Fréttablaðið - 04.10.2011, Page 42
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR30
sport@frettabladid.is
Snemma morguns dreifa um
450 blaðberar pósti og
Fréttablaðinu heim til
lesenda.
Til að tryggja öryggi blaðbera
og dreifingu þarf lýsing að
vera til staðar og aðkoma
að póstlúgu í lagi.
Höfum útiljósin kveikt.
Með fyrirfram þökk,
Sími: 585 8300 www.postdreifing.is
Allt í myrkri?
HALLDÓR ORRI BJÖRNSSON fer á sunnudag út til Danmerkur þar sem hann mun
æfa með Silkeborg. Frá þessu var greint á fótbolti.net í gær. Halldór Orri átti frábært ár með
Stjörnunni og hefur verið undir smásjá danska liðsins í nokkurn tíma.
FÓTBOLTI „Ég skil ekki alveg þessa
umræðu um að ég sé búinn að
grenna mig svona mikið. Ég var
tíu kílóum léttari í fyrra. Þá var
ég orkulaus tannstöngull. Ég er
búinn að massa mig nokkuð upp
síðan þá og er í allt öðru og betra
formi,“ segir Óskar Pétursson,
mark vörður Grindavíkur, en hann
er leikmaður lokaumferðar Pepsi-
deildarinnar hjá Fréttablaðinu.
Óskar fór á kostum í marki
Grindavíkur í Eyjum og varði
meðal annars víti frá Tryggva
Guðmundssyni. Óskar hefur hagað
sínum undirbúningi öðruvísi í
sumar en oft áður. Lagt meira á
sig og það hefur skilað sér.
„Ég tók sjálfan mig í gegn og
fylltist meiri metnaði en áður.
Loksins áttaði ég mig á því að að
þetta kemur ekki af sjálfu sér. Ég
hef alltaf unnið mikið með fótbolt-
anum en ég tók mér frí frá vinnu í
sumar. Fór að þjálfa í stað þess að
vera í verkamannavinnu. Þá gat ég
æft meira og ég var að æfa í svona
tvo og hálfan tíma á dag.“
Frammistaða Óskars í sumar
hefur ekki farið fram hjá forráða-
mönnum annarra liða og einhver
lið munu eflaust bera víurnar í
þennan 22 ára gamla markvörð.
„Ég hef heyrt ýmislegt út undan
mér en ekki fengið nein símtöl
sjálfur,“ segir Óskar en hann úti-
lokar ekki að hann reyni fyrir sér
á nýjum vígstöðvum þó svo hann
sé enn samningsbundinn Grinda-
vík. „Mér líður vel í Grindavík en
ég þarf að sjá til. Nú verður sest
niður og hugsað um framtíðina og
hvað sé best að gera.“ - hbg
Óskar Pétursson hélt Grindavík uppi og er leikmaður lokaumferðarinnar:
Ég var tíu kílóum léttari í fyrra
HETJA GRINDAVÍKUR Óskar fagnar hérna
áframhaldandi úrvalsdeildarsæti í Vest-
mannaeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR PÉTUR
Lið umferðarinnar
Óskar Pétursson Grindavík
Halldór Kristinn Halldórsson Valur
Ólafur Örn Bjarnason Grindavík
Skúli Jón Friðgeirsson KR
Halldór Hermann Jónsson Fram
Hilmar Geir Eiðsson Keflavík
Ólafur Páll Snorrason FH
Kristinn Steindórsson Breiðablik
Arnar Már Björgvinsson Breiðablik
Atli Viðar Björnsson FH
Albert Brynjar Ingason Fylkir
FÓTBOLTI Tímabilinu 2011 í Pepsi-
deild karla verður lengi minnst
fyrir afrek Fram, sem tókst með
ævintýralegum hætti að bjarga
sæti sínu í deildinni. Liðið fékk
aðeins þrjú stig úr fyrstu tíu
umferðunum og vann ekki sinn
fyrsta leik fyrr en í 11. umferð –
gegn Víkingi. Næsti sigur leikur
á eftir kom í 16. umferð, þann
22. ágúst, og voru þá langflest-
ir íslenskra sparkspekinga löngu
búnir að dæma þá niður um deild.
En þá tók við ótrúlegur sprett-
ur hjá þeim bláklæddu, sem töp-
uðu aðeins einum leik af síðustu
sjö í deildinni (2-1 fyrir KR) og
unnu fjóra af síðustu fimm leikj-
um sínum. Fram endaði í níunda
sæti, þremur stigum frá fallsæti.
Margir tengja gott gengi Fram
við komu þeirra Stevens Lennon
og Sams Hewson um mitt mót.
Skyldi engan undra. Lennon
tryggði Fram fyrsta sigur tíma-
bilsins í fyrsta leik sínum er hann
nýtti sér skelfileg mistök Magnús-
ar Þormars, markvarðar Víkings.
„Markvörðurinn var óheppinn,“
segir Lennon um atvikið. „En þetta
var mikilvægt augnablik og átti
ef til vill stóran þátt í því að við
náðum að snúa genginu við. Lið í
fallbaráttu eru yfirleitt ekki svona
heppin en við þurftum á þessu að
halda.“
Íslensku strákarnir líka góðir
Stuttu síðar bættist Hewson í hóp-
inn og náði hann að binda saman
miðju Framara og bæta þannig
sóknarleik liðsins til muna. Len-
non tekur þó fram að það voru ekki
bara Bretarnir sem léku vel undir
lok tímabilsins.
„Ömmi (Ögmundur Kristins-
son markvörður) var okkar besti
maður í sumar og fleiri voru að
spila vel.“
Sam Tillen var að klára sitt
fjórða tímabil hjá Fram og þekkir
því orðið ansi vel til í Safa mýrinni.
„Allir þrír (Bretarnir) voru frá-
bærir í sumar. Þeir eru ekki síst
góðir knattspyrnumenn heldur
einnig góðir drengir með frábært
viðhorf. Það skiptir máli,“ segir
Tillen.
„Ég man þegar ég kom fyrst til
Fram. Þá voru hérna Danir sem
voru hér á kolröngum forsend-
um. Það var ótrúlegt að sjá hversu
slakt viðhorf þeir voru með,“ bætir
hann við. „En með tilkomu strák-
anna í sumar fundum við ákveðið
jafnvægi í liðinu og það er ljóst að
hefðu þeir komið fyrr hefði okkur
gengið betur í sumar.“
Þeir Tillen, Lowing og Hewson
voru allir samningsbundnir Fram
til lengri tíma en í gær bættist svo
Steven Lennon í hópinn eftir að
hafa samið við liðið til 2013.
„Ég nýt þess að spila fótbolta í
Fram og skiptir það mestu,“ segir
Lennon. „Ég vona að ég fái tvö góð
ár með Fram og að ég standi mig
það vel að ég komist
svo í stærri deild.“
Margir týnast og
hætta 22 ára
Allir fjórir leik-
mennirnir ólust
upp hjá stórum
breskum félögum.
Þeir Lowing og
Lennon hjá Glasgow
Rangers, Tillen hjá Chel-
sea og Hewson var í áratug
hjá Manchester United, um
tíma sem fyrirliði U-18 liðs
félagsins. Allir eiga þeir að
baki leiki með yngri lands-
liðum Englands og Skot-
lands.
Tillen segir að fjöl-
margir knattspyrnu-
menn sem alast upp hjá
stór félögum eigi það til að
týnast. „Þeir leikmenn sem
ekki komast að í aðalliðinu
enda langflestir í neðri deildunum.
Þar er fótboltinn allt annar en þeir
hafa vanist og var það líka tilfell-
ið hjá mér. Ég fór til Brentford og
síðustu átján mánuðirnir þar voru
ömurlegir. Ég hataði æfingarnar
og hlakkaði aldrei til að spila leik-
ina. Margir í mínum sporum týn-
ast einfaldlega og hætta svo 22 ára
gamlir, þó svo að þeir hafi sem
unglingar verið taldir í hópi efni-
legustu leikmanna landsins.“
Frelsi til að njóta sín
Allir þeir þrír sem Frétta-
blaðið ræddi við minnt-
ust á þjálfarann Þor-
vald Örlygsson og
þökkuðu honum fyrir
traustið sem þeir fengu
undir hans stjórn.
Lowing fær orðið:
„Þorvaldur sá
til þess að sjálfs-
traustið var allt-
af mikið. Hann
g a f ok k u r
frelsi til að
spila og við
vissum að
þetta væri
bara tímaspursmál. Svo þegar að
Sam og Steven komu þá fengum
við þetta litla sem vantaði upp á.“
Tillen tekur undir þetta. „Ég
fékk aftur ástríðu fyrir fótboltan-
um hjá Fram. Mér líður eins og ég
sé 10-11 ára gamall á nýjan leik og
get ekki beðið eftir næstu æfingu
eða leik. Um það á fótboltinn að
snúast.“
Tillen býr hér á landi en þeir
Hewson, Lowing og Lennon snúa
nú aftur til síns heima en koma
aftur í nóvember þegar undirbún-
ingstímabilið hefst.
„Það verður ný reynsla og mjög
ólíkt því sem ég þekki,“ sagði
Lowing um tilhugsunina við sex
mánaða undirbúningstímabil um
hávetur á Íslandi. „En ég óttast
ekkert þá tilhugsun og hlakka til
að upplifa eitthvað nýtt.“
eirikur@frettabladid.is
FUNDU ÁSTRÍÐUNA AFTUR Í FRAM
Bretarnir fjórir í Fram áttu stóran þátt í því að liðið náði að bjarga sér frá falli úr Pepsi-deildinni á ævin-
týralegan máta. Fréttablaðið ræddi við þrjá þeirra um sumarið og af hverju þeir enduðu í Pepsi-deildinni.
ÞRÍR ÖFLUGIR Sam Tillen, Steven Lennon og Alan Lowing áttu stóran þátt í velgengni Fram á seinni hluta tímabilsins, rétt eins og
Sam Hewson sem var farinn af landi brott þegar myndin var tekin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég fór til Brentford og
síðustu átján mánuð-
irnir þar voru ömurlegir. Ég
hataði æfingarnar og hlakkaði
aldrei til að spila leikina.
SAM TILLEN
LEIKMAÐUR FRAM
FÓTBOLTI Það virðist vera komin
nokkur hreyfing á landsliðs-
þjálfaramálin hjá KSÍ en Ólafur
Jóhannesson stýrir sínum síðasta
landsleik á föstudag.
Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, staðfesti við íþróttadeild í
gær að hann væri í viðræðum við
Svíann Lars Lagerbäck um að
taka að sér starfið.
Svíinn er einnig sagður vera
í viðræðum við forráðamenn
austurríska knattspyrnusam-
bandsins. Talið var að hann væri
úr myndinni þar en austurrískir
miðlar greindu frá því í gær að
Lagerbäck væri enn í myndinni
hjá Austurríki.
Lagerbäck lýsti yfir áhuga á
að taka við íslenska landsliðinu
í samtali við Fréttablaðið á dög-
unum. Þá sagðist hann vera til í
að ræða við KSÍ og Frétta blaðið
spurði hann í gær hver staða
mála væri?
„Á meðan ekkert er frágengið í
mínum málum hef ég ákveðið að
sleppa því að tjá mig. Þið verðið
því að bíða og sjá hvað verður,“
segir Lagerbäck.
„Þegar í ljós kemur hvort ég
verði landsliðsþjálfari Íslands
eður ei er þér velkomið að ræða
eins mikið við mig og þú vilt.
Ég tel það ekki vera rétt af mér
að ræða mín mál í fjölmiðlum á
meðan þau eru í óvissu. Ég held
að það eigi við um alla.“
Hinn 63 ára gamli Lagerbäck
var lengi vel landsliðsþjálfari
Svía og kom liðinu á fimm stór-
mót í röð á sínum tíma. Hann
hefur undanfarið verið að vinna
fyrir sænska knattspyrnusam-
bandið og Knattspyrnusamband
Evrópu. - hbg
Leitin að eftirmanni Ólafs:
KSÍ ræðir við
Lagerbäck
LARS LAGERBÄCK Vill ekki ræða stöðu
viðræðna við KSÍ sem stendur.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
SAMUEL
HEWSON