Morgunblaðið - 19.05.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Þegar Dagur B. Eggertsson, vara-formaður Samfylkingarinnar og
oddviti flokksins í Reykjavík, var
spurður út í nýja skoðanakönnun
svaraði hann því til að kannanir gætu
verið misvísandi. Ástæðan fyrir því
að hann vildi sem minnst gera úr
könnuninni er vitaskuld sú að Sam-
fylkingin mældist aðeins með tæp-
lega 17% fylgi.
Það er auðvitaðrétt hjá Degi
að kannanir geta
verið misvísandi,
en það er óþarfi
fyrir hann að gefa
sér að þessi könn-
un sé það. Ekki er
síður líklegt að
kjósendur telji
Dag senda misvís-
andi skilaboð.
Helsta slagorð oddvitans Dags er„Samfylkingin sættir sig ekki við
atvinnuleysið í borginni,“ og hann
segist ætla að taka miklu harðar á í
atvinnumálum en aðrir.
Helsta afrek varaformannsinsDags er hins vegar ríkisstjórn
flokks hans sem hefur í kreppunni
varið mun minni fjármunum til at-
vinnuuppbyggingar en Reykjavík-
urborg.
Sérstakt áhersluatriði oddvitansDags er að „öll störf hjá Reykja-
víkurborg verði auglýst og ráðningar
ákveðnar á faglegum forsendum“.
Samfylking varaformannsins Dagshefur hins vegar þá ráðning-
arstefnu í ríkisstjórn á slá met í óaug-
lýstum og ófaglegum ráðningum.
Þetta eru bara tvö dæmi um misvís-andi skilaboð varaformannsins
Dags og oddvitans Dags til kjósenda í
Reykjavík. Er nokkur furða þótt
skilaboð kjósenda séu „misvísandi“
við þessar aðstæður?
Dagur B.
Eggertsson
„Misvísandi“ skilaboð
Veður víða um heim 18.5., kl. 18.00
Reykjavík 10 súld
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 7 skýjað
Egilsstaðir 12 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 rigning
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 15 skýjað
Glasgow 18 léttskýjað
London 16 heiðskírt
París 17 heiðskírt
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 11 skýjað
Berlín 12 skýjað
Vín 13 skýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 25 heiðskírt
Barcelona 19 heiðskírt
Mallorca 20 heiðskírt
Róm 21 léttskýjað
Aþena 19 skýjað
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 22 alskýjað
New York 11 skúrir
Chicago 16 alskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
19. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:59 22:50
ÍSAFJÖRÐUR 3:36 23:23
SIGLUFJÖRÐUR 3:18 23:07
DJÚPIVOGUR 3:22 22:26
Framsóknarmenn í Reykjavík telja
ekki ástæðu til að hækka skatta eða
hækka gjaldskrár umfram verð-
lagsþróun. Þetta kom fram á fundi í
gær þar sem þeir kynntu stefnumál
sín. Þeir vilja að áfram verði haldið á
sömu braut með aðhaldsaðgerðir í
rekstri borgarinnar og að forgangs-
raðað verði í þágu barna og vel-
ferðar.
„Fólk í borginni á mjög erfitt með
að láta enda ná saman. Reykjavík-
urborg þarf því að reyna eftir megni
að hækka ekki álögur. Þess vegna
munu þessar kosningar skipta miklu
máli fyrir fólkið í borginni. Það er
bara á fjögurra ára fresti og það
verður ekki kosið eftir á,“ sagði Ein-
ar Skúlason, oddviti framsókn-
armanna, á blaðamannafundi.
Einar segir að borgin hafi staðið
sig vel í að koma fólki til hjálpar með
því að hækka ekki skatta eða gjald-
skrár. Hann benti á að það væru
ekki bara atvinnulausir og aðrir við-
kvæmir hópar sem ættu erfitt með
að ná endum saman. „Millitekjufólk
á í vaxandi erfiðleikum með að eiga
fyrir nauðsynlegum útgjöldum.
Reykjavíkurborg getur ekki ein
dregið vagninn í því að létta byrðar á
íbúum. Ríkið, sem hefur verið að
hækka bæði beina og óbeina skatta,
þarf líka að leggja hönd á plóg svo að
fólk geti bjargað sér á eigin spýtur.“
Framsóknarmenn leggja áherslu
á mannaflsfrekar viðhalds-
framkvæmdir, fegrun hverfa og
ferðamennsku. Hrinda þurfi af stað
atvinnuskapandi verkefnum fyrir
mismunandi aldurshópa.
Lögð verði áhersla á að klára þær
framkvæmdir sem eru í gangi, svo
sem Norðlingaskóla, Sæmund-
arskóla, menningarmiðstöð við
Spöngina í Grafarvogi og klára upp-
byggingu á þjónustu í nýjum hverf-
um borgarinnar.
„Ekki á að skerða grunnþjónustu í
leikskólum og skólum. Þá vilja fram-
sóknarmenn ókeypis hafragraut og
lýsi í alla skóla.“
Vilja ekki hækka skattana
Framsóknarmenn í borginni leggja
áherslu á viðhaldsframkvæmdir
Framsókn Einar Skúlason kynnti
áherslur flokksins í Elliðaárdal.
Sigurður Guðmundsson, fyrrver-
andi skólastjóri, kom færandi
hendi á Grensásdeild í vikunni og
afhenti starfsfólki þar 13 pör af
göngustöfum að gjöf. Þannig vildi
Sigurður þakka fyrir sig, en í kjöl-
far áfalls fyrr á þessu ári dvaldist
hann á deildinni og fór í gegnum
meðferð sem skilaði góðum ár-
angri. Það var þó ekki síst atgervi
Sigurðar sjálfs sem breytti stöð-
unni, en hann hefur í áranna rás
stundað stafagöngu af kappi og
var fljótlega eftir að hann kom á
Grensás farinn að arka þar um
ganga og nágrenni sem skilaði
honum bata vonum fyrr. „Stafa-
ganga er alhliða hreyfing og reyn-
ir á allan líkamann,“ segir Sig-
urður, sem telur að þessi þjálfun
geti gagnast mörgum þeim sem
dveljast á Grensásdeild.
13 pör af göngustöfum
www.noatun.is
OG GOTT
HOLLT
Við gerum
meira
fyrir þig
LAXAFLÖK
BEINHREINSUÐ
KR./KG
1998
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
ERSKIR
Í FISKI
Sex menn voru
handteknir eftir
vopnuð hópslags-
mál við fjölbýlis-
hús við Tröllakór
í Kópavogi í gær.
Tveir hópar tók-
ust á, en málið
tengist fíkniefna-
viðskiptum. Lög-
reglan fór í hús-
leit í Tröllakór í framhaldinu og
fundust á þriðja hundrað kanna-
bisplantna og tæki til ræktunar í
einni íbúð.
Mennirnir börðust með bareflum
og öxi. Tveir þeirra voru fluttir á
slysadeild með áverka. Einn hlaut
áverka í andliti, og er hann talinn
vera brotinn, en hinn áverka á baki
og á hálsi. Mennirnir eru allir ís-
lenskir og hafa áður komið við sögu
lögreglu. Þeir eru á þrítugs-, fer-
tugs- og fimmtugsaldri. Rannsókn
málsins er á frumstigi.
jonpetur@mbl.is
Sex börðust með
bareflum og öxi