SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Blaðsíða 16

SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Blaðsíða 16
16 16. október 2011 M ér myndi aldrei detta í hug að fara á bókastefnuna,“ segir hreinskilinn leigubíl- stjóri í Frankfurt, sem kennir sig við Persíu og á í nokkurri til- vistarkrísu er hann ekur blaðamanni á gistiheimilið. „Ég væri þó kannski til- leiðanlegur að fara til að ganga í augun á stúlku. Það væri þá pólska stúlkan í sál- fræði sem ég hitti stundum. Hún les mikið og er að pæla í bókmenntum.“ En þetta kvöld er þessi ungi lög- fræðinemi, sem hefur ofan af fyrir sér með því að keyra leigubíl, í nokkrum vanda því auðvelt er að þéna vel vikuna sem bókastefnan stendur yfir. En á sama tíma bíður sænsk stúlka eftir honum og býðst til að halda fyrir honum vöku fram á nótt. Hann sýnir blaðamanni síma- skilaboðin þar að lútandi og spyr: „Hvað á ég að gera?“ 7.500 sýningaraðilar Hann er bókhneigðari leigubílstjórinn sem ekur Andra Snæ Magnasyni í Köln. Hann geispar í fyrstu áhugalaus og spyr: „Ertu kominn langt að?“ Þegar Andri svarar: „Frá Íslandi“, þá glaðvaknar hann, segist hafa lesið að Ísland sé heið- ursgestur í Frankfurt, fer með ljóð eftir sænska skáldið Tomas Tranströmer, sem fékk Nóbelsverðlaunin á dögunum, og spyr svo Andra hvað hann hafi skrifað. „Traumland,“ svarar Andri. Þá kemur upp úr dúrnum að leigubílstjórinn hefur lesið um bókina og þegar ferðinni lýkur, þá segir hann uppnuminn: „Bara tíu evrur!“ Andri þakkar afsláttinn og gefur honum Bónusljóð sem nýkomin eru út í Þýskalandi. Það fer ekkert á milli mála að bóka- stefnan í Frankfurt er fyrirferðarmikil í þýsku þjóðlífi. Helstu sjónvarpsstöðv- arnar eru með beinar útsendingar frá staðnum og þegar blaðamaður flakkar á milli stöðva á herbergi gistiheimilisins er stöðugur fréttaflutningur þaðan, viðtöl og annað efni. Og íbúar Frankfurt finna einnig til þess að borgin fyllist af fólki frá útlöndum, hótel og gistiheimili eru full- bókuð á uppsprengdu verði og umferðin er þung og svifasein. Það segir sína sögu að 300 þúsund sóttu bókastefnuna í fyrra, þar voru rúmlega 7.500 sýningaraðilar frá 111 löndum, þar af rúmlega 3.300 frá Þýska- landi en 13 frá Íslandi. Yfir tíu þúsund blaðamenn sækja bókastefnuna, enda eru um þrjú þúsund viðburðir haldnir samhliða henni. En þetta er þó fyrst og fremst samkomustaður bóksala og for- leggjara. Rauðvínsglasið dýrt Íslensku bókaforlögin eru eins og gefur að skilja öll í Frankfurt, tugir rithöfunda á vegum Sögueyjunnar Íslands og margir á eigin vegum, bæði til að upplifa þessa stóru stund fyrir íslenskar bókmenntir, en sumir öðrum þræði til að koma bók sinni á framfæri við erlenda útgefendur. Stöðugir upplestrar eru í íslenska skál- anum og þar sitja íslenskir höfundar fyr- ir svörum. Einn þeirra er Steinar Bragi, Ertu kominn langt að? Ísland skipar heiðurssess á bókastefnunni í Frankfurt, sem stærst er sinnar tegundar í heim- inum. Þar kennir ýmissa grasa. Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is Þessi gestur brá sér út til að lesa – og lét ekkert trufla sig. Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, og Dorrit Moussaieff bregða á leik. Endurfundir Sigurðar Guðmundssonar og Horst Koske vöktu gríðarlega athygli á bókastefnunni.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.