenning eitruðu austur-þýskt samfélag. „Ég er stundum syndari rétt eins og all- ir,“ sagði Berlusconi í játningatóni í við- talinu, en bætti svo við að hinir siðavöndu dómarar vildu ekki bara koma honum frá heldur breyta ítölsku samfélagi: „Þeir sem boða hið siðprúða lýðræði með eig- inleikum púritana og jakobína eru með alræðislýðræði í huga, andstæðu kerfis, sem byggist á frelsi, umburðarlyndi og sannri siðferðislegri samvisku bæði op- inberlega og í einkalífi.“ Ítalskt dómskerfi er þannig uppbyggt að saksóknarar geta beðið um flýti- meðferð telji þeir að þeir séu með óyggj- andi sannanir í höndum. Cristina De Senso, dómari í Mílanó, þarf nú að skera úr um hvort svo sé og hefur til þess fimm daga. Telji hún að svo sé ekki þurfa sak- sóknararnir að fara hefðbundna leið í dómskerfinu og tekur það mun lengri tíma. Di Censo þarf einnig að skera úr um það hvort dómstólar í Mílanó séu hæfir til að fara með málið. Lögmenn Berlusconis halda því fram að mál hans geti aðeins farið fyrir sérstakan dómstól ætlaðan þingmönnum. Einn þeirra, Niccolo Ghed- ini, hefur einnig sagt að verði fallist á flýtimeðferð verði því áfrýjað og þá fer málið fyrir neðri deild ítalska þingsins þar sem Berlusconi hefur meirihluta. Edmondo Bruti Liberati saksóknari og félagar hans halda því fram að Berlusconi hafi greitt dansara í næturklúbbi, Karimu el-Marough, sem kölluð er Ruby og málið Rubygate, fyrir kynlíf þegar hún var 17 ára. Hann hafi einnig notað vald sitt með ólögmætum hætti þegar hann fyrirskipaði í maí á liðnu ári að hún skyldi látin laus úr haldi eftir að hún var handtekin fyrir búðarstuld. Berlusconi útskýrði inngrip sitt með því að hann hafi haldið að hún væri frænka Hosnis Mubaraks, forseta Egyptalands, á miðvikudag kvaðst hann hafa viljað koma í veg fyrir alþjóðlegt hneyksli. Ruby er reyndar frá Marokkó og ekki skyld Mubarak. Ekki er refsivert að kaupa vændi á Ítal- íu, en þegar ólögráða einstaklingur á í hlut varðar það allt að þriggja ára fangelsi. Misnotkun embættis varðar allt að 12 ára fangelsi. „Í svona læknasloppi og engu innanundir“ Gestir í samkvæmum Berlusconis hafa verið yfirheyrðir og símar hleraðir. Mála- tilbúnaðurinn er á 389 síðum og um miðj- an janúar var hann afhentur þinginu, sem átti að skera úr um hvort ákæruvaldið fengi heimildir til frekari rannsókna á einkareitum forsætisráðherrans. Inni- haldið átti að fara leynt, en hefur verið til stöðugrar umfjöllunar í blöðum, allt ofan í óþægilegustu smáatriði. „Hann er orðinn gamall,“ segir ein af samkvæmisstúlk- unum í afriti af símtali. „Feitur og ljótur, en örlátur.“ Þar er einnig þetta samtal: „Maður á að vera hin opinbera hjúkrunarkona.“ „Ha, ha. Hann sagði það líka við mig.“ „Grín- astu við hann, þú þarft að vera með þykj- ustu blóðþrýstingsmæli og slopp.“ „Í svona læknasloppi og engu innanundir.“ „Og þá segir þú við hann, ég er hjúkr- unarkonan, ég á að rannsaka þig – þú veist hvað hann hefur gaman af svoleiðis hlutum.“ Í skjölunum eru lýsingar á samkvæm- um Berlusconis í villu hans í Arcore. Eftir nektardansinn á Berlusconi að velja þær konur úr sem fá að vera um nóttina. Talað er um „bunga-bunga“-samkvæmi. Ákæruvaldið er með þrjár persónur til rannsóknar vegna gruns um að hafa út- vegað stúlkur í samkvæmin. Þar á meðal er Nicole Minetti, fyrrverandi aðstoð- arkona á tannlæknastofu, sem Berlusconi kynntist þegar maður réðst á hann og keyrði líkan af dómkirkjunni í Mílanó í andlitið á honum. Minetti er nú svæðis- stjóri flokks Berlusconis í Langbarðalandi. Reuters Ég er stundum syndari Silvio Berlusconi hefur ávallt verið umdeildur, en hvað eftir annað hafa ítalskir kjósendur kosið hann til valda. Nú er þó svo komið að páfa ofbýð- ur lífstíll forsætisráðherrans og við honum blasa réttarhöld vegna ásakana um samræði við ólög- ráða stúlku og misbeitingu valds síns. Karl Blöndal kbl@mbl.is Þátttakandi í mótmælum gegn Berlus- coni heldur á lofti bleikum nærbuxum.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.