Morgunblaðið - 19.05.2010, Qupperneq 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÍSA, ÉG KEMST EKKI ÚT AÐ BORÐA
Í KVÖLD. ÉG ER MEÐ HRÆÐILEGT KVEF
ENGAR ÁHYGGJUR...
GRETTIR HUGSAR MJÖG
VEL UM MIG
EÐA BARA
EKKI
VÆRIR ÞÚ
NOKKUÐ TIL
Í AÐ ANDA
Í HINA
ÁTTINA?
TAKK
KÆRLEGA
FYRIR JÓLA-
KORTIÐ
EN ÉG SENDI ÞÉR ALDREI
JÓLAKORT, KALLI BJARNA
HVERNIG GASTU EKKI HEYRT
AÐ ÞETTA VAR KALDHÆÐNI?
Í GÆRKVÖLDI
LOFAÐIR ÞÚ AÐ
Í DAG MYNDIR
ÞÚ SNÚA VIÐ
BLAÐINU!
ÞETTA HLÝTUR
AÐ VERA EINHVER
MISSKILNINGUR...
ÉG VEIT EKKI EINU
SINNI UM HVAÐA BLAÐ
ÞÚ ERT AÐ TALA
ÉG ER
ÁNÆGÐUR AÐ
ÞÚ SAGÐIR
EITTHVAÐ.
MÉR FINNST
ÉG NÁNARI
ÞÉR NÚNA
MÉR
FINNST ÉG
NÁNARI
ÞÉR
KRAKKAR... HJÓNABANDS-
NÁMSKEIÐIÐ ER EKKI BÚIÐ
EH...
AFSAKIÐ HEH...
ÞÚ HEFUR RÉTT
FYRIR ÞÉR. ÉG HEF
REYNT AÐ KOMA Í VEG
FYRIR AÐ ÉG ÞURFI AÐ
SÝNA TILFINNINGAR Á
ÞESSU NÁMSKEIÐI
ÞARNA
ERU DYRNAR
LÖGGAN NÆR
MÉR EKKI ÚR
ÞESSU
BARA NOKKUR
SKREF Í VIÐBÓT OG
ÉG ER SLOPPINN
Æ, NEI! MARÍA LOPEZ OG
TÖKULIÐIÐ HENNAR
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN?
HVAÐ ÞARF
MAÐUR
YFIRLEITT AÐ
BÍÐA HÉRNA
LENGI ÁÐUR
EN GUÐIRNIR
BYRJA AÐ
TALA VIÐ
MANN?
Hvað er að?
Þessa dagana er mikið
talað um mótmælend-
urna sem voru með
óspektir í dómsal.
Hissa er ég á alþing-
ismönnum sem vilja
fella þetta mál niður.
Eru þetta þau skila-
boð sem við viljum
senda út í þjóðfélagið?
Erum við ekki búin
að sjá nógu margar
myndir af skrílslátum
hjá mótmælendum í
útlöndum sem taka
lögin í sínar hendur?
Hef ekki nokkra trú á
því að þeir dæmdu fengju þungan
dóm fyrir þetta, en finnst það
hneyksli ef málið verður ekki klár-
að.
Vil fá að vitna í orð Gylfa Jóns
Gylfasonar, sálfræð-
ings hjá Reykjanesbæ,
sem voru sögð í sjón-
varpi RÚV í vikunni
(að vísu ekki í sam-
bandi við þetta mál).
Fólk telur sig hafa
rétt til að útkljá sín
mál með ofbeldi fram
hjá réttarríkinu, þessi
sjálftaka sé að hans
mati krabbamein í ís-
lensku samfélagi og
það þurfi að uppræta
það.
Er það ekki akkúrat
málið?
Svo vil ég þakka
fyrir frábærar skop-
myndir í Morgunblaðinu.
Kristín.
Ást er…
… hlýjar minningar.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, postu-
lín kl. 9, Grandabíó, útsk. postulín kl. 13.
Árskógar 4 | Handavinna, smíði og út-
skurður kl. 9, heilsugæsla kl. 10-11.30,
söngstund kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, glerlist,
fjöldasöngur við undirleik Árna Ísleifs. á
morgun kl. 13.30.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9, leik-
fimi kl. 10, verslunarferð kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, vefn-
aður kl. 9, leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga kl. 10, samkoma
söngvökufólks og gesta kl. 15-17.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
10.30, félagsvist kl. 13, viðtalst. FEBK kl.
15-16, línudans kl. 18, samkv.dans kl. 19.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, ganga kl. 10, leikfimi kl. 12.45,
postulín/kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikf./kvennaleikf., brids og búta-
saumur, fastir tímar. Vorhátíð FEBG í
Sjálandssk. 28. maí kl. 20, skrán. í Jóns-
húsi.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustof.kl.
9, söngur, leikfimi og dans kl. 10. Spilsal-
ur opinn, s. 575-7720.
Félagsstarf Mosfellsbæ | Ferð í Bisk-
upstungur 21. maí. Þar verður sýning
m.a. á handverki og gömlum munum.
Lagt af stað frá Eirhömrum kl. 13. Skrán.
í síma 586-8014 og 692-0814.
Grensáskirkja | Samvera í safn-
aðarheimilinu kl. 14.
Hraunbær 105 | Hinn 20. maí verður
spiluð félagsvist kl. 13.30, sú síðasta fyr-
ir frí.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, pútt kl. 10,
línudans kl. 11, handavinna/glerbræðsla
útskurður kl. 13, píla/ bingó kl. 13.30,
Gaflarakórinn kl. 16, oddvitar flokka í
Hafnarfirði koma 21. maí kl. 14-16. sjá
www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30,
9.30og 10.30, vinnustofa kl. 9. Sam-
verustund kl. 10.30, lestur og spjall.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Jón Gnarr,
frambjóðandi Besta flokksins, kemur í
heimsókn kl. 14. Upp. í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópavogs-
skóla kl. 15.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
fimmtudag, kl. 10 keila í Keiluhöllinni við
Öskjuhlíð. Listasmiðjan á Korpúlfs-
stöðum er opin á morgun frá kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá Heilsugæslunni kem-
ur kl. 10.30, iðjustofa – glermálun kl. 13,
kaffiveitingar kl. 14.30.
Neskirkja | Opið hús. Heimsókn að Sól-
heimum í Grímsnesi. Lagt af stað kl. 13.
Skráning til kl. 12 í dag.
Vesturgata 7 | Sund kl. 10, mynd-
mennt/postulínsmálun/silkimálun kl. 9,
verslunarferð kl. 12.10, tréskurður kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
handavinnustofa, morgunstund kl. 10,
verslunarferð 12.20, framh.saga kl.
12.30, bókband og dans kl. 14 við undir-
leik Vitatorgsbandsins.
Það er alltaf forvitnilegt aðfletta gömlum dagblöðum. Jón
Kalman Stefánsson skrifaði um
kvæði eftir Stein Steinarr í Lesbók-
ina 11. október árið 2008: „Fjandi
lífseigur kveðskapur, sífellt eins og
maður sé að lesa kvæðin í fyrsta
sinn, og gott ef það er ekki skyld-
leiki milli þeirra og einnar vísu eft-
ir Pál Vídalín, sem er ekki lítið
hrós því ég held að það sé besta vís-
an sem ort hefur verið á Íslandi:
Einatt liggur illa á mér,
ekki eru vegir fínir;
heilir og sælir séu þér
snjótittlingar mínir.
Hjálmar Freysteinsson var að
garðyrkja og orti af því tilefni:
Fífillinn er fagurt blóm,
flestum gleði veitir.
Honum gef ég góðan dóm,
garðinn minn hann skreytir.
Davíð Hjálmar Haraldsson greip
það á lofti:
Gyllir fífill garð og stekk,
gægist rót um smugur.
Löngum hafa líkan smekk
læknirinn og flugur.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía
á Sandi, þekkir vel til jurtanna í
Aðaldalnum og yrkir:
Flugur suða fögrum hljómum,
fellir döggin morguntár.
Fíflar verða flestum blómum
fegri í mínum garði í ár.
Svo kastar hún fram spurningu:
„Þekkið þið ekki fíflalíkjör?“
Jurtin sú er mjög svo mæt
í morgunkornið blöðin læt
Rótin, hún er einnig æt
og út í vín er krónan sæt.
Helgi Zimsen er sammála því að
fíflar séu góðir til manneldis og
raunar arfi líka. Og hann „fíflast“
aðeins:
Fíflalegt ef finn ég beð
fagurgult, er hressing
að rífa upp (og arfa með)
út á setja „dressing“.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af fíflum, Steini og Páli