Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 36
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR24 BAKÞANKAR sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar TILBOÐ TIL N1 KORTHAFA N1 korthöfum býðst nú frábært tilboð - 20% afsláttur af miðaverði á gamanleikinn Hjónabandssælu í Gamla bíói, laugardaginn 8. október nk. kl. 20 - meðan húsrúm leyfir. Bókaðu skemmtilegt leikhúskvöld á sérstöku korthafatilboði á n1.is WWW.N1.IS 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Bréfberinn setti pakka inn um bréfa-lúguna í vikunni. Nei sko, í bögglinum var falleg bók. Á forsíðunni var skönnuð mynd gamallar og blettóttrar matreiðslu- bókar og svo skar sig úr mynd af glæsi- legri konu. Við hjónin fórum að skoða bókina og í ljós kom að þetta var rit, sem vinkona okkar í Þrándheimi hafði gert um móður sína. Þarna voru samankomn- ar bestu uppskriftir mömmunnar, úrval fjölskyldumynda og frásagnir af lífinu í uppvaxtarhúsinu. Við fengum innsýn í fjölskyldusögu, sem við þekktum ekki fyrir. Vinkona okkar gefur svo þessa fallegu elskugjöf þegar tilefni gefast, þegar hún vill veita af sínu hjartablóði og tjá þakklæti sitt. Mamma hennar er ekki dáin, en hún er á leið inn í Alzheimer-fjarlægðina. Í for- málanum stóð að hvati bókar- innar væri íslenskur. Vinkona okkar hafði fengið að gjöf bók um íslenska mömmu, elda- mennsku og líf hennar og sú bók hefði hrifið og hvatt til dáða. Þá varð norska mömmu- bókin til. JÁ, MIKIÐ rétt. Kona mín tók sig til þegar móðir hennar lést og safnaði uppskriftum hennar og fjölskyldumyndum frá ólíkum skeiðum. Svo skrifaði hún á blað minn- ingar um mömmu sína, raðaði efni niður og minningarorðin úr kirkjunni eru þarna líka. Mamman var orðhnyttin og skemmtin og því fengu orðatiltæki henn- ar að vera neðst á öllum síðum. Þau eru upprifjandi og fyndin. Svo var vandað til umbrots og prentunar. Úr varð fallegt rit, sem kona mín hefur gefið stórfjölskyld- unni, vinum sínum og hefur líka gefið þegar hún fer í boð. Þetta er bók gleði og þakklætis og kvennamenningar. Líf er virt, gjafmildi og elskusemi mömmunnar er tjáð – bókin um mömmu. HVERNIG getum við lagt rækt við fjöl- skyldusögu okkar? Við segjum sögur af fólkinu okkar og efnum til ættarmóta. Við höldum veislur tengdar stórviðburðum ævinnar. Flest okkar hafa ærnar ástæð- ur til að leggja rækt við foreldra og ást- vini. Elskubækur um þetta fólk eru jafn- vel langlífari en legsteinar á leiði. Áar og eddur fá þar með ásjónu, andlit og sögu, sem grjótið tjáir ekki. Minningarit um hin látnu eru góð og vinnsla ritsins getur hjálpað við sorgarúrvinnslu. Svo er kjörið að vinna svona rit meðan fólk lifir og jafn- vel í samvinnu við það. Virðisauki þakka er meiri í eyra og auga en í minningar- grein. Áttu pabba, mömmu eða ástvin, sem þig langar að bóka? Jólagjöfin í ár? Bókin um mömmuLÁRÉTT 2. sæti, 6. hljóm, 8. magi, 9. rúm ábreiða, 11. eldsneyti, 12. mont, 14. enda, 16. tvö þúsund, 17. sérstaklega, 18. kopar, 20. tveir eins, 21. þitt. LÓÐRÉTT 1. fita, 3. skammstöfun, 4. fax, 5. arinn, 7. tilgangur, 10. eldsneyti, 13. hólf, 15. illgresi, 16. stúlka, 19. guð. LAUSN LÁRÉTT: 2. sess, 6. óm, 8. hít, 9. lak, 11. mó, 12. grobb, 14. klára, 16. mm, 17. sér, 18. eir, 20. ff, 21. yðar. LÓÐRÉTT: 1. tólg, 3. eh, 4. símbréf, 5. stó, 7. markmið, 10. kol, 13. bás, 15. arfi, 16. mey, 19. ra. Rólegur dagur hjá Nostradamusi... Ertu skotin í mér, Bára? Ha? Ertu skotin í mér? Auðvitað er ég skotin í þér? Hvernig spyrðu? Þú girnist sem sagt ekki bara líkama minn? Nei, Pondus, ekki bara líkama þinn. En hann spilar þó stórt hlut- verk? Sífellt stærra, elskan! Skilurðu það sem ég er að segja, Palli? Já. Ertu með allt á tæru varðandi þetta? Algjörlega. Ertu með einhverjar spurningar um það sem við ræddum? Neibb! Hef ekki hug- mynd. Hvað rædd- irðu við námsráðgjaf- ann í dag? Hmm... þarf að setja í þvotta- vél, dökkur þvottur held ég. Ég verð svangur seinna og fæ mér samloku, líklega með skinku. Þarf að skipta um kattasand. Stundum veit ég ekki hvort hún er að babla eitthvað eða útskýra hvernig netið virkar. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN KOMDU Í ÖLL HELSTU PARTÝIN MEÐ OKKUR m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.