SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Page 38
38 13. febrúar 2011
Í
sraelsk-bandaríska leikkonan Natalie Portman
hefur hlotið nær einróma lof fyrir túlkun sína á
metnaðarfullu en viðkvæmu ballerínunni Ninu í
kvikmynd Darrens Aronofskys, Svarta svaninum,
sem sýnd er í kvikmyndahúsum um þessar mundir. Á
dögunum hlaut hún Gullhnöttinn fyrir frammistöðu sína
og margir veðja á að hún bæti Óskari frænda í safnið í lok
þessa mánaðar.
En túlkunin kom ekki af sjálfri sér. Portman þurfti að
leggja gríðarlega hart að sér til að setja sig inn í hlut-
verkið. Grenna sig verulega og koma sér í dúndurform til
að dansa ballett. Til allrar hamingju bjó hún að grunni,
lagði stund á ballett í bernsku. Annars hefði þetta varla
gengið. „Sem stelpa æfði ég í tvo tíma á dag og fimm
tíma á laugardögum en þegar ég byrjaði að leika
þurfti ég að skera æfingatímann niður. Þá dróst ég
fljótt aftur úr hinum ballerínunum og ákvað að
leggja dansskóna á hilluna,“ sagði hún nýver-
ið í samtali við tímaritið Vogue.
Dansæfingarnar fyrir Svarta svaninn
hófust ári fyrir tökur. Í fyrstu æfði
Portman í tvo tíma á dag, sex mán-
uðum síðar var tímunum fjölgað í
fimm og tvo síðustu mánuðina
æfði hún átta tíma á dag. „Þá
komu sporin og styrktaræf-
ingar inn í þetta líka, ég synti
líka eina mílu á dag. Aginn
kom sér vel fyrir hlutverkið – en
þetta tók sinn toll; ég var með stöðuga
verki,“ segir Portman sem lifði síðustu
vikurnar á kaffi og verkjalyfjum og svaf í fimm
tíma á sólarhring. Bíddu, erum við að tala um Holly-
wood?
Undirbúningurinn reyndist Portman ekki auðveldur.
„Ég er glaðlynd að upplagi og alla jafna finnst mér gott að
gera vel við mig. Ég myndi aldrei svelta mig eða skaða
eins og Nina. Ég er hin týpan – þegar ég er svöng, borða
Natalie Portman þurfti að
færa miklar fórnir fyrir hlut-
verk Ninu í kvikmyndinni
Svarta svaninum en upp-
skeran ætlar að verða ríkuleg.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Hamfarir og
samfarir
U
m áratugi setti Albert Guðmundsson sterkan svip á ís-
lenskt samfélag. Var atkvæðamaður í tvöfaldri merkingu
þeirra orða. Fæddur í Reykjavík 1923 og þrátt fyrir lítil efni
braust hann til mennta. Fór í Samvinnuskólann og var þar
einskonar fósturbarn skólastjórans, Jónasar frá Hriflu. Strax á unga
aldri sýndi Albert hæfileika í knattspyrnu og því þurfti ekki að koma á
óvart að fótboltinn tæki annað yfir þegar hann fór utan til náms í
Skotlandi árið 1944. Hann lék fyrst nokkra leiki með Glasgow-liðinu
Rangers. Síðar lá leiðin til Ítalíu þar sem hann lék með AC Milan en
frægðarsól hans sem knattspyrnumanns reis þó hæst í Frakklandi.
Eftir sigursælan feril sneri Albert heim til Íslands og hóf rekstur
heildverslunar. Fótboltinn var þó alltaf nærri; þjálfun og trúnaðarstörf
á vegum KSÍ. Þau félagsstörf áttu sinn þátt í því að Albert hóf afskipti
af stjórnmálum á vegum Sjálfstæðisflokksins. Var kjörinn í borg-
arstjórn 1970 og á þing fjórum árum síðar. Þá var Albert í forseta-
framboði 1980.Knattspyrnan var alltaf nálæg hvar sem Albert fór, jafnvel þó hann væri uppábúinn sem stjórnmálamaður.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon.
Myndasafnið 23.07.1980
Einleikarinn
hét Albert
Frægð og furður
Natalie Portman
þræðir verðlauna-
hátíðirnar
þessa dagana.
Portman í hlutverki sínu
í Svarta svaninum.
Reuters