Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2011 13 Tilboð 49.900,- Fullt verð 66.900,- Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040 w w w . h i r z l a n . i s FATASKÁPADAGAR 25% afsláttur af fataskápum í október Tilboð 39.150,- Fullt verð 52.200,- Tilboð 39.150,- Fullt verð 52.200,- Tilboð 94.725,- Fullt verð 126.300,- Tilboð 106.650,- Fullt verð 142.200,- Tilboð 74.550,- Fullt verð 99.400,- Rennihurðir Hvítt/hnota/askur Remix Háglans svart eða hvítt Það er algengt að kvartað sé yfir því að lögfræðingar séu „óttalegir formalistar“. Helst heyrist þessi gagnrýni þegar fregnir berast af því að sakamáli hafi verið vísað frá dómi vegna brots á formreglum. Þá er gjarnan fussað og sveiað yfir því að ákærðu hafi „sloppið á tækni- atriðum“, að dómstólar „hangi um of í forminu“. En hvað býr að baki form- reglum í lögunum? Af hverju skiptir máli að slíkum reglum sé fylgt? Að þessu sinni verður gerð tilraun til að útskýra mikilvægi formsins í lögfræðinni og sér- staklega vikið að formreglum við meðferð sakamála. Formið skiptir máli fyrir efnið Réttarreglur eru gjarnan flokk- aðar með ýmsum hætti, t.d. í boð- og bannreglur eða í form- og efnisreglur. Formreglur eru reglur sem mæla fyrir um verk- lag sem stjórnvöld eiga að fylgja áður en þau taka ákvörðun, t.d. um að þeim beri að rannsaka mál og veita þeim einstaklingi sem málið varðar kost á að tjá sig. Slíkar reglur fjalla einnig um það hvernig ákæruvaldið á að undirbúa sakamál áður en það er höfðað fyrir dómi, t.d. um það hvernig ákæra á að vera úr garði gerð og hvernig afla má sönnunar gagna. Efnisreglur ráða hins vegar endanlegri niðurstöðu máls. Þær mæla fyrir um þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt svo að viðurkennt verði að maður eigi tiltekinn rétt eða að hann þurfi að bera tiltekna skyldu. Ákvæði almennra hegningarlaga um manndráp af ásetningi er efnis- regla. Ákvæði stjórnsýslulaga um rannsókn máls er formregla. Tilgangur formreglna í lögum er ekki sá að gera það auðvelt fyrir lögfræðinga að tefja mál úr hófi eða gera það óþarflega flók- ið svo þeir geti makað krókinn. Formreglur hafa önnur og göf- ugri markmið. Meðal þeirra er að tryggja að ágreiningsmál sé þannig undirbúið að sem mestar líkur séu á að rétt efnisleg niður- staða fáist. Formið skiptir því í reynd verulegu máli fyrir efnið. Ef formreglum er ekki fylgt skapast hætta á að niðurstaða máls verði efnislega röng. Á það einkum við þegar hið opinbera hefur í hyggju að beita mann valdi, t.d. við meðferð sakamála. Í slíkum málum er formreglum jafnframt ætlað að tryggja mannréttindi sakbornings. Togstreita á milli forms og efnis við meðferð sakamála Á undanförnum árum hefur sumum sakamálum lokið með því að ekki hefur verið leyst efnis- lega úr sakargiftum ákærða. Hefur málum þá verið vísað frá dómi vegna brots á formreglum. Sem dæmi má nefna svokallað „olíusamráðsmál“ þar sem máli var vísað frá á þeim forsendum að undirbúningur þess á rann- sóknarstigi hefði verið ófullnægj- andi. Einnig má nefna „Baugs- málið“ svonefnda. Þar var máli upphaflega vísað frá dómi að hluta þar sem lýsing í ákæru á sakargiftum ákærðu var að mati Hæstaréttar ekki talin nægilega skýr. Um það hefur verið deilt hvort Hæstiréttur hafi í þessum málum gert óhóflegar kröfur til ákæruvaldsins um að form- reglum laga um meðferð saka- mála, svokölluðum réttarfars- reglum, væri fylgt. Það er grundvallarmarkmið laganna að úr ágreinings málum, þ. á m. sakamálum, sé leyst með réttum hætti. Þótt formreglum sé ætlað að tryggja að efnisleg niður staða verði rétt kann óhóf- leg áhersla á formið að koma í veg fyrir málalyktir. Það kann því að myndast togstreita á milli forms og efnis við úrlausn ágreiningsmála. Til frekari útskýringar og í dæmaskyni verður nú vikið nánar að kröfum sakamálalaga til efnis ákæru. Kröfur sakamálalaga til efnis ákæru Í ákæru á að koma fram greinar- góð lýsing á því hvað ákæru- valdið telur að ákærði hafi sér til sakar unnið. Þá kann ákæruvald- inu, ef þörf krefur, að vera skylt að setja fram í ákæru röksemdir þær sem málsóknin er byggð á. Tilgangur þessara formreglna er sá að ákærði fái alla möguleika á því að verja sig fyrir þeim ásök- unum sem settar hafa verið fram. Hvernig getur maður varið sig ef hann veit ekki með vissu hverjar sakargiftirnar eru? Verkefni ákæruvaldsins við að orða ákæru getur verið vand- meðfarið, einkum í stórum og flóknum málum eða þegar á það reynir í fyrsta skipti hvort tiltek- in háttsemi teljist refsiverð. Það er engin algild regla til um hve- nær ákæra telst nægilega skýr til að úr máli verði leyst án þess að skerða rétt ákærða til að halda uppi vörnum. Kjarni málsins er þó sá að ekki má leika vafi á því um hvað ákærði er sakaður af hálfu ákæruvaldsins. Ef vafi er fyrir hendi verður að vera unnt að vísa máli frá dómi. Þegar það er gert er dómarinn ekki að „hanga í forminu“ heldur að tryggja að ekki verði dæmt um sekt eða sýknu ákærða nema hann hafi átt kost á því að halda uppi vörnum. Besta leiðin til að mál sé nægilega upplýst áður en það er dæmt er að bæði ákæru- valdið fyrir hönd almennings og ákærði hafi fengið fullnægj- andi tækifæri til að setja fram sínar hliðar á málinu. Krafan er hins vegar ekki sú að ákæra sé eins vel orðuð og hugsast getur, enda megi ákærða vera fullljóst hvað honum er gefið að sök. Vísi dómari máli samt sem áður frá má réttilega gagnrýna þá niður- stöðu. Jafnvægi milli forms og efnis við meðferð sakamála Það er verkefni dómstóla að tryggja ákveðið jafnvægi á milli forms og efnis við meðferð saka- mála. Þar leikast annars vegar á hagsmunir almennings af því að þeir sem brjóta í reynd af sér sæti refsingu og hins vegar hagsmunir þeirra, sem sakaðir eru, um að njóta réttlátrar máls- meðferðar. Dómarar mega ekki gera of miklar kröfur til formsins. Þeir mega þó heldur ekki láta hjá líða að vernda mann- réttindi sakbornings með form- reglum og tryggja að endanleg niðurstaða máls verði rétt. Skipta formreglur í lögum einhverju máli? Róbert R. Spanó forseti lagadeildar HÍ HUGLEIÐINGAR UM LÖG OG RÉTT Verkefni ákæruvaldsins við að orða ákæru getur verið vandmeðfarið, einkum í stórum og flóknum málum eða þegar á það reynir í fyrsta skipti hvort tiltekin háttsemi teljist refsiverð. AF NETINU Sósíalistinn lækkar skatta! Sósíalistinn Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra Íslands ætti að taka til fyrirmyndar sósíalistann Thor Möger Pedersen sem í dag tók við embætti skattamálaráð- herra Danmerkur. Hinn 26 ára skattamála- ráðherra úr Sósíalíska þjóðar- flokknum, systurflokki VG, gerir sér – andstætt Steingrími J. – fullkomlega ljóst að hófleg skattheimta á atvinnulífið tryggir aukin umsvif atvinnu- lífsins og þar af leiðandi tryggar skatttekjur – meðan skattpíning drepur atvinnulífið, eykur svartra vinnu og dregur úr tekjum ríkisins. blog.eyjan.is Hallur Magnússon Kynjuð nefndaskipan Alþingi skipaði upp á nýtt í fastanefndir og alþjóðanefndir Alþingis á laugardaginn. Eftir að forseti hafði lesið upp nefndarmenn í einstökum nefndum lá fyrir að Alþingi hefur enn á ný náð að skipta kynjum bróðurlega á milli nefnda. Þær nefndir sem fara með fjár-, atvinnu- og utanríkismál eru skipaðar körlum að mestu, á meðan konur sitja frekar í nefndum sem fara með vel- ferðar-, mennta- og dómsmál. Ég hafði áhyggjur af því að þetta gæti orðið niðurstaðan þegar lá fyrir að skipa ætti á ný í nefndir þingsins og lagði áherslu á að formenn þing- flokka yrðu að tala saman um skipan í nefndir m.a. út frá kynjasjónarmiðum. Ástæðan var að ég tel best að sjónarmið beggja kynja fái að heyrast jafnt, -líka þegar kemur að fjár-, atvinnu- og utanríkismálum. Þess vegna hef ég t.d. stutt kynjaákvæði í lögum Framsóknarflokksins og félagarétti. blog.eyjan.is Eygló Harðardóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.