Fréttablaðið - 04.10.2011, Síða 18
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR18
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Stefán M. Gunnarsson
fyrrverandi bankastjóri,
sem andaðist 26. september, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarkort
Kópavogskirkju, s. 554 6820, eða Heimahlynningu
Landspítalans, s. 543 1159.
Hertha W. Jónsdóttir
Jón Gunnar Stefánsson, Tracey E. Stefánsson
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, Benjamín Gíslason
og barnabörn.
Okkar ástkæra
Aðalbjörg
Guðmundsdóttir
Lundi 1, Kópavogi,
andaðist að heimili sínu sunnudaginn 2. október sl.
Guðmundur Skaftason
Valgerður Guðmundsdóttir Páll Svavarsson
Skafti Guðmundsson Gro Kraft
Sigrún Guðmundsdóttir Magnús V. Magnússon
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og dóttir okkar,
Margrét Árnadóttir
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans að kvöldi
25. september. Útför hennar mun fara fram frá
Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 4. október kl 13.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á
Krabbameinsfélag Íslands í stað blóma eða kransa.
Gísli Örvar Ólafsson
Steinar Freyr Gíslason Kristín Guðrún Jónsdóttir
Rúnar Bogi Gíslason
Kristín Ýr Gísladóttir
Árni V. Gíslason Guðrún Steingrímsdóttir
Ástkær faðir okkar,
Bent Jónsson
Dalbraut 25, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti mánudaginn
26. september. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 5. október kl. 14.00.
Gyða Bentsdóttir
Guðrún Edda Bentsdóttir
Jón Bjarki Bentsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Gísli Kristjánsson
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn
1. október. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gísli Már Gíslason Sigrún Sigurðardóttir
Halldóra Gísladóttir Eiríkur Líndal
Anna Gísladóttir Kjartan Örn Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
timamot@frettabladid.is
69 JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR forsætisráðherra er 69 ára.
„Minn tími mun koma!“
„Ég er sátt við mitt hlutskipti. Auð-
vitað situr maður uppi með sjálfan sig
í blíðu og stríðu, og mér hefur ekki allt-
af fundist ég skemmtilegasta stelpan
í partíinu eða að mínar ákvarðanir
hafi allar verið góðar. En lífið er lær-
dómur og þegar upp er staðið tel ég
þessa hálfu öld sem ég hef lifað hafa
verið skemmtilega, ögrandi og lær-
dómsríka,“ segir Ólöf Rún þar sem
hún situr á fimmtugasta afmælisdegi
sínum í haustlaufskrúði Parísarborgar.
„Eiginlega finnst mér hálf fyndið
að vera orðin fimmtug. Ég er ánægð
með aldurinn en líður ekki degi eldri
en þrjátíu og fimm ára,“ segir Ólöf Rún
hláturmild og víst er að aldurinn ber
hún vel.
„Ég hef mjög margt að þakka fyrir
í lífinu og hef alltaf verið lánsöm. Ég
á fimm yndisleg börn, góða fjölskyldu
og vini, skemmtileg áhugamál og var í
skemmtilegu og krefjandi starfi í rúma
tvo áratugi þótt aðrir séu í eldlínunni
núna. Ég hef tíma til að sinna fólkinu
mínu og er í lausamennsku við ýmis
verkefni,“ segir Ólöf Rún, sem lands-
menn sakna margir enn sárt vegna
fagurrar ásjónu, lýtalausrar íslensku
og óaðfinnanlegs fréttaflutnings í sjón-
varpi á liðnum árum.
„Mér hefur alltaf þótt gaman að
eiga afmæli og fyllst spenningi yfir
afmælisdeginum. Í æsku var mikil-
vægt að kókoskaka og bananaterta að
hætti mömmu væri á afmælisborðinu.
Þá hef ég þrisvar fengið ógleyman-
legar afmælisgjafir. Ég fékk frábær-
an frænda næstum því í afmælisgjöf,
en reyndar degi of seint, málverk af
hesti á tímamótum og gæðinga, sem
eru afmælisgjöfin í ár, og hafa þegar
veitt mér mikla gleði,“ segir Ólöf Rún
kampakát. Hún ólst upp í Hlíðunum
fyrstu átta árin og hefur síðan meira
og minna búið í Garðabæ.
„Skemmtilegast aldurinn var í kring-
um 25 árin og svo auðvitað fimmtugs-
aldurinn. Ég hlakka til að lifa næstu
fimmtíu ár, en ætla þá að njóta lífsins
og þakka fyrir hvern dag, því þeir eru
ekki sjálfsagðir, og gera hvað ég get til
að vera sjálfri mér og öðrum til gleði.“
Á þessum fagra haustdegi í París
ætlar Ólöf Rún að rölta um stræti og
torg og eiga afmæli með sínum.
„Ef til vill verður einhver menn-
ingarviðburður á dagskránni eða bara
farið út að borða, en síðast en ekki síst
ætla ég að velta fyrir mér tilganginum
með þessu jarðlífi og þakka fyrir það
góða sem mér hefur hlotnast. Þegar
heim kemur á ný verður svo smá fund-
ur á uppáhaldsstaðnum mínum með
mínum allra nánustu.“
thordis@frettabladid.is
FRÉTTAKONAN ÓLÖF RÚN SKÚLADÓTTIR: BLÆS Á 50 KERTA KÖKU Í PARÍS Í DAG
Fyndið að vera orðin fimmtug
FÆDD FYRIR FIMMTÍU ÁRUM Ólöf Rún er hestakona og fékk gæðinga í fimmtugsafmælisgjöf. Hér situr hún Kötlu-Hervöru á Löngufjörum.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Þýski stjórnmálamaðurinn Helmut Kohl var
kjörinn kanslari Vestur-Þýskalands fyrir 29
árum. Hann var kanslari Vestur-Þýskalands til
ársins 1990 og sameinaðs Þýskalands til 1998.
Árið 1973 varð Kohl formaður Kristilega
demókratasambandsins, eins stærsta stjórn-
málaflokks Þýskalands.
Sextán ára kanslaratíð hans nær yfir
endalok Kalda stríðsins og er sú lengsta í sögu
Þýskalands frá valdatíð Ottós von Bismarck.
Kohl var leiðandi í sameiningarferli Þýska-
lands og er eignaður heiðurinn af Maastricht-
sáttmálanum og þar með Evrópusambandinu,
ásamt François Mitterrand Frakklandsforseta.
Þá er Kohl sá eini sem sæmdur hefur verið
nafnbótinni Heiðursborgari Evrópu, ásamt Jean
Monnet.
HEIMILD: WIKIPEDIA.ORG
ÞETTA GERÐIST: 4. OKTÓBER 1982
Kohl kjörinn kanslari Þýskalands
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Gunnar Ingvarsson
vélstjóri,
Kaplaskjólsvegi 93,
lést á Landspítalanum við Hringbraut síðastliðinn
föstudag. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrk
hjá Krabbameinsfélaginu.
Hólmfríður Friðriksdóttir
Hafdís Jóna Gunnarsdóttir Snorri Magnússon
Gunnar Dagur Snorrason
Snorri Halldór Snorrason
Dagmar Ýr Snorradóttir
MERKISATBURÐIR
1908 Þórhallur Bjarnarson, 52 ára forstöðumaður Prestaskólans,
er vígður biskup. Hann var biskup til æviloka, 1916.
1939 Kolamálið. Þjóðviljinn sakar ráðherra landsins um að hafa
dregið að sér eldivið á skömmtunartímum. Ráðherrarnir
voru hreinsaðir af þessum áburði og ritstjórar blaðsins
dæmdir fyrir meiðyrði.
1984 Verkfall BSRB hefst. Það hafði víðtæk áhrif, meðal annars
lá skólahald niðri, strætisvagnar gengu ekki og útsendingar
Ríkisútvarpsins féllu að mestu niður. Samningar tókust 30.
október.