SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Page 17
13. febrúar 2011 17
Berlusconi kveðst aldrei hafa átt mök
við Ruby. Samkvæmt skjölunum á Ber-
lusconi að hafa hringt í hana og sagt henni
að ljúga og láta eins og hún væri galin,
hann myndi baða hana í gulli ef hún
þegði. Hún á að hafa krafið hann um fimm
milljónir evra.
„Hann hélt að ég væri 24 ára“
Seinni partinn í janúar birtist Ruby á einni
af sjónvarpsstöðvum Berlusconis, Canale
5, og lýsti bernsku sinni í Marokkó,
hvernig sér hefði verið nauðgað og hún
hefði verið kúguð. „Hann snerti mig
ekki,“ sagði hún. „Hann hélt að ég væri
24 ára.“ Berlusconi hefði gefið sér 7.000
evrur „vegna þess að hann vildi hjálpa
mér“.
Öll þessi mál hafa valdið mikilli ólgu á
Ítalíu og þótt menn séu ýmsu vanir þegar
Berlusconi er annars vegar eru margir
slegnir vegna uppljóstrana undanfarinna
vikna um lífsstíl forsætisráðherrans, sem
orðinn er 74 ára gamall. Meira að segja í
páfagarði þar sem Berlusconi hefur notið
velvildar heyrðist hörð gagnrýni. Bene-
dikt XVI. páfi talaði um „ákveðna veik-
ingu siðferðis“ og hægri hönd hans, Tarc-
isio Bertone, krafðist „hegðunar til
eftirbreytni og aukinnar tilfinningar fyrir
réttvísi og réttlæti“.
Fyrir viku mótmælti hópur manna við
villuna hans í Arcore. Þar á meðal voru
rithöfundarnir Umberto Eco og Roberto
Saviano, sem skrifaði bókina Gómorra um
mafíuna í Napolí. Í grein í þýska blaðinu
Die Zeit vitnar Saviano í rithöfundinn
Corrado Alvaro frá Kalabríu: „Það versta
sem getur komið fyrir samfélag er að
halda að heiðarleiki sé tilgangslaus.“ Síð-
an bætir hann við: „Þannig hefur það ver-
ið hjá okkur í 20 ár.“
Enginn forsætisráðherra hefur setið
jafn lengi í embætti og Berlusconi eftir
síðari heimsstyrjöld. Berlusconi fæddist
29. september 1936. Hann byrjaði á að
selja ryksugur og gat sér einnig orð fyrir
að syngja á næturklúbbum og um borð í
skemmtiferðaskipum. 1961 útskrifaðist
hann úr lögfræði og stofnaði verktakafyr-
irtæki, sem reisti hús í nágrenni Mílanó.
Síðar stofnaði hann kapalsjónvarpsfyr-
irtæki, Telemilano, sem átti eftir að verða
stærsta fjölmiðlasamsteypa Ítalíu, Media-
set. Siðprúðir dagskrárstjórar höfðu ráðið
lögum og lofum í ítölsku sjónvarpi, en á
stöðvum Berlusconis fylltist skjárinn af
fáklæddum konum, sem stóðu þöglar og
kynþokkafullar við hlið alklæddra karl-
stjórnenda. Kvartað hefur verið undan
klámvæðingu ítalsks samfélags. Eign-
arhaldsfélag hans á nú fjölmiðlafyrirtækið
Mediaset, Mondadori, stærsta forlag Ítal-
íu, dagblaðið Il Giornale, knattspyrnu-
félagið AC Mílanó og mörg önnur fyr-
irtæki, sem tengjast öllu frá tryggingum,
auglýsingum og matvælaframleiðslu til
verktöku. Samkvæmt bandaríska við-
skiptatímaritinu Forbes eru auðæfi Ber-
lusconis metin á níu milljarða dollara.
Til áhrifa í pólitík
Árið 1993 stofnaði Berlusconi eigin
stjórnmálaflokk og kallaði Forza Italia eða
áfram Ítalía, sem eru hvatningarorð
stuðningsmanna AC Mílanó. Árið eftir
varð hann forsætisráðherra, en stjórnin
sprakk eftir sjö mánuði og átti ákæra á
hendur Berlusconi fyrir skattsvik þátt í
því. Hann tapaði kosningunum 1996, en
komst aftur til valda 2001. Berlusconi tap-
aði í kosningunum 2006, en hafði þá af-
rekað að leiða langlífustu stjórn á Ítalíu frá
stríðslokum. Skömmu eftir ósigurinn hné
hann niður á flokksfundi og fékk hjarta-
gangráð. 2008 komst hann til valda á ný
og hóf kjörtímabilið af krafti, en svo fór að
halla undan fæti. Í mars 2009 sótti Vero-
nica Lario, önnur eiginkona hans, um
skilnað og sagði í blaðaviðtali að hún gæti
ekki verið með manni, sem legði lag sitt
við ólögráða stúlkur. Hafði hann þá verið
ljósmyndaður í 18 ára afmæli Noemi Le-
tizia, verðandi fyrirsætu. Hún sakaði
hann einnig um að „óforskammanlega
subbulega“ uppröðun á framboðslista til
Evrópuþingsins. Skömmu síðar voru birt-
ar myndir af berbrjósta konum og nökt-
um karlmanni að skemmta sér í húsi Ber-
lusconis á Sardiníu.
Undarleg ummæli
Berlusconi kemur iðulega á óvart með
uppátækjum sínum. Eitt sinn lýsti hann
því yfir að hann vildi „frekar horfa á fal-
lega stúlku en að vera hommi“. Einnig
vöktu furðu ummæli hans um hvað Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti væri „hár,
myndarlegur og sólbrúnn“. Útskýrði
hann að hann hygðist ekki vera við-
staddur þegar Obama tæki embætti vegna
þess að hann væri stjarna, ekki aukaleik-
ari. Eftir að hafa hitt forsetafrúna, Mic-
helle Obama, hafði Berlusconi einnig á
orði hvað hún væri sólbrún.
Ákærður hvað eftir annað
Berlusconi hefur á ferli sínum verið bor-
inn ýmsum sökum og dæmdur til að sitja í
fangelsi í sex ár og fimm mánuði, en dóm-
um gegn honum hefur verið hnekkt við
áfrýjun eða þeir ógiltir vegna þess að sak-
irnar töldust fyrndar.
Árið 1994 var Berlusconi sakaður um að
hafa mútað rannsóknarlögreglunni. 1997
var hann dæmdur í tveggja ára og níu
mánaða fangelsi. Hann áfrýjaði og var
sýknaður í maí 2000 að hluta til vegna
þess að málið þótti fyrnt. Hæstiréttur
staðfesti dóminn 2001.
1995 var Berlusconi sakaður um að hafa
keypt knattspyrnumann til AC Mílanó
með peningum úr ólöglegum sjóði, en
2002 knúði hann fram breytingar á lögum
um bókhaldsbrot þar sem refsingar voru
að hluta til afnumdar.
1995 var Berlusconi ákærður fyrir að
hafa svikið undan skatti þegar hann
keypti villu í Macherio skammt frá Míl-
anó, en aftur reyndist málið fyrnt.
Berlusconi var ákærður árið 1995 fyrir
að hafa falsað bókhald sitt þegar hann
keypti kvikmyndafyrirtækið Medusa og
dæmdur í 16 mánaða fangelsi árið 1997.
Hann áfrýjaði og var sýknaður árið 2000
og það var staðfest í hæstarétti árið eftir.
1995 var Berlusconi ákærður fyrir að
hafa veitt fé til ítalska sósíalistaflokksins
með ólöglegum hætti í gegnum afla-
ndsfyrirtæki. Hann var dæmdur í tveggja
ára og fjögurra mánaða fangelsi árið 1998,
en málinu var áfrýjað og látið niður falla
árið 1999 vegna fyrningar.
Árið 1996 var Berlusconi sakaður um
bókhaldssvik vegna sama aflandsfyr-
irtækis, en sýknaður árið 2005.
1998 var Berlusconi ákærður fyrir að
hafa mútað dómara þegar Fininvest yf-
irtók Mondadori. Hann var dæmdur, en
málið taldist síðar fyrnt.
Sama ár var Berlusconi einnig ákærður
fyrir að hafa mútað dómurum til að koma
í veg fyrir yfirtöku iðnjöfursins Carlo De
Benedetti á matvælarisanum SME árið
1985. Hann var sýknaður í hæstarétti
2007.
Enn eru yfirstandandi tvö mál á hendur
Berlusconi sem voru fryst snemma árs
2010 þegar sett voru lög sem veittu hon-
um friðhelgi í 18 mánuði. Hæstiréttur úr-
skurðaði lögin síðar að hluta til ógild og er
gert ráð fyrir að málaferli vegna meintra
skattsvika í tengslum við Mediaset-veldið
hefjist á ný í þessum mánuði. Öðrum rétt-
arhöldum, sem snúast um meintar mútur
til David Mills, fyrrverandi skattalög-
manns Berlusconis, verður væntanlega
framhaldið í mars. Mills hefir þegar verið
dæmdur fyrir að taka við 600 þúsund
dollurum í mútur fyrir að halda nafni Ber-
lusconis fyrir utan rannsókn annarra
spillingarmála.
Á þeim langa tíma, sem liðinn er frá því
að Berlusconi lét fyrst að sér kveða í póli-
tík, hefur hann sett mark sitt á ítalskt
samfélag. Hann hefur ekki bara verið ráð-
andi afl í stjórnmálum, heldur einnig haft
gríðarleg áhrif í gegnum fjölmiðlana sína
og ítökin, sem staða hans hefur veitt hon-
um í ríkismiðlunum. Þegar kalda stríðinu
lauk og járntjaldið hrundi riðluðust ítölsk
stjórnmál og spillt veldi kristilegra demó-
krata, sem stjórnað höfðu í 45 ár, hrundi.
Berlusconi fyllti upp í tómarúmið sem
myndaðist og nýtti til þess fjölmiðlaveldi
sitt. Kjósendur höfðu ekki lengur hug-
myndafræði til að halda í og við tóku per-
sónustjórnmál. Nú er sagt að félagslegur
og efnahagslegur bakgrunnur kjósenda sé
ekki lengur til marks um hvað fólk kjósi,
heldur á hvaða sjónvarpsstöð það horfi og
hve mikið.
En þótt hart sé deilt um Berlusconi
virðast kjósendur ætla að standa með
honum. Í skoðanakönnun í lok janúar
mældist flokkur hans með meira fylgi en í
desember. Reyndar vildu fleiri að hann
segði af sér, en þeir sem vildu að hann
sæti áfram. Hinir fyrrnefndu náðu þó ekki
meirihluta, mældust 49%.
Heimildir: AFP, BBC, Der Spiegel, Die
Zeit og The New York Review of Books.
Nicole Minetti bros-
ir við ljósmyndara í
höfuðstöðvum
flokks Berlusconis í
Langbarðalandi.
Hún er grunuð um
að hafa útvegað
Berlusconi vændis-
konur.
Reuters
Páfagarður hefur verið vilhollur Berlusconi, en í
janúar var mælirinn fullur og Benedikt XVI. páfi
kvartaði undan „ákveðinni veikingu siðferðis“.
Karima El Mahroug frá
Marokkó, einnig þekkt
sem Ruby, situr fyrir í
janúarlok í diskóteki í
Rimini. Hún er átján ára
og sviðsnafn hennar er
„Hjartaþjófurinn Ruby“.
Rannsókn stendur yfir á
því hvort Silvio Berlus-
coni, forsætisráðherra
Ítalíu, hafði kynmök við
hana áður en hún náði
lögaldri. Þau vísa því
bæði á bug.