Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1988, Blaðsíða 45

Skólablaðið - 01.04.1988, Blaðsíða 45
Stúdentar 1928: Gunnar Guðjónsson sjötti frá vinstri í annarri röð. Var einhver deildaskipting? Já, eftir 4. bekk, var máladeild og stærðfræðideild. Langflestir fóru í máladeild. Um 10-12 fóru í stærðfræðideild. Strákarnir í stærð- fræðideildinni sluppu fremur létt við latínuna, þar var hún ekki tekin mjög hátíðlega. En ég var afskaplega ánægður með að læra hana, því að ég hafði aldrei skilið málfræði, fyrr en ég fór að læra lat- ínu. Þá opnaðist nýr heimur, hvernig tungumál væru upp byggð. Við höfðum mjög góðan latínu- kennara, Pál Sveinsson. Hann var helvíti- harður, og maður þorði ekkert annað en að standa sig. Eru einhverjir kennarar þér sér- staklega minnisstæðir? Þarna voru m.a. menn eins og Jakob Jóhannesson Smári, sem kenndi íslensku, Bogi ólafsson, sem kenndi ensku, Jón Ófeigsson, sem kenndi þýsku, allt mjög þekktir menn og indælir. Árni Pálsson, síðar prófessor, kenndi okkur sögu og var sérstaklega skemmtilegur kennari. Þá voru af yngri kennurunum þeir Kristinn Ármannsson og Einar Magnússon, sem síðar urðu báðir rektorar. Hvernig var félagslífið? Voru haldin böll? Já, já, það var haldin árshátíð alltaf í gyllta salnum. Skemmti- nefndin fór út í bæ og fékk lánuð húsgögn, og svo var höfð lúðra- sveit neðst við Lækjargötuna. Þá gekk maður afskaplega hátíðlega með dömuna upp eftir. Strákarnir máttu bjóða dömum með sér og öfugt, svo að þetta var meiri háttar viðburður. Dansað var við píanó- undirspil. Það var í fimmta bekk, að ég spilaði eitthvað á píanó, og vinur minn, Björn Sveinsson, sag- aði á fiðlu, en þá var lítið um hljómsveitir í bænum. Við komum okkur því inn á það fag að spila um helgar á skemmtunum og þetta var heilmikill bisniss. Við fengum 20 kall á mann fyrir kvöldið, sem var stórfé í þá daga. Við lentum einu sinni í því, eftir að við höfðum spilað í skólanum úti á Seltjarnar- nesi, að það skall á blindhríð, og þegar við vorum á leið heim, voru komnir háir skaflar, og við óðum upp undir axlir í fönninni en við létum ekkert á okkur fá, með tutt- ugu kall í vasanum! Voru starfrœktir einhverjir klúbbar eða slíkt? Já, það var leikið á einu sinni á ári, Herranótt stóð fyrir því. Svo var kór. Ég man eftir því, að í fyrsta bekk var tónskáldið Sigfús Einarsson söngkennari, afskaplega elskulegur maður, og hann stjórn- aði skólakórnum. Við vorum tveir, Óli Hjaltested og ég, sem vorum ekki komnir í mútur og vorum því látnir syngja sópran. Kórinn hélt söngskemmtun í skólanum einu sinni á ári, og fengum við tveir að gaula með. Ég man eftir því, að eftir þessa söngskemmtun var það eitt sárasta augnablik í lífi mínu að sjá stelpuna, sem ég var skotinn í, labba burt með einum, sem var kominn úr mútum, suður Lauf- ásveg. Svo fékk ég að vera með í leikuppfærslu, lék voðalega mikinn lækni! í stað Skólablaðsins var það fært inn í bók, sem menn skrifuðu. Málfundafélagið Framtíðin var starfrækt og svo önnur ræðufélög. Ég var einu sinni svo óheppinn að gefa mig í það að hafa framsögu um esperantó í neðri bekkjar mál- fundafélagi, af því að ég hafði lesið í Skírni frá 1905 um esperantó. Svo flyt ég þetta, en þá kemur í ljós, þegar farið er að spyrja mig, að ég veit ekkert eftir 1905. Ég fór alveg hroðalega út úr þessu! Af bekkj- arbræðrum mínum má nefna Óla Hjaltested lækni, Theodór Skúla- son lækni (bróður Þorvalds Skúla- sonar listm ilara), sem var á Frekj- unni, Bja na Oddsson lækni, Ólaf Hansson, sem varð seinna yfir- kennari við Menntaskólann, Agnar Kl. Jónsson, sendiherra og ráðuneytisstjóra, og síðan vígslu- biskupinn, Sigurð Pálsson, og Sverri Kristjánsson sagnfræðing. Ég man eftir því, að þessir strákar, sem voru að hugsa um að fara í læknisfræðina, voru voðalega 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.