SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 47

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 47
13. febrúar 2011 47 R afvæðing bókanna er hafin og ekkert getur hindrað framþróun hennar, eða það er að minnsta kosti mat þeirra sem um bókaútgáfu fjalla víða um heim. Á síðasta ári gerðist það að einn helsti bóksali heims, Amazon, seldi ekki bara fleiri rafbækur en innbundnar (þrjár á móti einni), heldur líka fleiri rafbækur en kiljur (117 rafbækur fyrir hverjar 100 kiljur). Aðrar fregnir eru á sömu lund; sam- kvæmt frétt USA Today seldust 19 af 50 mest seldu bók- um ársins í fleiri rafeindaeintökum en á pappír. Hvað á að gera Bókaútgefendur víða um heim vandræðast því eðlilega með það hvernig þeir eiga að bregðast við rafvæðing- unni; hvaða leið sé fær til að koma bókum á rafrænt snið og á hvaða lesara eða spjaldtölvu eigi að veðja. Fjöl- margar bækur hafa verið gefnar út á rafrænu sniði hér á landi, þá ýmist sem vefsíður eða á PDF-sniði. Fyrir jól var svo gefin út á rafrænu sniði bókin Zen og listin að viðhalda vélhjólum eftir Robert M. Pirsig og mun fyrsta íslenska bókin sem hægt er að kaupa á raf- rænu sniði í bókaverslun Apple-tölvufyrirtækisins. Með því má segja að nýr kafli sé hafinn í íslenskri bókaútgáfu og gera má því skóna að framþróunin verði eins ör hér og ytra þó að hún fari eitthvað seinna af stað. Um miðjan janúar opnaði Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fyrstu íslensku rafbókasíðuna, lestu.is, en á henni er að finna úrval af sígildum íslenskum og þýddum bókmenntaverkum sem hægt er að hlaða inn á lestölvur eins og iPad eða Kindle, auk þess sem lesa má bækurnar á tölvuskjá. Vefsetrið Lestu.is er rekið af Skólavefnum, skolavef- urinn.is, viðamiklum gagna- og verkefnabanka fyrir grunnskóla sem opnaður var formlega fyrir áratug. Að- standendur lestu.is eru og þeir sömu og standa að Skólavefnum, en vefurinn heldur einnig úti hljóð- bókasíðunni hlusta.is og fleiri vefjum. Gamalt og nýtt Þeir Ingólfur B. Kristjánsson ritstjóri og Jökull Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Lestu.is, segja að þegar sé nokk- uð komið inn af bókum inn á vefinn, aðallega verk eftir rithöfunda frá fyrri tíð: Benedikt Sveinbjarnarson Grön- dal, Einar Benediktsson, Einar Hjörleifsson Kvaran, Jó- hann Gunnar Sigurðsson, Jón Trausta, Júlíönu Jóns- dóttur og Ólöfu Sigurðardóttur frá Hlöðum. Einnig er þar að finna bækur núlifandi höfunda, Erlendar Jóns- sonar og Matthíasar Johannessen og að sögn þeirra Ing- ólfs og Jökuls hafa ýmsir höfundar óskað eftir því að fá að vera með þannig að nútímaskáldverkum eigi eftir að fjölga hratt á næstu mánuðum, aukinheldur sem unnið sé að því að koma ýmsum fræðiritum og kennslubókum inn á vefinn. Þýtt og óþýtt Af höfundum sem nú er verið að vinna til útgáfu á vefn- um nefna þeir vesturíslenska rithöfundinn Jóhann Magnús Bjarnason, en meðal annars er nú unnið að því að koma á stafrænt form dagbókum hans, sem ekki hafa áður komið út, og eins önnur verk hans. Væntanleg séu verk Magnúsar Grímssonar, rit Jónasar frá Hrafnagili, þar á meðal sakamálasögur hans, sögur og ljóð Þorsteins Erlingssonar og verk Gests Pálssonar, Lýsing Íslands eftir Þorvald Thoroddsen og sérstæð sjálfshjálparbók eftir Ólaf Ólafsson frá Guttormshaga, sem heitir ein- faldlega Hjálpaðu þér sjálfur og kom út 1892. Ekki má svo gleyma Íslendingasögunum og Heimskringlu, sem settar verða inn eftir útgáfu Guðna Jónssonar. Einnig er unnið að þýðingum, sem sumar eru unnar á vegum lestu.is. Þar er nú fyrir Ben Húr eftir Lewis Wal- lace og næst á dagskrá að setja inn reyfara eftir Edgar Wallace, sem lestu.is lét þýða, og ýmsar erlendar barna- sögur og ævintýri, en einnig stendur til að setja inn á vefinn fjölmargar eldri þýðingar, þar á meðal þýðingar eftir Steingrím Thorsteinsson, til að mynda á Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe, en einnig stendur til að koma 1001 nótt á stafrænt snið svo dæmi séu tekin. Af öðrum þýddum verkum má nefna bækur Fredericks Marryats, Louise May Alcott, sem teknar verða eftir þýðingum úr Nýjum kvöldvökum, sögur Walters Scotts, Gullgrafara Gabriel Ferry, Sæfara Jules Verne, Sögur herlæknisins eftir Zacharias Topelius í þýðingu Matthíasar Joch- umssonar. Þess má og geta að til stendur að bæta við bókum á ensku þegar fram líður. Hvað varðar nýrri verk nefnir Ingólfur að til standi að koma öllum verkum Matthíasar Johannessen á vefinn og einnig öllum verkum Erlends Jónssonar og Ragnars Inga Aðalsteinssonar, aukinheldur sem fleiri höfundar hafi sett sig í samband við fyrirtækið. „Bækurnar eru allar gefnar út á sniði fyrir Kindle-lestölvur og spjald- tölvur eða aðrar tölvur, en það er líka hægt að kaupa prentuð eintök af þeim ef vill, við látum prenta eftir pöntun.“ Ítarefni og tímarit Ekki er bara að bækur séu settar inn á vefinn, heldur segir Ingólfur að mikil áhersla sé lögð á að upplýsingar séu um viðkomandi höfunda, mynd af þeim og ævi- ágrip, en einnig hugleiðingar um verkin og frekari upp- lýsingar eftir því sem færi gefst. Einnig hyggjast að- standendur vefsins halda úti bókmenntatímariti sem fyrsta eintak af verður gefið út í sumar og reka leshringi. Tuttugu titlar eru komnir inn á vefinn en samkvæmt áætlunum verða alls að minnsta kosti hundrað bækur settar inn á þessu ári auk upplýsinga um höfunda. Sú tala getur hækkar talsvert eftir því hvernig efni berst því eðlilega er fljótlegra að setja inn stafrænt efni en það sem þarf að skanna og vinna í kjölfarið sem getur verið seinunnið. Þeir Ingólfur og Jökull nefna sem dæmi dag- bækur Jóhanns M. Bjarnasonar, sem getið er hér að of- an, en þær eru aðeins til vélritaðar á þunnan pappír frá Jóhanni sjálfum og að auki hafði hann víða strikað í textann og leiðrétt með penna. „Við reyndum að skanna það inn en það var ekki hægt, var ómögulegt að vinna það þannig, og þurfti því að slá allt inn.“ Hvað stafræna efnið varðar þá þarf vitanlega líka að brjóta það um, gera úr því bækur, enda gera les- og spjaldtölvur áþekkar kröfu til uppsetningar og bækur sem prentaðar eru á pappír. Vefurinn er opinn sem stendur en til stendur að loka honum á næstu vikum. Eftir það verður hægt að kaupa sér áskrift eða stakar bækur eftir því sem fólk helst kýs. Forsvarsmenn vefsins Lestu.is, Páll Guðbrandsson markaðsstjóri, Ingólfur B. Kristjánsson ritstjóri og Jökull Sigurðsson framkvæmdastjóri. Morgunblaðið/SigurgeirS Rafvæðing bókanna hafin Um miðjan janúar var opnað vefsetur sem helgað er rafrænni bókaútgáfu. Á því setri, sem er með slóðina lestu.is, er að finna fjölmargar bækur eftir íslenska höfunda fyrri tíma, en aðstand- endur stefna einnig að því að koma inn verkum eftir núlifandi höfunda. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Lesbókrafbækur

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.