SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Blaðsíða 21

SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Blaðsíða 21
16. október 2011 21 Láru Guðmundsdóttur, Aðgát skal höfð í nærveru sálar, sem kom út sama dag og bókin. Titlarnir hjá Hljóðbók verða eitthvað um 26 í ár, bæði nýjar bækur og sígildar bækur. „Við reynum að hafa alla flóruna. Við verðum að hugsa á breiddina,“ segir hún en upplýsingar og verslun er að finna á hljodbok.is. Herdís er ekki aðeins mikið fyrir tón- list heldur líka texta, sem er ein ástæða þess að hún heldur mikið upp á þjóð- lagatónlist. Hún hefur skrifað smásögur og talsvert mikið af ljóðum. „Þegar ég var fyrst að fást við þetta fyrir mörgum árum birtust stundum ljóð eftir mig í Lesbókinni. Ég man þegar ég sá í fyrsta skipti ljóð eftir mig á prenti, ég vissi ekki hvert ég ætlaði. Ég fékk einhverja þús- undkalla fyrir og í póstinum var þetta tæknin hefur gert fyrir blinda og sjón- skerta. „Þegar Gísli og bróðir hans Arn- þór voru í menntaskóla og svo í háskóla þurfti að lesa upp allar bækur fyrir þá. Mamma þeirra ásamt fólki í kringum þá las bók eftir bók inn á segulband. Núna getur talgervill gert þetta rafrænt.“ Þeir sem geta lesið af blaði gera það samt ekki alltaf. Herdís segir að foreldrar hringi í Hljóðbók á vissum árstímum og hljómar þá samtalið jafnan einhvern veginn svona: „Unglingurinn minn er í skóla og þarf að fara í gegnum þessa bók á stuttum tíma. Eigið þið hana á hljóð- bók? Þá er það kannski einhver Íslend- ingasaga eða klassísk bók. Stundum eig- um við hana til og stundum ekki. Og þegar við eigum hana er svarið alltaf í miklum feginstóni: Ég kem bara á eftir!“ Dóttirin í hönnun og sonurinn í tónlist Dóttir Herdísar heitir Bryndís og er núna 31 árs. „Gísli fékk hana á fæti, hún var fjögurra ára þegar við kynntumst. Ég átti bíldruslu og stelpuna og hann átti hálfa íbúð svo þetta passaði ágætlega saman,“ grínast Herdís. Bryndís lagði fyrir sig fatahönnun, er menntuð frá LHÍ en býr núna í Bretlandi og er að vinna að því að koma með sína eigin línu. Strákurinn þeirra heitir Helgi Tómas, 18 ára menntaskólanemi. „Við reyndum að gera stelpuna að tónlistarmanni en hún baðst vægðar eftir nokkur ár,“ segir Herdís. „Strákurinn er trommari. Hann var að læra á píanó og hann baðst líka vægðar þar. Þá spurðum við hann hvort hann vildi velja sér annað hljóðfæri og úr varð að hann fór að læra á trommur og hefur gert það í mörg ár. Núna er hann búinn að leggja bílskúrinn undir hljómsveitina sína. Bílskúrsbandið æfir innan um hljóðbókalagerinn!“ Herdís heima í Skerjafirðinum með hundinn Bjart, sem er af teg- undinni Papillon (fiðrildahundur) og er sjö mánaða gamall. Morgunblaðið/Kristinn ’ Ef maður ætlar að skrifa verður maður að skrifa á góðum tíma dags þegar maður er óþreyttur. En ég á mér draum um að fara aftur að skrifa á góðum tíma dags og það kemur kannski að því. Úrklippur úr safni Herdísar um tíma hennar í hinni vinsælu kvennarokk- sveit Grýlunum. merkt „ritlaun“. Mér fannst þetta merkilegra en að leika í Með allt á hreinu.“ Herdís er í fullri vinnu hjá Hljóðbók. „Ef maður ætlar að skrifa verður maður að skrifa á góðum tíma dags þegar mað- ur er óþreyttur. En ég á mér draum um að fara aftur að skrifa á góðum tíma dags og það kemur kannski að því.“ Skyldi hún luma á skáldsögu? „Nei, ég get ekki sagt það. Maður veit svo sem ekki hvað gerist. Ég var með heila ljóðabók sem lenti ofan í skúffu fyrir mörgum árum en dró hana aftur upp um daginn. Ég hef líka sent frá mér plötur með tónlist við eigin texta og finnst mjög gaman að vinna með texta,“ segir hún en platan Það sem augað ekki sér inniheldur 15 lög eftir Herdísi með trúarlegum textum sömuleiðis eftir hana. Biblían er perlan hennar „Ég fór að stúdera Biblíuna, tók hana og setti upp á píanóið og fór að spila. Lögin komu á færibandi. Ég réð góða tónlistar- menn með mér og gerði disk.“ Hún byrjaði að glugga í Biblíuna um tvítugt og gerði það af og til í fimmtán ár áður en hún uppgötvaði það sem hún kallar „perluna sína“. „Svo hef ég líka spilað í kirkju- hljómsveitum hjá fríkirkjum eins og Veginum, Fíladelfíu og fleirum. Ég spila minna núna en þetta var hluti af lífi mínu í mörg ár. Ég fór í kirkju á sunnu- dögum og spilaði. Núna fer ég bara í kirkju og aðrir spila fyrir mig.“ Herdís og Gísli búa í Skerjafirðinum og voru áður í Vesturbæ. „Ég mundi ekki gera honum það að flytja úr hverfinu. Það er mikið mál fyrir sjónskerta að læra að rata.“ Hún vekur máls á því hvað tölvu-

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.