SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Blaðsíða 23

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Blaðsíða 23
13. febrúar 2011 23 þeirrar skoðunar að nú sé mál að linni. Meðlimafjöldi RIRA hleypur á nokkrum hundruðum manns og er hlutfallslega mestur í Derry. Gangan fer friðsamlega fram að þessu sinni og skipuleggjendur leggja áherslu á að nú sé hún haldin sem þakklætisvottur við þá sem stutt hafa fjöl- skyldurnar og baráttu þeirra í gegnum ár- in. Við Williams Street, þar sem skothríð bresku herdeildarinnar hófst á Bloody Sunday, klofnar hópurinn hins vegar í tvennt. Annars vegar er meirihluti göngufólks sem heldur áfram upp að Gu- ildhall fyrir formlega athöfn dagsins en hins vegar eru stuðningsmenn 32 County Sovereign Movement sem halda í átt að Free Derry Corner fyrir sína eigin athöfn og ræðuhöld. Skýr um sakleysi, óskýr um sekt „Saville-skýrslan var mjög skýr um hverjir voru saklausir en óskýr þegar kom að því að lýsa yfir hverjir voru sekir,“ sagði Mark Durkan þingmaður í ræðu sinni við Guildhall. Hann sagði jafnframt að niðurstaða skýrslunnar hefði ekki sagt íbúum Derry neitt sem þeir vissu ekki þegar. „Við vissum alltaf að þeir voru sak- lausir, allir sem einn. Nú veit heimurinn það líka.“ „Niðurstaða Saville-skýrsl- unnar er aðeins dæmi um hvernig áralöng barátta getur borið ávöxt,“ sagði talskona samtakanna The Ballymurphy Massacre, en þau berjast fyrir því að breska rík- isstjórnin framkvæmi einnig rannsókn á atburðum sem áttu sér stað í Ballymurphy árið 1971 þar sem bresk herdeild skaut ell- efu manns til bana, þar á meðal Joan Con- nolly, átta barna móður. Vinnsla Saville- skýrslunnar var hins vegar kostnaðarsöm fyrir breska ríkið og var endanlegur kostnaður um 200 milljónir punda. „Dav- id Cameron hefur ekki efni á því að tala um kostnað við slíka rannsókn. Að okkar dómi er um að ræða skuld sem hann þarf að greiða okkur. Okkar fórnarkostnaður var mikill og verður ekki mældur í pen- ingum. Okkar kostnaður var að horfa upp á auðan stól við borðið á jólunum, að geta ekki haft fjölskyldumeðlimi okkar við- stadda þegar við eignuðumst börn og gift- umst, grétum og hlógum.“ Hún bað að lokum viðstadda að halda áfram að styðja málstaðinn með því að taka þátt í minn- ingargöngu um þá sem létust í Ballym- urphy sem haldin hefur verið ár hvert frá atburðinum. „Við höldum áfram þar til við fáum svör, þar til sannleikurinn hefur komið í ljós og þar til við höfum verið beðin afsökunar. Niðurstaða rannsókn- arinnar á atburðum Bloody Sunday er byrjunin, ekki endirinn,“ Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, tók til máls og sagði að niðurstaða skýrslunnar hefði einnig leitt í ljós hversu brýn þörf væri á að skipa al- þóðlegan dómstól til að gera upp fortíð Norður-Írlands. Fórnarlömb ofbeldis af hálfu IRA ættu líka skilið að fá að vita sannleikann. Forystumenn úr röðum mótmælenda hafa bent á að það að draga bresku her- mennina fyrir dómstóla skili engum ávinningi en fjölskyldur tveggja fórn- arlamba Bloody Sunday íhuga málsókn án hendur tveimur hermönnum. Þeir benda jafnframt á að margir úr röðum IRA hafi aldrei verið dregnir fyrir dóm né þurft að svara til saka fyrir morð og glæpi sem þeir frömdu. Í því sambandi hefur verið horft sérstaklega til Martins McGuinness sem var einn af aðalleiðtogum IRA á þeim tíma sem The Troubles stóðu sem hæst. Hann er nú varaforseti norðurírsku heima- stjórnarinnar. Á móti benda kaþólikkar á að IRA-menn sem og hverjir þeir sem grunaðir voru um að tengjast IRA voru hundeltir af breska hernum, fangelsaðir og sviptir mannréttindum. Bresku her- mennirnir voru hins vegar sæmdir orðu í kjölfar morðanna sem þeir frömdu á Bloody Sunday. „Við erum að fagna“ John Kelly, sem missti bróður sinn Mich- ael á Bloody Sunday, tók til máls fyrir hönd aðstandenda og skipuleggjenda göngunnar. Hann talaði meðal annars um áframhaldandi baráttu fjölskyldu Gerry Donaghy sem var 17 ára gamall þegar hann féll á Bloody Sunday. Í Saville- skýrslunni kemur fram að á Donaghy hafi fundist naglasprengja en ekki kemur fram hvort bresku hermennirnir komu henni fyrir á honum eins og þeir komu vopnum fyrir á öðrum sem létust, eða hvort Do- naghy, sem var meðlimur í IRA-tengdu samtökunum Fianna Éireann, hafi sjálfur borið sprengjuna í göngunni. Fjölskylda Donaghy heldur fram sakleysi hans og heldur áfram baráttunni til að hreinsa mannorð hans. Að lokum voru nöfn allra þeirra sem létust og særðust lesin upp en í stað þess að vera fylgt eftir með mínútu þögn eins og verið hefur, var lestrinum fylgt eftir með mínútu löngu lófataki. „Við erum að fagna,“ bætti Kelly við. Samfélag án haturs Baráttan milli lýðveldissinna og sam- bandssinna á Norður-Írlandi hefur verið til staðar í margar aldir og enn koma upp blóðug átök á milli hópanna tveggja með reglulegu millibili. Margir eru þeirrar skoðunar að í ljósi hátta nútímasamfélags sé barátta fyrir sameinuðu Írlandi orðin úreltur og óraunhæfur kostur fyrir íbúa Norður-Írlands. Paul Devine er á öðru máli. „Það á að gerast og mun gerast í framtíðinni, hins vegar er ómögulegt að segja nákvæmlega til um hvenær það mun gerast. Það byggist allt á því að ráðamenn þurfa að fara að tala saman, verkalýðs- félögin þurfa að tala saman. Námskráin í skólunum þarf að breytast og kennsla í írsku þarf að byrja hér eins og hún er kennd á Írlandi. Fólk má ekki halda að baráttan hafi verið til einskis. Við erum að stefna að sama marki og alltaf, það gerist bara hægar en við héldum.“ Michael Craig telur hins vegar að það væru mikil mistök að stefna að samein- ingu Írlands. „Sagan myndi endurtaka sig. Með sameiningunni væru mótmæl- endur komnir í mikinn minnihluta og við færum aftur á byrjunarreit með tilheyr- andi blóðsúthellingum. Ég tel að í stað þess að láta okkur dreyma um sameinað Írland ættum við að einbeita okkur að sameinuðu Norður-Írlandi og brúa bilið milli mótmælenda og kaþólikka. Það krefðist mikillar uppstokkunar en fyrst og fremst í menntakerfinu. Það þyrfti að leggja niður kaþólska skóla og mótmæl- endaskóla og leyfa börnunum að alast upp saman, menntast í blönduðum skólum og eignast vini frá báðum hliðum. Temja þeim umburðarlyndi og virðingu fyrir einhverju sem er öðruvísi en samt svo svipað. Með þeim hætti vona ég að hatrið síist hægt og rólega úr samfélaginu í gegn- um kynslóðirnar.“ Minnismerki um átök kaþólikka og mótmælenda er víða að finna í Derry. Reuters Þúsundir manna tóku þátt göngunni í Derry 30. janúar síðastliðinn til að minnast fórnarlamba blóðuga sunnudagsins. Höfundur er stjórnmálafræðingur.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.