Morgunblaðið - 19.05.2010, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.05.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Besta lausnin er að koma búpeningi og framleiðslu af versta öskufalls- svæðinu, að mati ráðunauta. „Svarta svæðið“, eins og það er nefnt, nær frá Steinum og austur að Hrútafelli undir A-Eyjafjöllum. Fólk á svæðinu hefur áhyggjur af velferð sinni og finnst ekki vært þar, enda er and- rúmsloftið verulega mengað vegna svifryks. Börn hafa verið flutt af svæðinu í skárra andrúmsloft. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu Bændasamtaka Íslands um ástand á áhrifasvæðum eldgossins í Eyja- fjallajökli. Skýrslan var kynnt á fundi í sjávarútvegs- og landbúnað- arráðuneytinu í gær. Hún var gerð eftir að hópur héraðsráðunauta og annarra starfsmanna Bændasam- takanna og búnaðarsambanda fór um áhrifasvæði eldgossins 11. og 12. maí s.l. og heimsótti 120 bæi. Ráðu- nautarnir könnuðu m.a. húsakost og aðra aðstöðu, fóðurbirgðir, fóður- þörf, mannaflsþörf og fleira. Annars staðar undir Eyjafjöllum eru bændur að hugleiða hvort þeir eigi að bera á og sá í vor. Bændurnir krefjast þess að reglulega verði tek- in sýni til að meta eitrunaráhrif ösk- unnar á skepnur og fóður. Í heild er ástandið undir Eyjafjöll- um betra en búast mátti við og menn bera sig vel. Almennt er staðan góð hvað varðar hey. Vandi sauðfjárbúa er þó greinilegur og fólkið er orðið þreytt. Dagamunur virtist vera á líð- aninni. Öskufallsdagar bæði draga úr fólki kjark og kraft en svo lagast líðanin á milli. Ráðstafanir til að útvega hey Sveitarstjórnir Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftár- hrepps hafa falið Bændasamtökun- um og Búnaðarsambandi Suður- lands að afla upplýsinga um bændur sem eru reiðubúnir að selja gott hey til bænda á öskufallssvæðinu. Bæði er um að ræða fyrningar sem hægt er að flytja með skömmum fyrirvara og eins hey sem aflað verður í sumar. Bændur sem telja sig vera aflögu- færa með hey eða geta útvegað hey að loknum slætti eru beðnir um að hafa samband við Bændasamtökin. Verst á „svarta svæðinu“  Ástand kannað á 120 bæjum á áhrifasvæði eldgossins  Ráðstafanir gerðar til að útvega bændum nóg af heyi Morgunblaðið/RAX Vandinn vex Vandræði bænda vegna eldgossins fara víða vaxandi. Flóahrepp- ur stefnir Svandísi Flóahreppur stefndi fyrir skömmu um- hverfisráðherra, Svandísi Svav- arsdóttur, fyrir að standa í vegi fyrir uppbygg- ingu í hreppnum. Ráðherrann hef- ur sem kunnugt er neitað að stað- festa aðalskipulag þar sem gert er ráð fyrir virkjun við Urriðafoss. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun maí, að sögn Aðalsteins Sveinssonar, oddvita Flóahrepps, í gær. „Við fórum fram á flýtimeðferð og ráðuneytið fékk frest til 1. júní til að skila grein- argerð,“ sagði Aðalsteinn. „Við sitjum uppi með að hafa ekki neitt aðalskipulag sem merkir að við getum ekki heldur ákveðið deili- skipulag. Menn geta ekki einu sinni reist hænsnakofa ef ekki er fyrir hendi deiliskipulag. Þetta er ástand sem hefur áhrif í um þriðjungi hreppsins og á tugi aðila hér.“ Aðalsteinn Sveinsson Sveitarfélagið er án aðalskipulags Kristján Jónsson kjon@mbl.is Engar hömlur voru á millilandaflugi hérlendis í gær og flogið var á áætlun vestur á firði og til Vestmannaeyja en ekki til Akureyrar eða Egils- staða. Telji Isavia (áður Flugstoðir) ástæðu til að takmarka flug vegna gosösku er aðeins átt við svo- nefnt blindflug, treysti flugmenn sér til að fljúga sjónflug mega þeir það en á ábyrgð flugrekenda. Flugfélag Íslands flaug þannig ekki áætlunarflug frá Reykjavík til Akureyrar enda þótt flogið væri sjónflug þaðan til Grímseyjar og Vopnafjarðar, að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur hjá Isavia. Horfur um flug í dag voru góðar nema til og frá Ísafirði, þangað teygir sig í dag tota af ösku samkvæmt spám. Sprengigos er áfram í Eyja- fjallajökli, að því er sagði í tilkynningu frá Veð- urstofu Íslands og jarðvísindadeild Háskólans í gær. Má gera má ráð fyrir að yfir 200 tonn komi nú upp úr gígnum á sekúndu hverri. Gjóskufalls gætti á Norðausturlandi, gosmökkurinn var nokk- uð stöðugur í um sjö km hæð. Stíf sunnan- og suð- vestanátt var yfir eldstöðinni, nær jörðu var hins vegar austlægari vindur sem blés áður fallinni ösku til vesturs og norðvesturs. Á loftmyndum sást að geysimikið rykmistur var síðdegis yfir miklum hluta sunnanverðs lands- ins, þ. á m. Reykjavík. Í Hrauneyjum urðu bílar svartir vegna öskufalls. Einnig bárust fréttir af lít- ilsháttar öskufalli á Hæli í Gnúpverjahreppi, Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu, Felli í Vopnafirði og í Neskaupstað. Auk þess sást þunn slikja yfir fjöllum norðan Seyðisfjarðar. Rofar til í háloftunum á ný  Takmarkanir gætu orðið á Ísafjarðarvelli í dag vegna ösku úr Eyjafjallajökli  Millilandaflug ætti að verða í lagi enda allir stærstu vellir opnir fyrir blindflug Gefinút kl. 18.00 í gær.Gildir til kl. 12.00 í dag. Spá um öskudreifingu Flug óheimilt og flugvöllum lokað. Flug heimilt með sérstökum undan- þágum og eftirliti. Kjósendur í sveitarstjórn- arkosningunum 29. maí nk. geta nú sent spurn- ingar til fram- bjóðenda í sínu sveitarfélagi inn á kosningavef mbl.is. Hægt verður að senda spurn- ingar annað hvort skriflega eða með því að senda myndskeið í gegn- um sérstakan hnapp merktan „Þú spyrð“. Kosningavefur mbl.is birtir dag- legar fréttir af kosningabaráttunni og þeim málefnum sem barist er um í hverjum landshluta fyrir sig. Nýjung á kosn- ingavef mbl.is Mwww.mbl.is/kosningar „Það er mikil veiði,“ sagði Sigurður Ingi Grétarsson, smábátasjómaður frá Akranesi, sem kom í gær í land með um 700 kíló af fiski, þar af um 600 kíló af þorski. Sigurður er með yngstu útgerðarmönnum á landinu, en hann er aðeins 21 árs. Félagi hans á bátnum í sumar er Anton Örn Rúnarsson sem er 17 ára, en Anton var að fara í sinn fyrsta róður í gær. Sigurður segist í samtali við Morgunblaðið vera ánægður með strandveiðarnar, en hann stundaði sjóinn líka í fyrra. Það kosti að vísu talsvert mikið að gera klárt fyrir veiðarnar, en þetta sé góð búbót. Sigurður segir að nóg sé af fiski í flóanum. Bátarnir séu fljótir að ná þeim afla sem þeim er heimilt að veiða á hverjum degi. Aflann selur hann á markaði. egol@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Með Í́slands yngstu útgerðarmönnum Drengur á fjórða ári lést á gjör- gæsludeild Landspítalans á mánu- dag eftir slys á róluvelli við fjöl- býlishús í Rimahverfi í Grafarvog- inum síðdegis á laugardag. Lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn slyssins og greinir ekki nánar frá málsatvikum að svo stöddu. Lést eftir slys á róluvelli Alþingi sam- þykkti í gær frumvarp um breytingar á lög- um um Bjarg- ráðasjóð með 46 samhljóða at- kvæðum. Með lögunum er kom- ið til móts við bændur sem orð- ið hafa fyrir bú- sifjum vegna eldgossins í Eyja- fjallajökli. Lagabreytingin gerir ríkinu kleift að leggja meira fjármagn til Bjargráðasjóðs, eða um meira en 80 milljónir króna. Sjóðnum er m.a. ætlað að bæta bændum tjón vegna gossins sem aðrir bæta ekki. Lögin fela einnig í sér að heimilt er að greiða beingreiðslur til bænda þó að framleiðsla kúabænda á ham- farasvæðunum raskist eða liggi niðri um tíma, svo minni líkur séu á að bændur bregði búi. egol@mbl.is Lög um Bjargráða- sjóð samþykkt Eldgos Kýr undir Eyjafjallajökli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.