SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 30

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 30
30 13. febrúar 2011 Þ að er ekki auðvelt verk að standa í niðurskurði útgjalda. Einu gildir hvort um er að ræða einkafyrirtæki, opinbera aðila eða heimili. Þeir sem bera beina ábyrgð á peningunum hafa skýr og einföld mark- mið: að ná kostnaði niður. Það skiptir meginmáli frá þeirra sjónarhóli séð. Oft eru einhverjir stuðpúðar á milli þeirra og hinna, sem fyrir niðurskurðinum verða, þannig að þeir finna ekki jafn mikið fyrir sársaukanum. Þeir sem bera ábyrgð á efni máls sjá gjarnan aðrar hliðar og hafa kannski víð- ari sýn á afleiðingarnar. Þeir hugsa líka meira um það, hvernig að honum er stað- ið og hvernig komið er fram við þá sem fyrir aðgerðunum verða enda er það eldur sem getur brunnið heitt á þeim sjálfum. Þessar meginlínur þekkja allir sem tek- ið hafa þátt í niðurskurði útgjalda, hvort sem um háar fjárhæðir eða lágar er að ræða. Þeim sem fyrir niðurskurði verða finnst hann alltaf ósanngjarn. Allt er þetta sársaukafullt og fyrir báða aðila. Það er ekki auðvelt fyrir yfirmann að segja sam- starfsmanni til margra ára upp starfi. Þeir sem ganga til niðurskurðar með það eitt í huga að hreinsa út kostnað og loka augunum fyrir öðrum hliðum máls- ins eru ekki starfi sínu vaxnir. Og gjarnan er það svo, að þeir sem gefa fyrirmæli um niðurskurð sjá yfirleitt meiri möguleika á niðurskurði hjá öðrum en sjálfum sér. Allir stjórnmálaflokkar keppast við að segja að þeir vilji verja grunnþjónustuna í samfélaginu en oftar en ekki virðist grunnþjónustan vera nærtækust til nið- urskurðar. Sl. miðvikudagsmorgun var haldinn foreldrafundur í þeim merka skóla, Laug- arnesskólanum. Honum er lýst með þess- um orðum í Morgunblaðinu daginn eftir: „Brúnaþungir foreldrar mættu á fund með skólastjóra Laugarnesskóla í gær- morgun, þar sem farið var yfir stöðu mála í skugga niðurskurðartillagna borgaryf- irvalda. Mál manna var að sjaldan ef nokkurn tíma hefði jafn fjölmennur for- eldrafundur verið haldinn en öll sæti voru skipuð og fullt út úr dyrum. Áhyggjur foreldra voru auðsjáanlegar og ályktun foreldrafélagsins samþykkt með dynjandi lófaklappi. Afstaðan er skýr: hingað og ekki lengra.“ Reykjavíkurborg er ekki eina sveitarfé- lagið, sem stendur í niðurskurði og Laug- arnesskólinn ekki eini skólinn sem fyrir þeim niðurskurði verður. Gera má ráð fyrir, að sama viðhorf ríki í flestum ef ekki öllum skólum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurskurður á framlögum til tónlist- arskóla hefur vakið athygli og umræður og þarf áreiðanlega mikið til að ein skærasta stjarna íslenzkrar menn- ingar um þessar mundir, Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, blandi sér í um- ræður um slík málefni en það hefur hann gert. Fyrir nokkrum dögum var frá því skýrt, að starf tónlistarráðunautar Kópavogs- bæjar hefði verið lagt niður en því hefur Jónas Ingimundarson, píanóleikari, gegnt frá árinu 1995. Eitt af verkefnum hans hefur verið að kynna sígilda tónlist í skól- um Kópavogs. Starfið er lagt niður í sparnaðarskyni ásamt öðrum aðgerðum sem stefna að sama marki. Er sjálfsagt að líta á tónlist og tónlistar- kennslu sem einhvers konar viðbót í menntun barna og unglinga, sem er í lagi að skera niður þegar harðnar í ári? Sjálf- sagt líta einhverjir svo á og væntanlega eru það þau sjónarmið, sem ráða ferðinni þegar framlög til tónlistarskóla eru skorin niður í sveitarfélögum eða starf tónlist- arráðunautar lagt niður hjá Kópavogsbæ. Við sem urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að njóta tónlistarkennslu Ingólfs Guð- brandssonar í Laugarnesskólanum fyrir sex áratugum vitum hins vegar hvers konar áhrif það hafði á okkur og líf okkar að sá frumherji, sem hann var, opnaði okkur sýn í veröld klassískrar tónlistar. Sú kennsla og upplýsing hafði ekki bara áhrif á okkur, sem einstaklinga heldur reynum við að miðla henni áfram til af- komenda okkar. Tónlistarkennsla er grundvallaratriði ekkert síður en sú almenna kennsla sem fram fer í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Mótmæli foreldranna í Laugarnesskól- anum sl. miðvikudagsmorgun og gagn- rýni tónlistarmanna á niðurskurð til tón- listarkennslu eru til marks um að við sem samfélag erum ekki á réttri leið í nið- urskurðaraðgerðum. Áður en ráðist er á grundvallarþætti í menntun, velferð og heilbrigðisþjónustu þarf að sýna fram á, að allra annarra leiða hafi verið leitað. Það hefur ekki verið gert. Alþingi, ráðherrar, æðstu embætt- ismenn, sveitarstjórnir og nánustu trún- aðarmenn þeirra, allir þeir sem hafa vald- ið í höndunum til niðurskurðar hafa ekki byrjað á sjálfum sér heldur öðrum. Jónas Ingimundarson veitti ráðamönn- um Kópavogsbæjar þann innblástur sem þurfti til að byggja Salinn, fyrsta sérhann- aða tónlistarsalinn á Íslandi, sem hefur fest þetta bæjarfélag í sessi sem menning- arbæ. Þangað hefur hann leitt marga mikla tónlistarmenn en þó hefur samstarf hans og Kristins Sigmundssonar, þess ís- lenzks óperusöngvara sem nú syngur mest í fremstu tónleikahúsum veraldar, sérstöðu. Þeir hafa sett svip á bæinn. En merkustu arfleifðina sem hann skil- ur eftir sig sem tónlistarráðunautur Kópavogsbæjar er þó að finna í tilfinn- ingalífi þeirra fjölmörgu ungmenna sem hafa orðið fyrir varanlegum áhrifum af því að kynnast hinni ótrúlega fögru ver- öld tónlistarinnar sem gerir þau öll að betra fólki. Er Kópavogsbær betur staddur fjár- hagslega eftir þennan niðurskurð? Eru upprennandi kynslóðir Kópavogsbæjar betur staddar? Ég held ekki. Arfleifðin í tilfinningalífi ungmenna Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is A ngist greip um sig á heimili flugkappans Charles Lindberghs og eiginkonu hans, Anne, í East Amwell í New Jersey að kvöldi 1. mars 1932 þegar í ljós kom að frumburður þeirra, hinn tuttugu mánaða gamli Charles Augustus yngri, var horfinn úr vöggu sinni. Barnfóstran hafði lagt drenginn til hvílu um áttaleytið en þegar hún leit inn til hans tveimur klukkustundum síðar var hann horfinn. Lögregla var þegar í stað kvödd á vettvang. Fann hún fótspor í blómabeðum við húsið og ósjálegan stiga í runna í grenndinni. Það benti til mannráns og öll tví- mæli voru tekin af þegar Lindbergh sjálfur fann bréf í húsinu. Í bréfinu, sem skrifað var á bjagaðri ensku, var Lindbergh vinsamlega beðinn um að hafa 50 þúsund Bandaríkjadali tilbúna eftir tvo til fjóra daga. Barnið væri í góðum höndum. Hann var jafnframt varaður við að blanda lögreglu og fjölmiðlum í málið. Það var of seint. Í bréfinu kom fram að Lindbergh yrði upplýstur frekar um næstu skref í málinu. Í örvæntingu sinni setti Lindbergh sig í samband við menn sem þekktu til í undirheimunum og sjálfur Al Ca- pone, sem var bak við lás og slá, bauðst til að láta finna barnið og skila því gegn lausn úr prísundinni. Sú aðstoð var afþökkuð. Þá lofaði Herbert Hoover, forseti Banda- ríkjanna, að láta snúa við hverjum steini til að finna barnið en Lindbergh var þjóðhetja í Bandaríkjunum eftir að hann flaug fyrstur manna yfir Atlantsála. Fleiri bréf bárust á næstu dögum með nánari leiðbein- ingum. Lögregla var sannfærð um að bréfin væru frá mannræningjanum en þau voru póstlögð í New York. Í kjölfarið skarst bláókunnugur kennari í New York, John F. Condon, í leikinn og bauð eitt þúsund dali fyrir upp- lýsingar sem gætu leitt til þess að barnið fyndist. Cond- on komst í samband við mannræningjann og hitti hann í kirkjugarði í borginni með samþykki Lindberghs. Mað- urinn huldi andlit sitt en Condon var sannfærður um að hann væri af erlendu bergi brotinn. Condon bað mann- inn að senda Lindbergh-hjónunum staðfestingu á því að hann hefði barnið í sinni vörslu áður en lausnargjaldið yrði greitt. Það gerði maðurinn, sendi náttföt barnsins. Málsaðilar sættust á að hittast í téðum kirkjugarði 2. apríl 1932, mánuði eftir barnshvarfið, þar sem ræning- inn fengi greitt. Lindbergh þorði ekki að blanda lögreglu í það mál. Meintur mannræningi tók við fénu og upp- lýsti Condon og Lindbergh um að barnið væri á bátnum Nelly á Martha’s Vineyard. Lindbergh og Condon brunuðu þangað en gripu í tómt. Engan bát með þessu nafni var að finna, þeir höfðu verið gabbaðir. Rúmum mánuði síðar, 12. maí 1932, dundi reiðarslagið yfir. Illa leikið lík Charles litla fannst í trjálundi skammt frá heimili Lindbergh-hjónanna. Krufning leiddi í ljós að banamein drengsins var þungt höfuðhögg. Hvorki gekk né rak við rannsókn málsins næstu mán- uði en lögregla sinnti því áfram af nokkrum þunga. Helst fólst rannsóknin í því að skoða stórar upphæðir af sjaldgæfum seðlum með gullmerkingu en seðlarnir sem mannræninginn hafði fengið afhenta voru þeirrar gerð- ar. Lengi vel skilaði þetta engu eða þangað til lögregla komst á slóð þýsks innflytjanda í New York, Brunos Richards Hauptmanns. Það gerðist með þeim hætti að vaktstjóri á bensínstöð hafði skrifað bílnúmer Haupt- manns á seðil, sem hann þáði af honum, fyrir þær sakir að honum þótti viðskiptavinurinn grunsamlegur. Við húsleit hjá Hauptmann fannst sitthvað sem tengdi hann við málið, svo sem hluti lausnargjaldsins, síma- númer Condons og samskonar efni og stiginn sem fannst í garði Lindberghs var smíðaður úr. Þetta dugði til að sakfella Hauptmann fyrir mannrán, fjárkúgun og morð, á þessum degi 1935. Hann hlaut dauðadóm og var tekinn af lífi 3. apríl 1936, fjórum árum eftir að barnið hvarf. Hauptmann neitaði staðfastlega sök allt til dauðadags. orri@mbl.is Morðingi Lindbergh- barnsins dæmdur Bruno Richard Hauptmann var dæmdur til dauða. ’ Sjálfur Al Capone, sem var bak við lás og slá, bauðst til að láta finna barnið og skila því gegn lausn úr prísundinni. Sú aðstoð var afþökkuð Charles litli Lindbergh skömmu áður en honum var rænt. Á þessum degi 13. febrúar 1935 Faðir drengsins, Charles Lindbergh eldri. Auglýst var eftir barninu í blöðum.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.