SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 43

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 43
13. febrúar 2011 43 Skáldið og þýðandinn Hallberg Hallmundsson lést 28. janúar síðastliðinn áttræður að aldri. Hann lauk BA- prófi í sögu og landafræði frá Háskóla Íslands 1954 og las spænsku við Háskólann í Barcelona. Hann starfaði síðan sem blaðamaður við Frjálsa þjóð á árunum 1954- 1960 og við bókaútgáfuna Iðunni. Árið 1960 kvæntist hann bandarískri konu, May Newman, og fluttist sama ár vestur um haf. Þar starfaði hann í rúma tvo áratugi við ritstjórn alfræðibóka og var lokaritstjóri í hálfu starfi við vikuritið Business Week. Árið 2002 flutti Hallberg aftur til Íslands. Meðfram öðrum rit- störfum þýddi Hallberg talsvert af og á íslensku, skrif- aði greinar um íslensk og norræn málefni, bókmenntir og sagnfræði og orti ljóð. Ljóðabók hans Á barmi næt- urinnar, sem hefur að geyma úrval ljóða hans, kom út sl. haust og einnig kverið Þögnin og fleiri ljóð með þýðingum hans á ljóðum Federicos García Lorca. Federico García Lorca Malagueña Dauðinn fer inn og út úr kránni. Svartir hestar og skuggalegt fólk fer um djúpa stigu gítarsins. Og það er saltþefur og kvenblóðs af sjúkheitum nardusinum á ströndinni. Dauðinn fer inn og út; út og inn fer dauðinn úr kránni. (Úr Þögnin og fleiri ljóð.) Hallberg Hallmundsson Um kjarna lífs og dauða Ekki fer hjá því þegar umhendur eru ortar að ýmislegt slæðist með sem kannski á ekkert erindi við lesendur En þetta kvæði er ekki af því tagi. Hér er talið aðeins það sem segja þarf. Eins og þið hafið kannski tekið eftir er innihaldið fram að þessu ekkert nema orð sem hafa enga sögu að segja né heldur nokkurn boðskap að flytja. Í stuttu máli: þetta er innantómt rugl um það sem engu varðar, engu skilar, og ekki skyldi vænta neins af. Og þar er kominn kjarni lífs og dauða! (Úr Á barmi næturinnar) Þýðandi og skáld viljum líka teygja okkur í aðra miðla og annað samhengi, vinna með fólki.“ Margar leiðir í myndlistinni Þau segjast hafa verið að velta fyrir sér sjálfsmynd vestrænna samfélaga og hug- myndum um lýðræði og það hafi leitt þau að stjórnarskránni sem viðfangsefni. „Við lærum um viðfangsefnið í ferlinu og fáum hugmyndir að verkum. Fyrst unnum við með þjóðsönginn, sem er eitt af þjóðartáknunum, og það leiddi okkur að grundvallartextanum, stjórnar- skránni. Við erum ekki sérfræðingar í viðfangs- efninu en höfum samt ákveðna sýn á það.“ Libia segir að listamenn hafi á öllum tímum rannsakað veröldina í kringum sig með því að nýta sér möguleika þeirra tíma og varpað hugmyndum sínum aftur til samfélagsins í gegnum listaverkin. „Við notum tækifærið til að finna að- ferðir til að skapa verk og móta okkar eigin list í ferlinu,“ bætir Ólafur við. „Í þessu tilviki vekur stjórnarskráin áhuga okkar og við kynnum okkur hana, finn- um okkar sjónarhorn og nálgun, skil- greinum það, finnum fólk að vinna með, og vinnum síðan úr efniviðnum.“ Nú er umrædd stjórnarskrá skilgreind sem grundvallartexti lýðveldisins og er að sumu leyti umdeild, en hefur sem lagatexti ekki verið skilgreind sam- kvæmt neinum listrænum formerkjum. „Þegar tekið er á viðfangsefni sem ekki hefur verið álitið listrænt og því breytt í listrænt verk, þá mun fólk alltaf upplifa það á nýjan hátt,“ segir Libia. „Okkur finnst það áhugaverð umbreyting. Við teljum að allt geti verið viðfangsefni fyrir listina, hugsunin hefur aðgang að hverju sem er. Það á að vera hægt að vinna með öll viðfangsefni á þennan hátt. Í flutningnum á verki Karólínu mun fólk upplifa stjórnarskrána á allt annan hátt en þegar það les hana – og kannski hefur það aldrei lesið hana og mun því upplifa hana svona í fyrsta skipti.“ Ólafur segir að í hinu ófyrirsjáanlega augnabliki, þegar viðtekin gildi eru færð í annað samhengi, eins og þau gera iðu- lega í verkum þeirra, hreyfi það við fólki á óvæntan hátt. „Í myndlist okkar eru leiðirnar marg- ar,“ segir hann. „Við erum opin í verkum okkar og vinnum ekki fyrir óskilgreinda elítu heldur má segja að við vinnum að list okkar þrátt fyrir hana. Við kunnum að meta óvissuna sem skapast þegar listaverk ávarpar hóp sem hefðin segir að það eigi ekki endilega að ávarpa. Ef mót- tökuhópurinn er óvenjulegur þá getur hið venjulegasta listaverk skapað óvenjulega orku.“ Listin er til að opinbera hluti Einn þáttur verksins er bolir sem flytj- endur tónverksins klæðast og eru síðan sýndir í salnum. Libia og Ólafur hafa unnið með þessa boli, sem þau sauma mislita misstóra hringi á, frá árinu 2003 er þau notuðu þá fyrst í verk sem þau sýndu í myndlistarmiðstöðinni Platform Garanti í Istanbul. Bolirnir hafa ýmsar vísanir, þau segjast meðal annars líta á þá sem einskonar abstrakt málverk og sem „óeinkennisbúninga“, auk þess sem þeir vísa í hirðfíflið sem eitt mátti spyrja ein- valdinn óþægilegra spurninga. „Listin er til að opinbera hluti, gera þá sýnilega, til að tala um þá,“ segja þau Libia og Ólafur. „Listin getur verið eins og þynnir eða límleysir, en hún getur líka límt hluti saman á óvæntan hátt. Hún losar um ýmislegt sem á að vera gef- ið og fastnjörvað, en þá opnast ný sýn á það.“ ’ Við erum opin í verk- um okkar og vinnum ekki fyrir óskil- greinda elítu heldur má segja að við vinnum að list okkar þrátt fyrir hana. Aðstandendur sýningarinnar; sýningarstjórinn Hanna Styrmisdóttir, Libia Castro, Karólína Eiríksdóttir tónskáld og Ólafur Ólafsson. Morgunblaðið/SigurgeirS

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.