Morgunblaðið - 19.05.2010, Síða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Andri Karl
andri@mbl.is
Ríkisstjórnin hefur falið iðnaðarráð-
herra að taka upp viðræður við for-
svarsmenn kanadíska orkufyrirtæk-
isins Magma Energy til að fara yfir
þann auðlindasamning sem HS
Orka gerði á sínum tíma. Í honum
er gert ráð fyrir nýtingarrétti á
orkuauðlindum á Reykjanesi til 65
ára með möguleika á framlengingu
til 65 ára til viðbótar. Forsætisráð-
herra segir fáránlegt að hægt sé að
leigja slíkan nýtingarrétt til 130 ára
og segir að hann eigi ekki að vera
lengri en 40-45 ár.
Kaup Magma á 52% hlut
Geysis Green Energy í HS Orku
voru rædd ítarlega í ríkisstjórninni í
gær. Að fundi loknum var kynnt
samþykkt allra ráðherra. Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
sagði að samþykkt hefði verið að
hraða lagasetningu, m.a. í samræmi
við nýútkomna skýrslu á vegum sér-
fræðinefndar um fyrirkomulag leigu
á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu
ríkisins.
Verið er að vinna frumvarp upp
úr skýrslunni en meginniðurstaða
nefndarinnar er að nýtingarrétti á
sameiginlegum auðlindum þjóðar-
innar verði ekki ráðstafað nema
með tímabundnum hætti. „Það er
miðað við að leigutími verði veru-
lega styttur, en eins og þið þekkið
er hann í lögum núna 65 ár, sem má
bæta við öðrum 65 árum,“ sagði Jó-
hanna.
Vildu innlenda fjárfesta
Auk þess leggur ríkisstjórnin
áherslu á að rætt verði við forsvars-
menn Magma um forkaupsrétt á
eignarhaldi HS Orku í 20 ár. Jó-
hanna sagðist hafa vonað það í
lengstu lög að innlent fjármagn
fengist til kaupanna, s.s. í gegnum
lífeyrissjóðina. Þeir hefðu skoðað
málið en metið það svo, að um of
mikinn áhætturekstur væri að
ræða.
Hvað varðar afstöðu Samfylking-
ar til þess að ríkið gengi inn í kaupin
sagði Jóhanna að ef lífeyrissjóðirnir
treystu sér ekki í þau hlyti sama að
gilda um ríkisvaldið. Og auk þess
„eigum við þetta fjármagn hreinlega
ekki til. […] Við erum að tala um sex-
tán milljarða og síðan þarf að setja 25
milljarða í viðbót í framkvæmdir sem
eru framundan“, sagði Jóhanna og
benti á að um væri að ræða svipaða
upphæð og vantaði til að fylla upp í
fjárlagagatið.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði ljóst að undir-
skriftinni yrði ekki breytt úr þessu
„enda höfnuðu þeir því að fresta af-
greiðslu málsins þannig að við
fengjum færi á að skoða það“. Sjálf-
ur hefði hann viljað gera hliðar-
samning um kauprétt ríkisins, eða
ríkisins og innlendra aðila, sem
staðið hefði opinn í einhverja mán-
uði. Þannig hefði ríkið fengið ráð-
rúm til að „safna liði innlendra að-
ila“ sem þá hefðu getað gengið inn í
kaupin og átt jafnan hlut á móti
Magma.
Burtséð frá deilunum um kaup
Magma sagðist Steingrímur hafa
áhyggjur af framtíð HS Orku og
hvernig ynnist úr þeim fjölmörgu
málum sem enn væru óleyst, s.s.
varðandi nýtingu auðlindanna og
réttindi landeigenda, þ.m.t. talið rík-
is og sveitarfélaga, sem ættu jarð-
hitaréttindi á svæðinu.
Steingrímur sagði það tímamót
að svo stór hlutur færðist í hendur
erlendra aðila og nú yrði að vinna úr
þeirri stöðu. Enn ætti ýmislegt eftir
að skýrast, s.s. um áform Magma.
Ríkisstjórnin vill stytta nýtingar-
rétt Magma úr 130 árum í 40-45 ár
Iðnaðarráðherra falið að taka upp viðræður um auðlindasamning sem HS Orka gerði á sínum tíma
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ríkisstjórn Samhljómur var meðal stjórnarflokkanna um að vilja frekar innlenda fjárfesta en Magma Energy.
» Ríkisstjórnin mun einnig
leggja áherslu á endurskoðun
stjórnarskrárinnar til að
tryggja enn frekar eign þjóð-
arinnar á auðlindum landsins.
» Ekki verður hróflað við
eignarhaldi á orkufyrirtækjum
sem eru á hendi ríkisins í tíð
þessarar ríkisstjórnar.
» Magma Energy ræður nú
yfir 98,53% hlut í HS Orku, eft-
ir kaup á 52,3% hlut Geysis
Green Energy.
» Íslenskir lífeyrissjóðir
hurfu frá málinu. Að sögn for-
sætisráðherra vegna þess að
talið var að um of mikinn
áhætturekstur væri að ræða.
Það er*Einungis er greitt upphafgjald 6 kr. af hverju símtali. Mán.verð 1.765 kr.
0 kr. mínútan úr
heimasíma í heimasíma*
Nú geturðu blaðrað eins og þú vilt.
Hringdu í
800 7000
til að panta
heimasíma