Skólablaðið - 01.04.1988, Page 10
Die Freiheit
Um
ást(ieysi)
Til eru þeir, sem elska,
þeir, sem eru elskaðir,
og þeir, sem neita elskhugum
um ást sína.
Og enn þeir, sem aldrei
finna hina sönnu ást,
bara hjóm, sem þeir
misskildu eða mikluðu.
Eins þeir, sem aldrei
finna það, sem þeir
í örvæntingu sinni
leita alltaf að og
kalla í hjarta sínu
ást á lífinu,
ást á dauðanum,
ást á þér,
en enginn veit hvað er.
Og til eru þeir, sem bíða
og vona,...
bara vona og deyja loks
inn í svartnætti
þessarar sömu vonar.
Reynum því að elska
og vera elskuð
úr því við þurfum á annað borð
að lifa þessu lífi,
lifa þessa ást, sem okkur
var gefin af einhverjum,
sem vissi ekki
hvað hann gerði okkur!
H.L.
Leid meiner Seele,
was flusterst du?
Gehst du weg,
weg von mir
nach so langer Zeit?
Ja, jetzt schwinde ich
in deiner neuen Liebe
Sternenhimmel hinein;
werde eines dieser Lichter
das nichts zu bedeuten scheint.
Aber merke wohl,
dann die Hoffnung
dich verlásst,
komme ich wieder,
denn ich bin
deine einzige, wahre Liebe.
H.L.
Uame
blessée
Qui fait
quoi?!
Dites
qui fait
quoi.
Parlez des
choses
que font
ces personnes
avec les enfants
gravement blessés.
Les reconnais-tu?
H.L.
Það sem
skiptir máli
Ósköp venjuleg kona
gekk yfir götuna,
það var keyrt yfir hana.
Læknirinn sagði að
hún hefði dáið umsvifalaust.
Svo fór hann neim.
Það var kvöldmatur
og börnin hans enn ekki
komin heim. 1
Konan hans nöldraði,
en hann át þegjandi.
Um hvað ætli hann
hafi verið að hugsa
þessa stundina?
Þannig var það raunar alltaf
Þessa dagana, mánuði
eða jafnvel ár.
Og eiginmaður hinnar látnu?
spyrjið þið.
1
Hann var á leið
til Charlesville
í rigningunni,
kvefaður, og honum j
var alveg sama um allt
núorðið...
nema kannski hóstann.
10