SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Side 29

SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Side 29
16. október 2011 29 fyrir því. Saga Silvíu er búin. Við sem unnum að þáttunum um hana bjuggum til sögu og endirinn var skrifaður.“ Samstarf þitt við Megas hefur vakið nokkra athygli. Hvernig er að vinna með þeim snillingi? „Í nokkur ár hef sungið öðru hvoru með Megasi. Ég man hvað mér fannst það mikill heiður þegar hann hringdi fyrst í mig og til að spyrja hvort ég vildi syngja með sér. Mér finnst ævinlega merkilegt að sjá nóturnar hans og finnst skriftin hans svo dýrmæt. Ég er alltaf jafn lotningarfull þegar ég vinn með honum og vil ekki spyrja of mikið. Ég er eins og mús í kringum hann.“ Hvernig lýsir maður ást? Nú ertu komin í nýtt hlutverk í lífinu, sem mamma. Hvernig er það? „Ég á þriggja mánaða gamlan strák. Þegar maður eignast barn verður tilgangur lífsins sýnilegur en með því er ég alls ekki að segja að þeir sem eigi engin börn lifi í tilgangsleysi. Það er sagt að það sé ekki hægt að lýsa þeirri tilfinningu sem fylgir því að eignast barn. Það er alveg rétt. Hvernig lýsir maður ást?“ Þú átt mann, hver er hann? „Jón Viðar Arnþórsson, lögreglumaður og formaður bar- dagafélagsins Mjölnis. Ég stend í þakkarskuld við hann í sam- bandi við mitt framlag til Borgríkis. Hann hjálpaði mikið til við gerð myndarinnar og var hlekkur milli okkar og lögreglunnar. Hann þjálfaði mig og kenndi mér og setti mig í ótal æfingar. Henti mér út í sjó, kenndi mér að losa mig úr handjárnum, sagði mér frá því hvernig fólk er handtekið og hvernig það er yfirheyrt. Hann fór með mig í gegnum allt ferlið.“ Hvernig kynntust þið? „Systir hans, sem er skemmtileg og fyndin stelpa, tók mig með sér á æfingu í Mjölni og þar var bróðir hennar, Jón Viðar, að þjálfa. Það kom mér á óvart hvað þetta var gaman og ég lærði mikið og var ekki barin í klessu.“ Þú hefur unnið með alls konar fólki, þar á meðal Jóni Gnarr og fleirum í Besta flokknum. Hefur þú áhuga á stjórnmálum? „Nei, ekki sjálfri pólitíkinni en ég hef áhuga á samfélaginu sem ég bý í. Mér finnst nauðsynlegt að fólk láti í sér heyra ef því er misboðið og ef það vill breytingar. Þegar við gerðum þættina um Silvíu Nótt var mér farið að ofbjóða hégóminn og græðgin í samfélaginu. Silvía Nótt var ádeila á þessa þætti í íslensku þjóðfélagi. Það skildu það ekki allir en það er líka allt í lagi, fólk þarf ekki að skilja hlutina á einn og sama hátt. Mín skoðun er sú að ef maður vilji hafa áhrif á samfélagið þá verði maður að tjá sig. Það er sérstaklega eitt mál í íslensku þjóðfélagi sem brennur á mér núna. Það er kjarabarátta lögreglunnar sem ég styð af heilum hug. Ég veit af álaginu sem er á lögreglumönnum. Kær- astinn minn er lögreglumaður en hann er búinn að segja upp því hann sér ekki fram á að geta haldið áfram í starfi sínu við þau kjör sem boðið er upp á. Margir sem ég þekki innan lög- reglunnar er í sömu stöðu og ætla að hætta. Það er mikill missir fyrir þjóðfélagið ef gott og hæft fólk hættir störfum og það skapar líka hættu ef illa er búið að lögreglunni. Verkefni fíkni- efnadeildarinnar eru til dæmis gríðarlega umfangsmikil og snerta alls kyns glæpastarfsemi, fíkniefnamál og mansal en í þeirri deild vinna einungis nokkrir einstaklingar sem geta ekki sinnt öllum málum. Ef starfsmönnum væri fjölgað væri hægt að tryggja öryggi almennings mun betur en nú er gert. Stund- um þarf svo lítið til að bæta ástandið.“ Í lokin, hvar er kvikmyndahandritið sem þú sagðir frá í byrjun og varst að skrifa? „Ég týndi því. En hver veit, kannski skrifa ég bara annað.“ ’ Þegar maður eignast barn verður tilgangur lífsins sýnilegur en með því er ég alls ekki að segja að þeir sem eigi engin börn lifi í tilgangs- leysi. Það er sagt að það sé ekki hægt að lýsa þeirri tilfinningu sem fylgir því að eignast barn. Það er alveg rétt. Hvernig lýsir maður ást?

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.