SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Qupperneq 25
13. febrúar 2011 25
Ý
msum óþrifnaði hefur ráð-
herrann ungi sópað undir
teppi, atvinnulygarinn sjálfur,
en þó aldrei dauðum manni –
og það á hótelherbergi – með viðhald-
inu – sem er innsti koppur í búri
stjórnarandstöðunnar.“
Þannig hefst lýsing á söguþræði gam-
anleiksins Nei, ráðherra sem Borgarleik-
húsið frumsýnir undir lok mánaðarins.
Þótt sumir hefðu kannski haldið að
menn flæktu líf sitt nægilega með því að
gefa sig pólitíkinni á hönd þá bætir um-
ræddur ráðherra margfalt um betur.
Flækjustigið á senunni er sumsé allt
að því yfirþyrmandi, sem gerir vinnu
þeirra sem hafa þræði sýningarinnar í
hendi sér ekki einfaldari. Þegar við bæt-
ist sú kunna staðreynd, að tímasetn-
ingar skipta öllu máli í gleðileikjum sem
þessum, er nauðsynlegt að hafa samstillt
handtök fólksins á bak við tjöldin til að
allt í sýningunni gangi upp. Og þeir fara
létt með það, smiðir, tæknimenn, sviðs-
stjóri, hljóðmenn, búningagerðarmenn
og annað galdrafólk í leikhúsinu.
Höfundur farsans er Ray Cooney en
Gísli Rúnar Jónsson hefur þýtt verkið og
heimfært það svo það gerist í turnher-
berginu á Hótel Borg. Þar eiga ráðherr-
ann og ritari stjórnarandstöðunnar eld-
heit stefnumót sem enda með hinum
mestu ósköpum og það kemur svo í hlut
aðstoðarmanns ráðherrans að hreinsa til
og bjarga málunum.
Snorri Freyr Hilmarsson hannaði leik-
myndina og fór í tíðar heimsóknir í
umrætt herbergi til að allt yrði sem
raunverulegast. Jafnvel útsýnið úr
hótelglugganum er hið sama og blasir
við úr fyrirmyndinni svo smíðaverk-
stæðið þurfti að ráðast í að reisa ekki
ómerkari byggingu en sjálfa Dómkirkj-
una.
Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri
leikstýrir verkinu og Björn Bergsteinn
Guðmundsson er töframaðurinn á ljósa-
tökkunum. Baggalútur sér hins vegar
um tónlistina og er lagið Ónáðið ekki,
með vísun í hin velþekktu hóteldyra-
spjöld, þegar farið að hljóma í hlustum
landsmanna.
Með aðalhlutverk í verkinu fara Guð-
jón Davíð Karlsson, Lára Jóhanna Jóns-
dóttir, Hilmar Guðjónsson og Sigurður
Sigurjónsson.
Magnús Geir Þórðarson leikstjóri gefur Hilmari Guðjónssyni leikara góð ráð.
Lára Jóhanna og Ólafur Örn Thoroddsen, hljóðmaður í sýningunni, bera saman bækur sínar.
Ögmundur Jónsson sviðsmaður rýnir í það sem fram fer á sviðinu við tækniborðið í sýningunni.
Heimferðarsnið komið á Berg Þór Ingólfsson að lokinni vinnutörn á Hótel Borg.
Hliðarspor
í ráðuneytinu
Bak við tjöldin
Marga enda þarf að hnýta áður en kemur að
frumsýningu farsans Nei, ráðherra, sem æfður
er af kappi í Borgarleikhúsinu þessa dagana.
Ljósmyndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is
Texti: Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is