SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Page 12
12 16. október 2011
Mánudagur
Elsa María Jakobsdóttir
Áhugavert í fram-
haldi af Miss Repre-
sentation myndband-
inu: Er stödd á
fyrirlestri um Fou-
cault og vald. Kennarinn kallar
fram fyrstu glæruna með mynd af
Hillary Clinton. Kennarinn slær á
létta strengi með því að segja frá
því að hann hafi átt í vandræðum
með að finna almennilega mynd af
Hillary. Enginn segir neitt.
Bergþór Pálsson
Þegar ég hjóla í
fersku lofti framhjá
líkamsrækt-
arstöðvum, þar sem
inni fyrir má sjá fólk
hjóla í svitalykt og borga fyrir það,
get ég aldrei varist því að brosa.
Kannski einhver létt meinfýsi sem
ég þarf að venja mig af!
Miðvikudagur
Sigga Víðis Jónsdóttir
Ach so – mútta
syngur „Ó þá náð að
eiga Jesú“ á bóka-
messunni í Frank-
furt! Ég segi nú bara
„Ó þá náð að eiga þessa móður!“
Fésbók
vikunnar flett
Sem stendur virðist Samsung vera
eini framleiðandinn sem keppir af viti
við Apple – aðrir standa þessum
tveim fyrirtækjum nokkuð að baki,
eða eru ýmist í startholunum, á kross-
götum eða einfaldlega sprungnir á
limminu. Samsung Galaxy Ace S5830
er gott dæmi um það hvernig Sam-
sung ætlar ekki bara að keppa við
Apple í efsta verðflokki heldur sækir
það fram í ódýrari símum líka, eins og
til að mynda Samsung Ace S5830.
Samsung Ace er einskonar litli
bróðir Galaxy S og minnir ekki svo lít-
ið á hann í útliti, þó að minni sé, er
með nýjustu útgáfu Android (Froyo)
og svörun í honum fín þó örgjörvinn í
honum sé ekkert sérlega öflugur.
Hann er með 5 Mdíla myndavél, GPS
og WiFi stuðningi, nema hvað, og
flest það sem prýða má einn síma.
Bakið á honum er skemmtilega
stamt, það er engin hætta á að maður
missi símann úr höndunum, skjárinn
mjög fínn og styrkt gler í honum. Há-
talarinn er ekkert sérstakur en hann
er annars í góðu meðallagi sem sími.
Borð- og fartölvur fyrir heimilið eru alla jafna
ekki merkileg tæki þegar kemur að því að
miðla hljóði. Þessi græja, NAD DAC 1 Wire-
less, fer þá frumlegu leið að tengja framhjá, ef
svo má segja, því hún tekur stafræn gögn
beint af tölvunni og sendir í móttakara sem
varpar þeim svo í hliðrænt form fyrir heima-
græjurnar. Margir eru með heimatölvuna
tengda við græjur, en þegar ég prófaði þetta
skilaði það mun
betri hljómi.
Græjan notar sérstakt gagnasnið frá
NAD til að senda gögnin á milli, þ.e.
hún notar ekki þráðlaust net heim-
ilisins og slíkt þarf ekki að vera til
staðar. Fyrir vikið er ekki hætta á
truflunum vegna álags og eins get-
ur hún sent gögnin á milli
óþjöppuð til að
tryggja gæðin.
Fer þó eftir
hljóð-
gæðum á
upp-
runalegri
músík eða mynd – rusl inn
= rusl út.
Sendinum
er stungið í
USB tengi á
tölvunni, en á móttakaranum eru
tvö tengi, annars vegar tvö RCA tengi og svo
Coaxial RC-stafrænn útgangur ef menn geta nýtt
slíkt. Það er sáareinfalt að setja græjuna upp,
bara stinga í USB-tengi á tölvunni og kveikja á
móttakaranum – svínvirkar. Ég prófaði tækið ekki
í Makka, en að sögn framleiðanda er það ekkert
mál. Tækið er gefið upp fyrir 35 metra drægni og
ríflega 20 metra á milli herbergja.
Eins og getið er
varpar tækið
stafrænum
straumi yfir í
hliðrænan og
notar til þess tvo
24/192 DAC og
BurrBrown OP
magnara – topp græj-
ur eins og NAD er siður.
Kannski dálítið dýrt, en skilar sér
líka rækilega í betri hljómi.
Bein útsending
Flestir eru eflaust komnir með flest í 8tölvuna; músík bíómyndir og útvarpið.
Vandinn er bara að hljómurinn er yfirleitt lélegur ef ekki ömurlegur. Það er þó
hægt að sneiða hjá hljóðkortinu og streyma músíkinni beint í græjurnar.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Samsung Galaxy Ace
Samsung sækir
áfram í allar áttir